Vorferð foreldramorgna

Í vikunni fór hópurinn sem mætt hefur á foreldramorgna í vetur í vel heppnaða vorferð í Þorlákshöfn. Nokkrar mæður og börn nutu þess að fara í sundlaugina í Þorlákshöfn og eftir sundið sameinaðist hópurinn í góðu yfirlæti á veitingastaðnum Hendur í Höfn.

Margir foreldrar hafa nýtt sér að mæta í vetur og höfum við fengið ákaflega góðar heimsóknir frá fjölmörgum fyrirlesurum og er það seint full þakkað hvað fólk í samfélaginu er tilbúið að gefa af sér fyrir þennan ágæta hóp.

Markmið foreldramorgna er að vera samkomustaður fyrir foreldra með ung börn og er það mikilvægt fyrir foreldra í fæðingarorlofi að hafa stað til að hittast á spjalla, fræðast, byggja sig upp og drekka kaffi.

Formleg dagskrá foreldramorgna er nú komin í sumarfrí en við hefjum starfið aftur að nýju um miðjan ágúst.

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, æskulýðsfulltrúi

Uppstigningardagur í Selfosskirkju

Uppstigningardagur er dagur eldri borgara í kirkjunni.  Af því tilefni verður messa í Selfosskirkju á uppstigningardegi 30. maí kl. 11:00.  Hörpukórinn leiðir safnaðarsöng og syngur, stjórnandi kórsins er Guðmundar Eiríkssonar.  Prestur Guðbjörg Arnardóttir.  Eftir messuna verður borin fram súpa í Safnaðarheimilinu í boði héraðssjóðs.  Verið innilega velkomin!

Noregsferð Unglingakórs Selfosskirkju

Dagana 1. – 5. maí síðastliðinn fóru 11 félagar úr Unglingakór Selfosskirkju ásamt fararstjórunum Kolbrúnu, Jóhönnu Ýr og  Eyrúnu kórstjóra til Noregs í söng og skemmtiferð.

Flogið var til Osló þar sem Gróa Hreinsdóttir kórstjóri og atvinnubílstjóri tók á móti hópnum. Förinni var heitið til Drammen þar sem fyrsta stopp var á Mc Donald’s en þar á eftir fengum við að njóta útsýnisins við Spiralen sem er fallegur útsýnisstaður þar í bæ.

Fimmtudaginn 2. maí hjóluðu kórfélagar um bæinn ásamt því að kíkja aðeins í búð. Seinni partinn var komið að undirbúningi fyrir tónleika í Tangenkirkju en þar hélt kórinn tónleika með kvennakórnum Gospellsystrum. Kórfélagar fluttu hluta af dagskrá tónleikanna “Raddir sunnlenskra ungmenna” sem voru í Selfosskirkju 7. apríl síðastliðinn. Vel var mætt á tónleikana og er óhætt að segja að tónleikargestir hafi verið ánægðir með sönginn og kynningarnar sem þau sáu alfarið um sjálf.

Föstudagsmorguninn 3. maí tókum við lestina til Osló. Þegar þangað var komið röltum við um miðbæinn. Skoðuðum m.a konungshöllina, miðbæinn, Óperuhúsið og höfnina. Heldur var þó kaldara en búist var við og var því menningarlega gönguferðin ögn styttri en ráð hafði verið gert fyrir og stefnan tekin á helstu verslunarmiðstöð miðbæjarins. Dagurinn endaði á hinum margrómaða veitingastað Hard Rock.

Kolbrún Guðmundsdóttir, Eyrún Jónasdóttir og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

 

Þá var komið að laugardeginum 4. maí sem beðið hafði verið með eftirvæntingu. Förinni var heitið í skemmtigarðinn Tusenfryd þar sem kórfélagar nutu dagsins í rússbönum, sleggjum og fallturnum svo eitthvað sé nefnt. Fararstjórar hins vegar sátu kappklæddir og drukku misvont kaffi. Um kvöldið var borðað á frábærum ítölskum veitingastað í miðbænum.

Sunnudaginn 5. maí hófst með gönguferð um Akerhús og Akerbryggju. Því næst var komið að messu í Nordbergkirkju þar sem kórfélagar sungu messu með Ískórnum undir stjórn Gróu Hreinsdóttur. Inga Harðardóttir nýráðinn prestur íslenska safnaðarins í Noregi leiddi fjölskylduguðsþjónustuna. Kórfélagar Ískórsins buðu í kaffi eftir messu og nutum við góðs af því.

Eftir messuna gafst tími til að skoða hinn þekkta styttugarð Vigeland Park þar sem kórfélagar notuðu tækifærið og tóku myndir. Því næst var förinni heitið út á flugvöll.

Okkur langar til að þakka Gróu Hreinsdóttur alveg sérstaklega fyrir alla hennar hjálp en framlag hennar til ferðarinnar var ómetanlegt. Það má með sanni segja að ferðin hafi tekist vel enda var hópurinn á allan hátt til fyrirmyndar. Kórfélagar hafa án efa safnað góðum minningum sem koma vonandi til ylja um ókomna tíð.

Eyrún Jónasdóttir, kórstjóri Unglingakórs Selfosskirku

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, æskulýðsfulltrúi Selfosskirkju

 

 

 

 

Fundur vegna fermingarfræðslu 2019-2020

Fermingarfræsðla í Selfossprestakalli 2019-2020

Þriðjudagskvöldið 21. maí kl. 19:30 boða prestarnir í Selfossprestakalli foreldra væntanlegra fermingarbarna vorsins 2020 til fundar í Selfosskirkju.  Þar verður fyrirkomulag fræðslunnar næsta vetur kynnt, m.a. fræðslunámskeið í ágúst, fermingarferðalag sem og fermingardagar næsta vors.  Allar nánari upplýsingar veita prestarnir sr. Guðbjörg í síma 8654444 eða gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is og sr. Ninna Sif í síma 8491321eða ninna.sif.svavarsdottir@kirkjan.is

Með kærum kveðjur

Guðbjörg og Ninna Sif

Krossamessa sunnudaginn 19. maí

Sunnudaginn 19. maí kl. 11:00 verður hin árlega krossamessa.  Þeir Unglingar sem ljúka störfum hjá kórnum eru heiðraðir og fá afhent sérsmíðað hálsmen frá kirkjunni.  Kirkjukórinn og Unglingakórinn syngja og verður kórsöngurinn í fyrirrúmi í athöfninni.  Stjórnandi Unglingakósins er Eyrún Jónasdóttir og organisti er Ester Ólafsdóttir.  Prestur Guðbjörg Arnardóttir. 

Helgihald í Selfossprestakalli 11.-12. maí

Laugardaginn 11. maí og sunnudaginn 12. maí kl. 11:00 verða fermingarmessur í Selfosskirkju.  Kirkjukórinn og raddir úr Unglingakórnum syngja.  Organisti Ester Ólafsdóttir.  Prestar Guðbjörg Arnardóttir og Ninna Sif Svavarsdóttir.

Sunnudaginn 12. maí kl. 13:30 verður þjóðbúningamessa í Villingaholtskirkju.  Söngkór Hraungerðis- og Villingaholtssókn syngur.  Organisti Ingi Heiðmar Jónsson, prestur Guðbjörg Arnardóttir.  Fólk hvatt til að koma í þjóðbúningum.  Pálnínuboð/messukaffi í Þjórsárveri á eftir.