Ferming

Minningarmark er legsteinn og allt sem er við leiði. Minningarmark nær yfir hluti í kirkjugörðum sem settir eru upp til minningar um einstakling sem þar hvílir. Minningarmark er grafhýsi, legsteinar eða varða af ýmsu tagi, krossar af marvíslegum efnivið, rammar eða girðingar um leiði og það sem á þau er fest. Minningarmörk sem eru 100 ára og eldri teljast til fornleifa og njóta friðunar skv. lögum um menningarminjar nr. 80/2012, nema annað sé ákveðið af Minjastofnun Íslands. Stofnunin hefur umsjón og eftirlit með öllum minningarmörkum.

Foreldar og verðandi fermingarbörn árið  2027, árgangur 2013, verða boðuð á kynningarfund í lok ágúst í Selfosskirkju

Þar förum við yfir fyrirkomulag fermingarfræðslunnar sem mun hefjast í ágúst.
Hér er hlekkur til að skrá í fermingarfræðslu og velja fermingardag:

Skrámur – Selfosskirkja

Fermingardagar í Árborgarprestakalli 2027

Selfosskirkja

Pálmasunnudagur 21. mars kl. 11:00
Pálmasunnudagur 21. mars kl. 14:00
Skírdagur 25. mars kl. 11:00
Laugardagur 1. maí kl. 11:00
Laugardagur 1. maí kl. 14:00
Sunnudagur 2. maí kl. 11:00

Laugardælakirkja
Skírdagur 25. mars kl. 14:00

Stokkseyrarkirkja
Sunnudagur 25. apríl kl. 11:00

Eyrarbakkakirkja
Sunnudagur 9. maí kl. 11:00

Gaulverjabæjarkirkja
Hvítasunnudagur 16. maí kl. 14:00

Villingaholtskirkja
Hvítasunnudagur 16. maí kl. 11:00

Hraungerðiskirkja
Annar hvítasunnudagur 17. maí kl. 14:00

Æfingar fyrir fermingar:

Selfosskirkja
21. mars pálmasunnudagur kl. 11:00
Æfing
21. mars pálmasunnudagur kl. 14:00
Æfing
25. mars skírdagur kl. 11:00
Æfing 
 
1. maí kl. 11:00
Æfing 
1. maí kl. 14:00
Æfing
2. maí kl. 11:00
Æfing 
 
 
 
Stokkseyrarkirkja
25. apríl kl. 11:00
Æfing 
 
Eyrarbakkakirkja
9. maí kl. 11:00
Æfing
 
Villingaholtsskirkja
16. maí kl. 11:00
Æfing 
 
Gaulverjabæjarkirkja
16. maí kl. 14:00
Æfing 
 
Hraungerðisskirkja
17. maí kl. 14:00
Æfing  

Fermingarfræðslan fer almennt fram aðra hverja viku. Fræðslan verður hópaskipt og fer fram annan hvern miðvikudag og fimmtudag í Selfosskirkju.  Skipt verður í fjóra hópa í Selfosskirkju hópur 1 er á miðvikudögum frá 15-16 og hópur 2 á miðvikudögum frá 16-17.  Hópur 3 er á fimmtudögum frá 15-16 og hópur 4 á fimmtudögum frá 16-17.

Sömuleiðis er fermingarfræðla aðra hverja viku í Eyrarbakkakirkju fyrir börn í BES og Villingaholtskirkju fyrir börn í Flóaskóla.  Sú fræða er kl. 14:00 eftir skóla.

Gert er ráð fyrir því tíminn nýtist vel, að mæting verði góð og að foreldrar styðji við börnin sín í því að sinna fermingarfræðslunni sinni.

Dagsetningar verða gefnar út í ágúst.

Fermingarfræðsla í Selfosskirkju
 
 
Fermingarfræðsla kl. 14:00 í Eyrarbakkakirkju:
 
 
Fermingarfræðsla í Villingaholtskirkju kl. 14:00:
 
 

Hér er hlekkur til að skrá í fermingarfræðslu og velja fermingardag.

Skrámur – Selfosskirkja

Guðbjörg Arnardóttir [email protected] s. 8654444 eða
Gunnar Jóhannesson [email protected] s. 8929115

Ætlast er til að verðandi fermingarbörnin læri eftirfarandi:

Trúarjátningin:

Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.

Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontiusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.

Ég trúi á heilagan anda, heilaga, almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft lif. Amen.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum.  Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.  Gef oss í dag vort daglegt brauð.  Og fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.  Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.  Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu.  Amen.

Þetta þrennt eiga þau einnig að þekkja

Kærleiksboðorðið: Þú skalt elska Drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. (Mark 12.30-31)

Gullna reglan:  Allt það sem þér viljið, að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. (Matt. 7.12)

Litla BiblíanSvo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóh.3.16)

Fermingarvers 2026

 

1 Óttast þú ekki, því að ég er með þér (Jesaja 43:5)

 

2 Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. (Sálm 17.8)

 

3 Já, þú lætur lampa minn skína, Drottinn, Guð minn, þú lýsir mér í myrkrinu. (Sálm

  1. 29)

 

4 Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. (Sálm 23.1)

 

5 Þið eruð dýrmæt í mínum augum, mikils metin og ég elska ykkur. (Jesaja 43:4)

 

6 Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. Lát mig ganga í sannleika

þínum. (Sálm 34.2)

 

7 Eins og hindin sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, Ó Guð. (Sálm 42.1)

 

8 Guð er okkar hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. (Sálm 46.2)

 

9 Skapa í mér hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan stöðugan anda. (Sálm 51.12)

 

10 Óttast þú ekki, því ég frelsa þig, ég kalla þig með nafni, þú ert mín/minn (Jesaja

43:1)

 

11 Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar (Kól 3:15a)

 

12 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. (Sálm

107.1)

 

13 Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig ekki villast frá boðum þínum (Sálm 119.109

 

14 Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá

Drottni, skapara himins og jarðar. (Sálm 121.1-2)

 

15 Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þín. (Sálm 121.7)

 

16 Ég vil lofa Drottin meðan ég lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til. (Sálm

146.2)

 

18 Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður. (Orðskv.

22:21)

 

19 Sælir eru hógværir, því þeir munu jörðina erfa. (Matt 5.5)

 

20 Sælir eru miskunnsamir því þeim mun miskunnað verða. (Matt 5.7)

 

21 Sælir eru hjartahreinir því þeir munu Guð sjá. (Matt 5.8)

 

22 Allt sem þið viljið að aðrir menn gjöri ykkur, það skuluð þið og þeim gjöra. (Matt

7.12)

 

23 Tvöfalda kærleiksboðorðið: Þú skalt elska Drottinn Guð þinn af öllu hjarta þínu og

af allri sálu þinni og af öllum huga þínum og af öllum mætti þínum og náungan eins

og sjálfan þig. (Mark 12.30-31)

 

24 Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það. (Lúk 11.28)

 

25 Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. (Jóh 1.1)

26 Litla Biblían: Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess að

hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóh 3.16)

 

27 Jesús segir: ,,Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri

heldur hafa ljós lífsins.” (Jóh 8.12)

 

28 Jesús segir: ,,Hjarta ykkar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig.” (Jóh 14.1)

 

29 Jesús segir: ,,Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið.” (Jóh 14.6)

 

30 Jesús segir: ,,Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og

þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.” (Jóh 6.35)

 

31 Jesús segir: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyji.

(Jóh 11.25)

 

32 Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur

aldrei úr gildi. (I.Kor 13.7)

 

34 Drottinn er andinn, og þar sem andi Drottins er, þar er frelsi. (II.Kor 3.17)

 

35 Í trúnni á Jesú eigum við öruggan aðgang að Guði. (Ef 3.12)

 

36 Lítið ekki aðeins á eigin hag, heldur einnig hag annarra. Verið með sama hugarfari

og Jesús Kristur var. (Fil 2.4-5)

 

37 Berstu trúarinnar góðu baráttu. (I.Tím 1.12)

 

38 Stattu stöðugur í þeirri trú og þeim þeim kærleika, sem veitist í Kristi Jesú. (II.Tím

1.13)

 

39 Gefum gætur hvert að öðru og hvetjum hvert annað til kærleika og góðra verka.

(Heb 10.24)

 

40 Sá getur allt sem trúir! (Mark 9.23)

 

41 Ég mun ekki sleppa af þér hendinni, né yfirgefa þig. (Heb 13.5)

 

42 Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar. (Kól 3.15a)

 

43 Treystið Drottni um aldur og ævi því að Drottinn er eilíft bjarg. (Jes 26.4)

 

44 Þreytumst ekki á að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera

ef við gefumst ekki upp. (Gal 6.9)

 

45 Þegar áhyggjur þjaka mig, hressir huggun þín sál mína. (Sálm 94.19)

 

46 Jesús segir: ,,Verið í mér, þá verð ég í ykkur.“ (Jóh 15.4)

 

47 Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. (Sálm 37.5)

 

48 En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.

(1Kor 13.13)

 

49 Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér. (Sálm 23.4)

 

50 Nýtt boðorð gef ég ykkur, að þið elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað ykkur

skuluð þið einnig elska hvert annað. (Jóh 13.34)

 

51 Verið stöðug í bæninni, vakið og biðjið með þakkargjörð. (Kól 4.2)

 

52 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar (Sálm 121:2)

 

53 Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. (Sálm 119:105)

 

54 Þetta er mitt boðorð, að þið elskið hvert annað, eins og ég hef elskað ykkur. (Jóh.

15:12)

 

55 Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir. (Fil 4.13)

 

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.