29. maí, 2026

Selfosskirkja fær fallega gjöf

Selfosskirkju var gefin einstaklega falleg og táknræn gjöf föstudaginn 29. maí.  Það var Guðný Ingibjörg Einarsdóttir sem færði kirkjunni skírnarkjól sem hún prjónaði til minningar um tvö barnabörn sín þau Ástrósu Emmu Arnardóttur og Axel Orra Arnarson sem létust stuttu eftir fæðingu.  Skírnarkjólinn og þeir hlutir sem honum fylgja er fallega komið fyrir í kassa og vafinn inn í klæði sem saumuð eru úr gömlum dúk úr kirkjunni á Kolfreyjstað sem var aflögð.  Meðfylgjandi eru myndir af kjólnum, undirkjólunum sem fylgja með, ásamt mismundi litum krögum og slaufum.  Þá fylgir kjólnum einnig bók þar sem hægt að skrifa inn nöfn þeirra sem skírð verða í kjólnum.  Kjólinn er gjöf til Selfosskirkju og geta öll þau sem það vilja fengið kjólinn lánaðan þegar barn er skírt í kirkjunni.  Við þökkum kærlega fyrir þessa hjartnæmu gjöf og biðjum Guð að blessa minningu Ástrósar Emmu og Axels Orra.  Hér að lokum fylgir ljóðið sem ritað er inn í bókina:

Gleym mér ei, gleym mér ei,
glóir í hverju spori.
Ljúf og blá líta má
ljós þín á hverju vori.

Lækjarins niðinn og lindarhljóm
leiddu út í geiminn.
Litla blóm, ljúfa blóm
leggðu undir þig heiminn.
                        Örn Snorrason, óútgefið     

Inn á Facebook síðu Selfosskirkju má sjá fleiri myndir af skírnarkjólnum og því sem honum fylgir.