Safnaðarstarf

Minningarmark er legsteinn og allt sem er við leiði. Minningarmark nær yfir hluti í kirkjugörðum sem settir eru upp til minningar um einstakling sem þar hvílir. Minningarmark er grafhýsi, legsteinar eða varða af ýmsu tagi, krossar af marvíslegum efnivið, rammar eða girðingar um leiði og það sem á þau er fest. Minningarmörk sem eru 100 ára og eldri teljast til fornleifa og njóta friðunar skv. lögum um menningarminjar nr. 80/2012, nema annað sé ákveðið af Minjastofnun Íslands. Stofnunin hefur umsjón og eftirlit með öllum minningarmörkum.

Á miðvikudögum frá kl. 11:00 – 12:30 á Baðstofuloftinu.

Foreldrar hittast þar með börn sín og njóta samveru hvert við annað. Af og til verður fræðsla í boði.

Mæting er frjáls, enginn aðgangseyrir og fullt af hressum foreldrum af Árborgarsvæðinu, þar sem kynnast má fólki með börn á svipuðum aldri.

Láttu sjá þig og leyfðu barninu þínu eða börnum að kynnast öðrum börnum og leyfðu öðrum að kynnast þér.

Umsjón með morgnunum hafa prestar kirkjunnar.

Á Facebook er hægt að vera meðlimur í síðu hópsins og fá þar upplýsingar um starfið

https://www.facebook.com/groups/2302877206754215

Hér má finna yfirlit yfir helgihald í Árborgarprestakalli

https://selfosskirkja.is/messur/

Miðvikudaga kl. 10:00 eru morgunbænir í Selfosskirkju.

Bænastundirnar eru í kirkunni og byrja kl. 10:00, eftir bænastundina er boðið upp á kaffisopa í Safnaðarheimilinu.

Notaleg stund í góðum félagsskap.

Morgunbænir eru ekki frá í júní, júlí og ágúst.  Þær hefjast á ný fyrsta þriðjudag í september.

Samtal um sorg og áföll í Selfosskirkju       

Að hausti er boðið upp á fyrirlestur um sorg, sorgarviðbrögð og úrvinnslu í Selfosskirkju.  Það gerir mörgum gott sem gengið hafa í gegnum sorg eða önnur áföll að hitta aðra sem staðið hafa í sömu sporum.  Í framhaldi af fyrirlestrinum hefur verið boðið upp á fjögur samtalskvöld.  

Umsjón með hópunum hefur Guðbjörg Arnardóttir, hægt að fá nánari upplýsingar í gegnum [email protected] . 

Alltaf er hægt að senda póst á presta kirkjunnar eða hringa og bóka sálgæsluviðtal sem er fólki að kostnaðarlausu.

Ekki var unnt að vera með 12 spora starf sl. vetur.  Verði aftur reynt að bjóða up á slíkt starf, koma upplýsingar um það hér.

Boðið verður upp á 12 spora starf í Selfosskirkju 

Sporafundir verða á .

Fyrsti kynningarfundurinn verður.

12 sporin – Andlegt ferðalag

Selfosskirkja býður upp á sjálfstyrkingarprógrammið 12. sporin –Andlegt ferðalag.

Vinir í bata, munu leiða starfið og er fyrsti kynningarfundur mánudaginn 12. september og verða vikulegir fundir í vetur á mánudögum frá kl. 18:00-20:00.  Fyrstu þrír fundirnir eru opnir kynningarfundir en eftir þá verður hópunum lokað og ekki hægt að koma inn í starfið eftir það.
Vinir í bata er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógrammið og tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrammi. Þetta starf hefur gefið mörgum mjög mikið og orðið fólki til blessunar. Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú.  Starfið er þáttakendum að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar veita prestar Selfosskirkju.

Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um 12.sporin –Andlegt ferðalag.

Margvíslegt kynningarefni er á heimasíðu Vina í bata:
Vinir í bata er hópur fólks – karla og kvenna – sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl – Vinir í bata (viniribata.is)
Hér má finna nýtt efni, hér er hægt að hlusta á fræðslu um 12 sporin:
Tólf sporin – Andlegt ferðalag – Vinir í bata (viniribata.is)

Þriðjudagssamverur í Selfosskirkju hafa fest sig í sessi og tilhlökkun að fara að hittast á ný.
Fyrsta samvera vetrarins verður þriðjudaginn . september og verður svo annan hvern þriðjudag út nóvember.

Samveran er heimilisleg og afslöppuð, við byrjum kl. 14:00, fáum góðan gest í heimsókn sem segir okkur eitthvað fróðlegt og skemmtilegt. Það er heitt kaffi á könnunni, samveran og spjallið gott. Yfirlit yfir gesti vetrarins verður birt hér á næstu dögum.