10. júlí, 2026

Kvöldmessa í Selfosskirkju sunnudaginn 12. júlí

“Að tilheyra” er íhugunarefni kvöldmessunnar í Selfosskirkju á næsta sunnudag. Að tilheyra felst ekki í því að við eigum að vera eins, heldur að vera saman. Njótum stundar og samveru í kyrrð hugans.

Kvöldmessan verður í Selfosskirkju sunnudaginn 12. júlí kl. 20:00. Kirkjukórinn syngur, organisti Ester Ólafsdóttir, prestur Anna Eiríksdóttir.