Sunnudaginn 5. júlí verður í Árborgarprestakalli göngu- og íhugunarmessa. Messan hefst í Eyrarbakkakirkju kl. 14:00 og gengið verður eftir fjörustígnum sem er rúmir 3 km í Stokkseyrarkirkju, ganga er í allt rúmir 5 km. Stoppað verður á leiðinni til þess að hlusta á lestur eða íhuga. Reiknað er með að stundin taki í kringum klukkustund. Umsjón hefur sr. Guðbjörg Arnardóttir.
