Skráningu að ljúka

Börnin í kirkjunniSkráningu nýrra félaga í Barna – og Unglingakórum Selfosskirkju er senn að ljúka og lýkur 15. október nk. Hafði því samband við Edit í tíma til að allt sé með tilhlýðilegum hætti.

Næsta skráningartímabil verður frá 6. janúar 2015 og lýkur  10. febrúar 2015.

 

Messa og barnastarf 12. október

IMG_0874Messa er kl. 11 sunnudaginn 12. október og barnastarf á sama tíma í safnaðarheimili. Sr. Ninna Sif þjónar fyrir altari. Jörg Sondermenn spilar á orgelið og Kirkjukór Selfoss leiðir sönginn.  Súpa í hádeginu vegna vægu gjaldi.  Verið velkomin.

Skemmtileg og nærandi samverustund í kirkjunni 5. okt

IMG_2704Fjölskylduguðsþjónusta verður í Selfosskirkju sunnudaginn 5. október kl. 11. Barna og unglingakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Edit Molnár. Kökubasar verður strax eftir guðsþjónustuna þar sem æskulýðsfélag kirkjunnar safnar fyrir ferð sinni á landsmót æskulýðsfélaga í lok október.  Prestarnir sr. Axel og sr. Ninna Sif leiða söfnuðinn.