Sr. Arnaldur Arnold Bárðarson hefur verið ráðinn prestur í Árborgarprestakalli. Hann er fæddur 2. júní 1966 og var vígður 25. febrúar 1996. Hann var prestur m.a. á Hálsi í Fnjóskadal, í Noregi og síðustu þrjú ár í Heydölum. Hann var valinn til starfa í Eyrarbakkaprestakalli í ársbyrjun 2020, í nóvember það sama ár var Eyrarbakkaprestakall sameinað Árborgarprestakalli og þekkir hann því vel til í prestakallinu. Hann hefur störf 1. ágúst. Bjóðum við hann velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins með honum.
