8. maí, 2026

Þakkir

Ína Sigurborg Stefánsdóttir lét af störfum hjá Selfosskirkju eftir að hafa starfað við kirkjuna í 50 ár við ræstingar og þrif. Hluti sóknarnefndar og starfsmenn kirkjunnar komu saman til að þakka henni fyrir störf hennar við kirkjuna. Ína er einstök og trúfesti hennar og elja þakkarverð. Það hefur verið gott að hafa Ínu í kirkjunni og ekki síst að njóta þess að eiga með henni stund og samfélag yfir kaffibollanum í eldhúsinu að ógleymdum pönnukökunum sem hún kom með á miðvikudögum. Hugheilar þakkir elsku Ína.