Skemmtileg og nærandi samverustund í kirkjunni 5. okt

IMG_2704Fjölskylduguðsþjónusta verður í Selfosskirkju sunnudaginn 5. október kl. 11. Barna og unglingakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Edit Molnár. Kökubasar verður strax eftir guðsþjónustuna þar sem æskulýðsfélag kirkjunnar safnar fyrir ferð sinni á landsmót æskulýðsfélaga í lok október.  Prestarnir sr. Axel og sr. Ninna Sif leiða söfnuðinn.