Á miðvikudögum frá kl. 11:00 – 12:30 á Baðstofuloftinu.
Foreldrar hittast þar með börn sín og njóta samveru hvert við annað. Af og til verður fræðsla í boði.
Mæting er frjáls, enginn aðgangseyrir og fullt af hressum foreldrum af Árborgarsvæðinu, þar sem kynnast má fólki með börn á svipuðum aldri.
Láttu sjá þig og leyfðu barninu þínu eða börnum að kynnast öðrum börnum og leyfðu öðrum að kynnast þér.
Umsjón með morgnunum hafa prestar kirkjunnar.
Á Facebook er hægt að vera meðlimur í síðu hópsins og fá þar upplýsingar um starfið
https://www.facebook.com/groups/2302877206754215
Messur í Árborgarpestakalli haustmisseri 2025
Messur í Árborgarprestakalli haustmisseri 2025
Messa í Selfosskirkju kl. 11:00
Bleik messa í Selfosskirkju kl. 11:00
Messa í Stokkseyrarkirkju kl. 11:00
Þjóðbúningamessa í Villingaholtskirkju kl. 14:00
Kvöldmessa í Selfosskirkju kl. 20:00
Halloweenmessa í Selfosskirkju kl. 11:00
Kvöldessa í Eyrarbakkakirkju kl. 20:00
Messa í Selfosskirkju kl. 11:00
Messa í Selfosskirkju kl. 11:00
Messa í Stokkseyrarkirkju kl. 20:00
Fjölskyldumessa í Selfosskirkju kl. 11:00
Messa í Hraungerðiskirkju kl. 14:00
Messa í Eyrarbakkakirkju kl. 11:00
Messa í Gaulverjabæjarkirkju kl. 14:00
Kvöldmessa í Selfosskirkju kl. 20:00
Messa í Selfosskirkju kl. 11:00
Aðventumessa í Selfosskirkju kl. 11:00
Aðventukvöld í Villingaholtskirkju kl. 20:00
Aðventumessa í Stokkseyrarkirkju kl. 11:00
Aðventukvöld í Selfosskirkju kl. 18:00
Helgistund og jólaball kl. 11:00
Aðventumessa í Eyrarbakkakirkju kl. 14:00
Kvöldmessa kl. 20:00
Helgistund á Móbergi kl. 17:00
Aftansöngur í Selfosskirkju kl. 18:00
Aftansöngur í Stokkseyrarkirkju kl. 18:00
Miðnæturguðsþjónusta í Selfosskirkju kl. 23:30
Miðnæturguðsþjónusta í Eyrarbakkakirkju kl. 23:30
Villingaholtskirkja hátíðarguðsþjónusta kl. 11:00
Gaulverjabæjarkirkja hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00
Hraungerðiskirkja hátíðarguðsþjónusta kl. 11:00
Laugardælakirkja hátíðarguðsþjónusta kl. 13:00
Messa í Stokkseyrarkirkju kl. 15:00
Messa í Selfosskirkju kl. 17:00
Miðvikudaga og fimmtudaga kl. 10:00 eru morgunbænir í Selfosskirkju.
Bænastundirnar eru í kirkunni og byrja kl. 10:00, eftir bænastundina er boðið upp á kaffisopa í Safnaðarheimilinu.
Notaleg stund í góðum félagsskap.
Samtal um sorg og áföll í Selfosskirkju
8. október kl. 20:00 verður fyrirlestur í safnaðarheimilinu frá Sorgarmiðstöðinni og í framhaldinu fer að stað samtal um um sorg, sorgarviðbrögð og úrvinnslu í Selfosskirkju. Það gerir mörgum gott sem gengið hafa í gegnum sorg eða önnur áföll að hitta aðra sem staðið hafa í sömu sporum.
Umsjón með hópunum hefur Guðbjörg Arnardóttir, hægt að fá nánari upplýsingar í gegnum [email protected] .
Sporafundir verða á þriðjudögum frá 17:30-19:30.
Fyrsti kynningarfundurinn verður þriðjudaginn 23. september kl. 17:30.
12 sporin – Andlegt ferðalag
Selfosskirkja býður upp á sjálfstyrkingarprógrammið 12. sporin –Andlegt ferðalag.
Vinir í bata, munu leiða starfið og er fyrsti kynningarfundur mánudaginn 12. september og verða vikulegir fundir í vetur á mánudögum frá kl. 18:00-20:00. Fyrstu þrír fundirnir eru opnir kynningarfundir en eftir þá verður hópunum lokað og ekki hægt að koma inn í starfið eftir það.
Vinir í bata er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógrammið og tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrammi. Þetta starf hefur gefið mörgum mjög mikið og orðið fólki til blessunar. Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú. Starfið er þáttakendum að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar veita prestar Selfosskirkju.
Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is, þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um 12.sporin –Andlegt ferðalag.
Margvíslegt kynningarefni er á heimasíðu Vina í bata:
Vinir í bata er hópur fólks – karla og kvenna – sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl – Vinir í bata (viniribata.is)
Hér má finna nýtt efni, hér er hægt að hlusta á fræðslu um 12 sporin:
Tólf sporin – Andlegt ferðalag – Vinir í bata (viniribata.is)
Þriðjudagssamverur í Selfosskirkju hafa fest sig í sessi og tilhlökkun að fara að hittast á ný.
Fyrsta samvera vetrarins verður þriðjudaginn 23. september og verður svo annan hvern þriðjudag út nóvember.
Samveran er heimilisleg og afslöppuð, við byrjum kl. 14:00, fáum góðan gest í heimsókn sem segir okkur eitthvað fróðlegt og skemmtilegt. Það er heitt kaffi á könnunni, samveran og spjallið gott. Yfirlit yfir gesti vetrarins verður birt hér á næstu dögum.