Þriðjudaginn 5. maí útskrifuðust leiðtogar úr leiðtogarskóla á vegum Kjalanesprófastdæmis og Reykjavíkurprófastdæmis Eystra og Vestra. Fjórir leiðtogar frá Selfosskirkju hafa verið nemendur í leiðtogaskólanum í vetur. Við í Selfosskirkju erum ótrúlega stolt af þessum flottu leiðtogum okkar og óskum þeim innilega til hamingju með útskriftina. Þau halda áfram að starfa sem leiðtogar hjá okkur og hér á myndinni eru þau Dagbjört, Sara, Brynja og Andrej ásamt Sjöfn æskulýðsfulltrúa.
