7 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 25. nóv. 2025 kl. 17.00
Mættir: Björm Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll B. Ingimarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Eyjólfur Sturlaugsson, Hafdís Kristjánsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Búið er að funda með fulltrúum kirkjugarðaráðs þjóðkirkjunar, fulltrúum Árborgar og Oddi Hermannssyni. Staðan er núna sú að undirbúningur er í ákveðnu ferli.
Stækkun á kirkjunni. Tengibygging við safnaðarheimilið, komin er grunnteikning á viðbyggingu sem hugur er á að byggja, halda á áfram að teikna.
Guðmundur B. Sigurðsson áætlar að það kosti 1,5 milljón að gera nýja bílastæðið við Selfosstúnið en það vantar framkvæmdaleyfi frá Árborg til að hefja framkvæmdir.
Björn formaður vill taka hópmynd af sóknarnefnd, varamönnum og öllum starfsmönnum kirkjunnar.
Fjárhagsáætlun, ýmsar hugmyndir ræddar.
Fundi slitið kl. 18:20
Fundaritari Guðrún Tryggva
6 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. okt. 2025 kl. 17.00.
Mættir: Þórður G. Árnason, Guðmundur Búason, Páll B. Ingimarsson, Örn Grétarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Hafdís Kristjánsdóttir, Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Dagskrá.
Þórður setti fundinn í fjarveru Björns Inga.
Málið tekið fyrir og rætt.
BM Vallá gaf Selfosskirkjunni ruslaskýli núna í okt. Er þeim þakkað fyrir þessa gjöf. Guðmundur B. Sigurðsson er til í að koma þessu fyrir.
Þórður er búin að tala við Pál Bjarnason hjá Eflu sem ætlar við tækifæri að fá sérfræðing til að mæla hljóðvist í safnaðarheimilinu.
Staðsetning á nýjum kirkjugarði var enn einu sinni rædd því ekki er ennþá komið boðlegt svæði fyrir garðinn. Þórður ætlar að reyna að ræða við skipulagsfulltrúa Árborgar.
Guðmundur Búason sagði okkur frá framkvæmdum sem hafa verið í gangi úti, að laga flísar og bletti á þaki.
Sr. Guðbjörg var á fundi með héraðsnefnd og næsti Héraðsfundur Suðurprófastdæmis verður 18. apríl 2026 í Selfosskirkju.
4, Fundargerð upplesin.
Fundi slitið 17:55 Fundarritari Guðrún Tryggva
5 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 23. sept. 2025. kl. 17.00
Mættir: Björn Ingi Gíslason, Þórður G. Árnason, Arnar Guðmundsson, Páll B. Ingimarsson, Örn Grétarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Jóhann Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Dagskrá.
Björn setti fundinn, Sigurjón Þór Erlingsson sem var ritari sóknarnefndar í 27 ár lést í september. Sóknarnefndin sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.
Fyrstu hugmyndir af afmælishátið eru að fyrsti dagur í afmæli yrði sunnudagurinn 1. mars með æskulýðsstarfinu og unglingakór, 8. mars. Kirkjukór og fyrrverandi kórfélagar syngi í messu, 15. mars yrði fjölskylduguðsþjónusta með barnakór. 22. mars yrði kvöldmessa þar sem kirkjukórinn myndi syngja sálma í útsetningu Gunnars Gunnarssonar ásamt hljómsveit kórsins, og svo yrði hátíðarmessa 29. mars með kirkjukórnum og unglingakórnum.
Fundi slitið 18:30
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir 4 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 27. maí. 2025. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Örn Grétarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Jóhann S. Bjarnason, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadótir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Fundur settur.
Björn setti fundinn.
Skipaður hefur verið vinnuhópur hjá Sveitarfélainu Árborg um nýjan kirkjugarð, sóknarnefnd verður kölluð á kynningafund seinnipart sumars þar sem hugmyndir verða kynntar. Við fögnum þessu.
Nokkrar hugmyndir voru samþykktar:
Minnast afmælisins í mánuð með einhverju atburðum sem lýkur 29.mars
Fá Biblíusafn Sigurðar Pálssonar lánað og hafa það til sýnis og kynningar. Björn ætlar að tala við Ólaf Sigurðsson.
Fá Ljósmyndaklúbbinn Blik til að efna til ljósmyndasýningar sem yrði úti. Örn ætlar að tala við formann klúbbsins.
Skrá alla presta og starfsmenn kirkjunnar í máli og myndum. Guðmundur tekur saman.
Nafnalista yfir alla sem hafa verið í sóknarnefnd. Guðmundur tekur saman.
Byggingarsaga kirkjunnar í máli og myndum. Guðmundur tekur saman.
Þróunarsaga kirkugarðsins. Guðmundur tekur saman.
Veita viðurkenningar fyrir áratuga starf í söng og starfi.
80 ára saga kirkjukórsins í máli og myndum.
Saga unglingakórs og barnakórs í máli og myndum.
Bjóða fyrrverandi söngfólki að koma og taka þátt.
Kalla fram tónlistafólk sem er uppalið í Selfosskirkju og náð hefur frama.
Saga Kvenfélags Selfosskirkju.
Til video af fyrstu skóflustungunni.
Björn og Örn fóru á fund Sigfúsar Kristinssonar til að fá sögu kirkjunnar sem Guðmundur bróðir hans hafði tekið saman. Sigfús ætlar að finna þetta til og þeir að munu sækja fljótlega.
Gengið hefur verið frá makaskiptasamning og afsali vegna bílastæða við Þóru Valdísi Valgeirdóttur sem á Selfoss II.
Búið er að leysa aðstöðu fyrir ræstinguna.
Flísarnar á tröppurnar eru komnar og verður farið fljótlega í að laga tröppurnar
5. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið 18:45 Fundaritari Guðrún Tryggva
3. fundur sóknarnefndar Selfosskirkju haldin þriðjudaginn 22. Apríl kl. 17:00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Þórður Grétar Árnason, Guðmundur Búason, Elínborg Gunnarsdóttir, Páll Ingimar Björgvinsson, Jóhann Snorri Bjarnason, Örn Grétarsson, Guðrún Guðbjartsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Guðbjörg Arnardóttir.
1. Fundur settur
2. Hugmyndaflug að afmælisári.
Björn fór yfir nokkra hugmyndir varðandi 70 ára afmæli kirkjunnar.
Spurt hvort ætti að halda upp á þetta í einu viku eða dreifa yfir lengri tíma.
Hugmynd frá Edit að hafa sérstakar messur og ólíkar messur hverja helgi í mars.
Fá Biblíusafn Sigurðar Pálssonar og hafa það til sýnis.
Hafa ljósmyndasýningu af ólíkum myndum af kirkjunni.
Gera skrá yfir alla presta sem hafa þjónað í Selfosskirkju, myndir og upplýsingar.
Gera skrá yfir alla starfsmenn Selfosskirkju, myndir og upplýsingar.
Nafnalisti yfir alla sem átt hafa sæti í sóknarnefnd.
Byggingasaga Selfosskirkju í 70 ár, í máli og myndum.
Þróunarsaga kirkjugarðsins.
Kirkjukórinn, 80 ára saga í máli og myndum.
Unglingakórinn, saga hans í máli og myndum.
Barnakór Selfosskirkju, saga hans í máli og myndum.
Bjóða fyrrverandi söngfólki að koma og taka þátt, kalla fram tónlistarfólk sem er uppalið í Selfosskirkju-Selfossi og ná hefur frama.
Jóhann segir að kórinn sé að vinna með ýmsar hugmyndir af því að halda upp á afmælið.
Jóhann og Örn hafa hitt Guðmund Brynjólfsson og Lýð Pálsson á Eyrarbakka til að fara yfir möguleika á einhvers konar útgáfu varðandi sögu kirkjunnar.
Fólk almennt jákvætt fyrir að fara í vinnu við útgáfu af sögu kirkjunnar, það yrði ekki prentað í bók heldur gefið út í PDF og jákvætt ef hægt væri að opna aðgang að því í kringum afmælið. Sóknarnefnd mun heyra í þeim aðilum sem talið er að eigi gögn um sögu kirkjunnar.
Gjaldkeri lagði til að gerð yrði kostnaðaráætlun.
Guðbjörg greindi frá því búið er að bjóða Biskupi Íslands að taka þátt í hátíðarmessu 29. mars kl. 14:00 2026 og hún þáði boðið.
3. Önnur mál
Örn og Guðbjörg fóru á hérðasfund í Vestmannaeyjum, Örn lagði fram skýrsluna sem lögð var fyrir fundinn. Fundurinn gekk vel. Guðbjörg greindi frá að prófastur ætli sér að kalla saman formenn og gjaldkera sóknanna í prófastdæminu til fundar.
Björn sagði frá að Kirkjugarðaþing yrði haldið í Hveragerði 3. maí kirkjuvörður mun fara á fundinn. Björn hvatti þau sem áhuga hafa að sækja fundinn.
Spurt var um hvernig heimasíðugerð stæði, Guðbjörg mun athuga það. Bent var á að mikilvægt væri að á heimasíðunni yrðu m.a. reglur yfir hvernig minningarskildir eiga að líta út sem fara á minningarsteina í kirkjugarði. Þórður hefur verið að kynna sér þetta.
Guðmundur ræddi um hugmynd af því að nútímavæða nótnasafn kirkjukórsins. Organisti og einhverjir í kórnum eru farin að nota rafrænt nótnasafn. Búið er að kaupa spjaldtölvu fyrir organista.
Rætt um að reyna að finna varanlegan stað fyrir hreingerningavagninn. Þórður mun kanna málið.
Guðmundur spurði eftir upplýsingum um stöðu mála á samskiptum við bæjaryfirvöld varðandi nýjan kirkjugarð. Björn mun senda sóknarnefnd bréf sem honum hefur borist. Ítrekað var um mikilvægi þess að málið verði látið ganga greiðar og þörf væri á skýrari svörum.
Björn hefur rætt við byggingafulltrúa varðandi bílastæðin á túninu við Selfossbæina. Vilji er fyrir því að klára þau fyrir mars á næsta ári.
Hreinsunardagurinn er nk. laugardag, mæting kl. 10:00. Farið verður í að auglýsa og kynna daginn.
Björn þakkaði þeim sem tóku þátt í morgunkaffinu á páskadagsmorgun. Gekk allt saman vel og gerður góður rómur að.
Fundargerð upplesin og fundi slitið.
Guðbjörg Arnardóttir ritaði fundargerð.
2 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 25.mars. 2025. kl. 17.00
Mætt voru: Þórður G. Árnason, Guðmundur Búason, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Örn Grétarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Þórður setti fundinn í forföllum Björns Inga. Hann þakkaði fyrir ánægjulegt síðdegi í kirkjunni á sunnudag sl. á hátíð kóranna þar sem allir kórar kirkjunnar sungu ásamt Kristjönu Stefánsdóttur og Miklos Dalamy undirleikara.
Lóðareigendur Selfossbæjar hafa endanlega hafnað því að selja sveitarfélaginu Árborg land undir stækkun á kirkjugarðinum.
Búið er að panta nýjar flísar, Múr og Mál munu sjá um að laga tröppurnar og leggja nýju flísarnar.
Páskamessan verður að vanda kl. 8:00 á páskadag, sóknarnefnd mun bjóða upp á kaffi að lokinni messu.
Hreinsunardagur verður 26. apríl, byrjum kl. 10:00 og boðið verður upp á veitingar í hádeginu.
Þórður hvetur til þess að vaxkertanotkun verði minnkuð í kirkjunni.
Örn og sr. Guðbjörg ætla að fara á héraðsnefndarfundinn í Vestmannaeyjum um næstu helgi.
Sóknarnefnd styrkti þátttöku krakka á Landsmót Æskulýðsfélaga sem haldið var í Vatnaskógi núna í mars. 17 krakkar fóru á mótið.
Það þarf að setja upp snjógildrur á vestur og norðurhlið safnaðarheimilis, Þórður ætlar að taka verkið að sér.
Eyjólfur hrósaði Instagramm síðu Selfosskirkju.
Fundi slitið 18:00
Fundaritari Guðrún Tryggva
1 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 25.feb. 2025. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Páll B. Ingimarsson, Örn Grétarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadótir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn og bauð þær Elínborgu Gunnarsdóttur og Hafdísi Kristjánsdóttur velkomnar í sóknarnefnd.
Fundartíminn verður áfram kl. 17:00 fjórða þriðjudag í mánuði.
Formaður Björn Ingi Gíslason
Ritari Guðrún Tryggvadóttir
Gjaldkeri Guðmundur Búason
Meðstjórnendur, Guðrún Guðbjartsdóttir, Páll B. Ingimarsson, Eyjólfur Sturlaugsson og Hafdís Kristjánsdóttir.
Varamenn:
Jóhann Snorri Bjarnason, Örn Grétarsson, Arnar Guðmundsson, Hrjóbjartur Eyjólfsson, Petra Sigurðardóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Ólafur B. Haraldsson, Sigurður Jónsson og Sigurbjörn Kjartansson.
Safnaðarfulltrúi Þórður G. Árnason og til vara Páll B. Ingimarsson
Hreinsunadagurinn verður 26. apríl kl. 10:00.
Afmælisnefndin verður í höndum sóknarnefndar, afmælisdagur kirkjunnar er 25. mars hátíðarmessa yrði 29. mars 2026 eftir hádegi.
Í afmælisritnefndinni verða Jóhann Snorri Bjarnasson, Fjóla Kristinsdóttir og Örn Grétarsson
Leitað hefur verið eftir tilboði í að laga og uppfæra heimasíðu Selfosskirkju. Pineapple ehf. bauð 527 þúsund með vsk. og ákveðið var að fá þá í verkið.
Guðmundur Búason hefur rætt við Gylfa hjá Slegið ehf sem sá um slátt og umhirðu hjá kirkjunni og kirkjugarðinum í fyrra, ákveðið var að semja við þá aftur því ánægja var með þjónustuna í fyrra.
Gera þarf við kirkjutröppurnar fyrir framan kirkju og safnaðarheimili í sumar og ætlar Guðmundur Búason að semja við Múr og Mál.
Björn upplýsti fundinn um að hluti af sóknarnefnd hitti Braga Bjarnason bæjarstjóra 13. febrúar þar sem aðal fundarefnið var nýr kirkjugarður. Björn ætlar að skrifa formlegt bréf til bæjarráðs vegn nýs kirkjugarðs.
Fundi slitið 18:10
Fundaritari Guðrún Tryggva
Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 2025
fyrir starfsárið 2024
Haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju miðvikudaginn 19. febrúar 2025 kl. 20.00 15 mættu á fundinn.
Björn Ingi Gíslason setti fundinn, hann bar fundarboðið undir fundargesti og var engin athugasemd gerð.
Björn Ingi lagði til að Elínborg Gunnarsdóttir yrði fundarstjóri og Guðrún Tryggvadóttir fundarritari og var það samþykkt.
Björn Ingi formaður sóknarnefndar gerði fyrst grein fyrir sl. starfsári.
Sr. Guðbjörg byrjaði á að hrósa sóknarnefndinni áður en hún talaði um skýrslu presta og einnig talaði hún um skýrslu Sjafnar æskulýðsfulltrúa en hún gat ekki verið á fundinum.
Jóhann Snorri flutti skýslu kórsins því Edit gat ekki mætt.
Framangreindar skýrslur fylgja fundargerðinni sem fylgiskjöl.
Gjaldkerinn, Guðmundur Búason gerði grein fyrir reikningum. Reikningarnir voru samþykktir samhljóða.
Selfosskirkja Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
90.130.585 | 94.480.972 | 387.976 | |
Efnahagsreikningur | Fastafjármunir | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
658.192.660 | 72.184.918 | 730.377.578 | |
Kirkjugarður Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 19.204.392 | 16.131.771 | 3.950.817 |
Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 19.639.383 | 22.991.536 | 22.991.536 |
Hjálparsjóður Selfosskirkju | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 283.053 | 81.849 | 201.204 |
Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 3.514.720 | 3.596.569 | 3.596.569 |
Síðasti Héraðsfundur var haldinn á Hellu en þar var sr. Halldóra prófastur kvödd, næsti fundur verður haldinn í Vestmannaeyjum en sr. Guðbjörg sagði frá.
Guðmundur Búason fór yfir fjárhagsáætlunina og var hún samþykkt samhljóða.
Þau fjögur sem eiga að ganga úr stjórn eru Jóhann Snorri Bjarnason, Fjóla Kristinsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason og Guðrún Tryggvadóttir.
Inn í stjórn koma Guðrún Tryggvadóttir heldur áfram Eyjólfur Sturlaugsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir
Úr varastjórn eiga að ganga Eyjólfur Sturlaugsson, Örn Grétarsson, Elínborg Gunnarsdóttir og Petra Sigurðardóttir. Inn í varastjórn voru kosin Jóhann Snorri Bjarnson, Örn Grétarsson, Petra Sigurðardóttir.
Skoðunarmenn voru kosin þau Kristín Pétursdóttir og Sigríður Erlingsdóttir og til vara Krístín Traustadóttir og Guðbjörg Guðjónsdóttir.
Fjóla Kristinsdóttir þakkaði fyrir sig í þessi 8 ár sem hún var í sóknarnefnd.
Guðmundur Búason þakkaði starfsfólki kirkjunnar fyrir frábært starf.
Sigurbjörn Kjartansson benti á að laga þyrfti tvo staura við ána og spurði einnig hvort nýr kirkjugarður væri ekki að fara í Laugadæli?
Björn og Guðný svöruðu að staurarnir væru á áætlun.
Björn upplýsti að framtíðarstaður nýs kirkjugarðs væri alfarið á höndum bæjarstjórnar Árborgar.
Fundi slitið 21:20
,
6 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. jan. 2025 kl. 17:00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Jóhann S. Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Páll B. Ingimarsson, Örn Grétarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir, Guðný Sigurðardóttir og Guðrún Tryggvadótir sem ritaði fundinn.
Björn Ingi setti fundinn.
Ákveðið að halda fundinn 19. febrúar kl. 20:00.
Verður í Vestmannaeyjum 29. mars ef ekki verður fært til Eyja þá er Selfosskirkja til vara.
Verður í Hveragerði 3. maí.
Nefndin sem skipuð var til að athuga með skrif á sögu kirkjunnar er að vinna í málinu.
Á næsta fundi verður skipuð afmælisnefnd.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið 18:40
Fundaritari Guðrún Tryggva
5 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 26. nóv. 2024 kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Fjóla S. Kristinsdóttir, Jóhann S. Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Páll B. Ingimarsson, Örn Grétarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadótir sem ritaði fundinn.
Björn Ingi setti fundinn.
Jóhann og Fjóla sögðu okkur frá því sem þau voru búin að kanna. Hugmyndin var rædd, ákveðið var að halda áfram með þessa hugmynd og leggja svo fyrir aðalfund fárhagsáætlun fyrir verkefnið.
Björn var ásamt fleirum við innsetningu nýs prófasts suðurkjördæmis, sr. Óskars Óskarssonar í Hruna og við bjóðum hann velkominn
Nýr meðhjálpari Bryndís Rós Viðarsdóttir hefur hafið störf hjá kirkjunni, hún er boðin velkomin til starfa.
Rætt var um leigu á kirkjunni og safnaðarheimilinu sem þarf alltaf að vera í endurskoðun.
Gjaldið fyrir ljósakrossana í kirkjugarðinum hefur verið hækkað úr 5.500 í 6.000
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið 18:10
Fundaritari Guðrún Tryggva
4. fundur sóknarnefndar haldinn 22. Október kl. 17:00.
Mætt voru: Þórður G. Árnason, Guðmundur Búason, Elínborg Gunnarsdóttir, Fjóla S. Kristinsdóttir, Jóhann S. Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Sjöfn Þórarinsdóttir, Hreinn Þorkelsson, Guðbjörg Arnardóttir em ritaði fundargerð.
Dagskrá
Fundur settur
Þórður setti fund og bauð fundarfólk velkomið
Yfirlit yfir starfið í vetur
Guðbjörg fór yfir safnaðarstarfið í vetur sem er með hefðbundnum hætti. Kyrrðarbænir eru á þriðjudögum í hádeginu og morgunbænir miðvikudaga kl. 10:00. Þriðjudagssamverur annan hvern þriðjudag. Prestarnir heimsækja hjúkrunarheimilin reglulega sem og dagdvalirnar í Árborg. Fermingarstörfin ganga vel og eru um 150 fermingarbörn skráð í Árborgarprestakalli. Fyrirlestur um sorg og áföll verður nk. miðvikudag og samtalshópar í kjölfarið. Messurnar í prestakallinu eru vel sóttar og þær sem hafa verið með óhefðbundum hætti mælst vel fyrir. Foreldramorgnar eru á miðvikudögum.
Sjöfn fór yfir barna- og æskulýðsstarfið. Krílasálmar eru tónlistarstund fyrir yngstu börnin eru á undan foreldramorgnum á miðvikudögum. Sunnudagaskólinn er á sínum stað alla sunnudaga kl. 11:00 í nýja safnaðarheimilinu. Kirkjukrakkar er staf fyrir krakka í 1.-4. Bekk. TTT er fyrir 10-12 ára, framundan er árleg hrekkjavökukvöldvaka, einnig munu þau sækja NTT mó í Vatnaskógi eftir áramót. ÆSKÓ er fyrir krakka í 8.-10. bekk og er mjög vel sótt og þar eru jafnvel krakkar sem hafa sótt barnastarf kirkjunnar í fleiri ár. Leiðtogar eru fáir en öflugir og mikilvægt að kirkjan hlúi að þeim krökkum sem hafa áhuga á að leggja sitt á vogarskálarnar. Stóru viðburðir vetrarins eru Æskulýðsmót og Landsmót æskulýðsfélaga, hrekkjavökukvldvaka, jólaballa og vorhátíð kirkjunnar. Janframt er þátttaka í menningarlífi sveitarfélagsins, t.d. með því að flagga regnbogafánanum í Hinsegin viku Árborgar og taka þátt í Vor í Árborg. Einnig er Selfosskirkja móttökustaður fyrir Jól í skókassa.
Sjöfn óskaði eftir að krakkar sem eru að aðstoða við barnastarfið fái greitt þátttökugjöld á mót sem þau fara á. Mun Sjöfn senda sóknarnefnd formlegt erindi vegna þess.
Organisti boðaði forföll og því var ekki farið yfir kórastarfið.
Kirkjuvörður fór yfir sitt starfssvið. Starfið fer vel af stað og góður samstarfsandi í kirkjunni. Það er nóg um að vera og suma daga í mörg horn að líta og hafa þarf yfirsýn yfir marga ólíka hluti.
Önnur mál
Farið verður í tröppurnar á kirkjunni þegar viðrar til þess.
Horft er til þess að fá tilboð í hljóðdúk í Nýja Safnaðarheimili.
Guðmundur hefur áfram verið að skoða tilboð vegna stóla og borða. Áætlað er að kaupa borð fyrir allt 160 manns, einnig hefur verið skoðað að kaupa nýja stóla. Yrði þetta fjárfesting upp á 5.000.000, svar hefur borist frá Héraðssjóði um styrk vegna þessara kaupa upp á 1.200.000. Ákveðið að fara í þessa fjárfestingu. Í framhaldinu þarf að finna geymslupláss fyrir stólana.
Rætt um hjólagrindur, þörf er á að koma fyrir föstum hjólagrindum við kirkjuna. Þórður var búin að kanna hjólagrindur frá Vélsmiðju Suðurlands og mun kanna á fleiri stöðum. Vilji til þess að fylgja þessu eftir og koma inn á fjárhagsáætlun.
Guðbjörg mun uppfæra netfangalista sóknarnefndar og varasóknarnefndar.
Guðmundur er búin að eiga samtal við formann sóknarnefndar Laugardælasóknar varðandi sóknarmörk, tók hann vel að í sóknarmörk í nýrri byggð, Árbakkalandi, yrðu endurskoðuð komi til þess að byggðin verði í Laugardælasókn.
Fjóla er búin að heyra í Sveitarfélaginu varðandi styrk vegna æskulýðsstarfs og er málið í vinnslu.
Rætt um kirkjugarðinn.
Rætt um útleigu á Safnaðarheimilinu þegar um erfidrykkjur er að ræða. Umsjón með því hefur kirkjuvörður.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
3. fundur sóknarnefndar Selfosskirkju haldin fimmtudaginn 26. September kl. 17:00.
Mætt voru: Guðmundur Búason, Þórður Grétar Árnason, Páll Ingimarsson, Jóhann Snorri Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Fjóla Kristinsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason, Guðbjörg Arnardóttir sem ritaði fundargerð.
Fundur settur
Björn setti fund. Ræddi fundartíma og samþykkt var að halda sig við það að funda fjórða þriðjudag í mánuði kl. 17:00.
Staða fjármála eftir framkvæmdir sumarsins
Gjaldkeri fór yfir fjármálin. Í sumar var ákveðið að fara í það að mála alla kirkjuna, bæði þök, útveggi og glugga, áður hafði verið fyrirhugað að gera þetta í tvennu lagi. Ódýrara var að gera þetta allt í einu lagi fyrst öll tæki og aðbúnaður var að kominn á staðinn. Einnig hefur verið skipt um gler í gluggum. Kostnaður við þessar framkvæmdir sem og aðrar fyrr á árinu er í kringum 15.000.000. Er kostnaðurinn innan þeirra marka sem búið að var að áætla í samþykktri fjárhagsáætlun. Framundan er að laga tröppur við kirkjuna.
Hugmynd að ráðningu vegna barna- og unglingakóra
Edit, kórstjóri barna- og unglingakórs hefur óskað eftir því að sóknin ráði við hlið hennar Bergþóru Kristínardóttir til þess að starfa með henni við kórstjórn Barnakórsins. Ekki liggur fyrir endanlegur kostnaður vegna þess. Sóknarnefnd er sammála að styðja við kórastarfið með þessum hætti og gjaldkeri falið að ganga til samninga við hana.
Önnur mál
Þórður hafði orð á því að kirkjuvörður óskaði eftir því að fá fleiri stóla í safnaðarheimilið.
Rætt um borðin í safnaðarheimilinu, sem eru mjög óhentug, þung og erfitt fyrir eina manneskju að forfæra. Gjaldkeri sýndi mynd af felliborðum, sem eru mjög meðfærileg. Hann er búin að óska eftir tilboði í 30 borð, kostnaður er um 2.700.000. Samþykkt að kanna verð á stólum sem og borðum. Einnig verður reynt að sækja um styrk í Héraðssjóð.
Gjaldkeri óskaði eftir umboði til þess að ræða við sóknarnefnd Laugardælasóknar. Þar myndi hann ræða breytingu á sóknarmörkum þannig að ný íbúabyggð í Árborg muni tilheyri Selfosssókn.
Björn hefur átt samtal við bæjarstjóra Árborgar vegna kirkjugarðsins til þess að halda umræðunni áfram um nýjan kirkjugarð. Brýnt að halda áfram viðræðum.
Rætt um styrk sem sóknarnefnd hefur fengið frá sveitafélaginu vegna barna- og æskulýðsstarfs. Styrkurinn hefur ekki borist fyrir síðasta ár og ekki þetta. Verður farið í að kanna það betur.
Björn lagði fram Árbók kirkjunnar þar kemur fram að í Selfosssókn búa 10.124, í Þjóðkirkjunni eru 7.063 og gjaldendur eru 5.605.
Í kirkjuviku Þjóðkirkjunnar sem haldin var í september tók Kirkjukór Selfosskirkju þátt í sálmafossi og hluti af kórfélögum voru heiðraðir fyrir starf í kórnum í 30 ár eða lengur.
Björn lagði til að skipuð yrði nefnd til að fara yfir hvort gefa ætti út blað í tilefni af afmæli kirkjunnar og kirkjukórsins árið 2026. Jóhann Bjarni, Fjóla og Guðmundur Björgvin. sett í nefndina.
Þórður sem safnaðarfulltrúi hefur mætt á tvo starfmannafundi hjá starfsfólki sóknarinnar.
Á þriðjudagssamveru nk. þriðjudag sem er hluti af safnaðarstarfi sóknarinnar verður næsti gestur nývígður biskup Guðrún Karls- Helgudóttir.
Búið er að ráða nýjan aðstoðarkirkjuvörð, Hreinn Þorkelsson hefur verið ráðinn og búið að gera við hann samning.
Fundargerð upplesin
Fundi slitið
2 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 23. apríl 2024 kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Örn Grétarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn
Rædd var gjaldskrá og gjaldtaka fyrrir kirkju og safnaðarheimilið.
Þrír sóttu um aðstoðarkirkjuvörð, öll voru teknir í viðtal. Tekin var ákvörðun að semja við einn umsækjanda. Guðmundur Búa og Guðný tóku að sér að semja við hann.
Hreinsunardagurinn verður næsta laugardag hefst kl. 10:00. Grillaðar verða pyslur.
Starfsmanna hittingur verður í haust.
Önnur umferð biskupskosninga verða í byrjun maí.
Fimm tilboð komu í málingavinnu á þökum kirkjunnar og safnaðarheimilinu. Guðmundur Búason og Þórður Árnason ætla að byrja að ræða við þann sem bauð lægst í verkið.
Búið er að semja við Sláttuþjónustu Suðurlands um slátt og umhirðu á kirkjugarði og umhverfi kirkjunnar.
Fundi slitið kl. 18:10
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
1 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 26. mars 2024 kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Örn Grétarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Eyjólfur Sturlaugsson, Guðný Sigurðardóttir, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
1. Fundur settur.
Björn Ingi setti fundinn.
2. Uppsögn aðstoðarkirkjuvarðar.
Íris Mjöll Valdimarssdóttir hefur sagð upp starfi aðstoðarkirkjuvarðar. Auglýst verður eftir nýjum aðstoðarkirkjuverði.
3. Önnur mál. m.a. tilboð í garðslátt, vorhittingur ofl.
Guðmundur Búason hefur fengið tilboð í garðsláttinn frá Sláttuþjónustu Suðurlands, Helgi Hermannsson er þar í forsvari. Samþykkt var að semja við hann.
Hreinsunardagurinn 27.apríl ræddur.
Páskakaffið rætt, mæting kl. 7:00.
Umræða var um hitting sóknarnefndar og starfsfólks, ákveðið var að skipa sr. Guðbjörgu, Guðnýju og Guðrúnu Tr. í skemmtinefnd.
Guðmundur Búason sagði að áhugi væri á að mála þökin. Hann kom auglýsingu inn á síðu hjá málarameistarafélaginu.
Héraðsfunur Suðurprófstdæmis verður hanldinn á Hellu 6. apríl frá kl. 11 til kl. 15 allir velkomnir, sr Halldóra mun hætta sem prófastur í nóv.
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl. 18:15
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
7. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 27. feb. 2024 kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Örn Grétarsson, Arnar Guðmundsson, Elínborg Gunnarsdóttir, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
1. Fundur settur.
Björn Ingi setti fundinn.
2. Ákvörðun um Aðalsafnaðarfund.
Aðalsafnaðarfundurinn verður haldinn 21. mars kl. 17:00. Fundarstjóri verður Elínborg Gunnarsdóttir og ritari Guðrún Tryggvadóttir. Guðmundur Búason kom með endurskoðaða reikninga, þeir voru samþykktir og undirritaðir.
3. Önnur mál.
Kynningarfundur vegna biskupskjörs hefur verið boðaður 18. mars frá kl 17:00 til 19:00, kostningar fara fram 11. til 16. apríl
Búið er að óska eftir tilboði frá Garðlist fyrir sláttinn næsta sumar, Guðmundur Búason ætlar að athuga fleiri fyrirtæki.
Búið er að boða Héraðsfund 6. apríl.
Hreinsunardagurinn verður 27. apríl og byrjar kl. 10:00
Laga þarf heimasíðu kirkjunnar, kirkjukórinn vill vera með undirsíðu.
Guðmundur Búason ætlar að athuga hvað kostar að auglýsa messur á Rás 1.
Páskamessa verður 31. mars kl. 08:00 boðið verður upp á morgunkaffi að messu lokinni.
Birni Inga falið að skrifa grein til að kynna skattaafsláttinn Almannaheillaskrá.
Guðmundur Búason hefur kannað verð á að mála þökin á Selfosskirkju, turninum og safnaðarheimilinu svo að þökin veri öll í sama lit. Auglýsa þarf eftir áhugasömum málurum
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl. 18:15
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
6. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 23. jan. 2024. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Örn Grétarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Guðmundur Búason fór yfir drög að ársreikning fyrir kirkjuna og kirkjugarðinn. Einnig kynnti hann fjárhagsáætlun fyrir 2024 bæði fyrir kirkuna og garðinn. Ánægja er með reikningana.
Ákveðið hefur verðið að gefa út kynningarbækling fyrir Selfosskirkju sem verður á íslensku og ensku. Frágangsnefnd var skipuð sr. Guðbjörg, Jóhann og Örn en markmiðið er að gefa bæklinginn út á þessu ári.
Sr. Guðbjörg fór yfir mætingu í messur á sunnudögum sl ár, fjölgun er á milli 2022 og 2023. Rætt var um fjölbreytileika í messuhaldi.
Starfsmannafundir eru haldnir einu sinni í viku, ákveðið var að safnaðarfulltrúinn Þórður G. Árnason myndi mæta inn á fund einu sinni í mánuði í það minnsta.
Fyrirhugaður er fundur með Garðlist.
Þórður spurði hvernig fyrirkomulag væri á öryggiskerfinu, kirkjuverði falið að skoða.
Guðmundur Búason sýndi okkur mynd af kirkjunni sem Sigurjón Erlingsson málaði eftir mynd sem tekin var 1984. Hann hefur fært kirkjunni myndina að gjöf með ósk um að myndin verði hengd upp í safnaðarheimilinu og verður henni komið fyrir á góðum stað. Er honum þakkað fyrir myndina.
Gengið var frá staðfestingu á makaskiptum á landi fyrir bílastæðið á Selfosstúninu.
Fundi slitið kl. 19:05
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
8. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 24. jan. 2023. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Örn Grétarsson, Guðný Siguðardóttir, sr. Gunnar Jóhannesson, sr. Arnaldur Bárðarson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn og óskaði sr. Arnaldi til hamingju nýja embættið.
Sóknarnefnd vill hafa 7 í valnefndinni og sendir beiðni um það til prófasts. Þeir sem tilnefndir eru í valnefndina eru Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll B. Ingimarsson, Fjóla Kristinsdóttir, Guðmundur B. Gylfason og Guðrún Tryggvadóttir
Guðmundur Búason fór yfir ársreikninga 2022 fyrir Selfosskirkju og kirkjugarðinn.
Það þarf að bæta lýsingu fyrir framan kirkjuna og norðan við kirkjuna allt það sem núna er orðið ónýtt. Búið er að sækja um framkvæmdaleyfi til að útbúa bílastæði inn á Selfosstúnið, sem við eigum. Skipta þarf um gler í nokkrum gluggum og setja eldvarnargler í staðin.
Færa þarf einn krana úti kirkjugarði sem oft er keyrður niður.
Fundi slitið kl. 18:35.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
9. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. feb. 2023. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarsson, Guðrún Guðbjartsdóttir, Fjóla Kristinsdóttir Eyjólfur Sturlaugsson, Elínborg Gunnarsdóttir, sr Axel Árnason Njarðvík og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Guðmundur Búason dreifði fjárhagsáætlun fyrir 2023, hann fór yfir helstu atriðin og svo samþykkti fundurinn áætlunina.
Fundurinn verður haldinn kl 17:00, allir sem verið hafa í stjórn sl 4 ár og eiga að ganga úr stjórn gefa kost á sér áfram til endurkjörs.
Guðný kirkjuvörður lagði fram ýmsar óskir sem reynt verður að uppfylla.
Fundi slitið kl. 18:35.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 2023
fyrir starfsárið 2022
Haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju þriðjudaginn 11. Apríl kl. 17.00 20 mættu á fundinn.
Björn Ingi Gíslason formaður setti fundinn, hann bar fundarboðið undir fundargesti og var engin athugasemd gerð. Hann gerði grein fyrir að hér væri um að ræða endurtekinn fund þar sem fyrri aðalsafnaðarfundur hafði reynst ómerkur þar sem hann var ekki boðaður með tilskildum hætti.
Björn Ingi lagði til að Örn Grétarsson yrði fundarstjóri og Guðrún Tryggvadóttur fundaritari. Ekki komu fram aðrar tillögur og tóku þau til starfa.
Formaður sóknarnefndar Björn Ingi Gíslason las skýslu sína og vísaði að hluta til flutnings hennar á fyrri fundi.
Sr. Gunnar Jóhannesson las skýslu presta og vísaði til yfirferðar á fyrri fundi um smáatriði. Þar sagði sr. Axel Árnason Njarðvík frá tilrauna verkefni sem hann og Guðmundur Brynjólfsson djákni sjá um en þetta er í fyrsta sinn sem svona samvera er hér í kirkjunni. Tekin verður fyrir glíma karla við sorg og áföll í tali og samtali. Hópurinn hittist fjögur kvöld í mars.
Vísað var til fyrri skýrslu æskulýðsfulltrúa Sjafnar Þórarinsdóttir.
Vísað var til skýrslu kórstjóra, Edit A Molnár sem hafði verið með myndir úr starfinu samhliða upp á breiðtjaldi sem var mjög skemmtilegt.
Vísað var til flutnings formanns kirkjukórs Jóhanns Snorra Bjarnasonar á skýrslu um starf kirkjukórsins.
Framangreindar skýrslur fylgja fundargerðinni sem fylgiskjöl.
Gjaldkeri Guðmundur Búason gerði grein fyrir reikningum. Reikningar Selfosskirkju voru samþykktir samhljóða. Reikningar kirkjugarðsins voru samþykktir samhljóða.
| Selfosskirkja Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 74.355.560 | 60.644.468 | 13.711.092 | |
| Efnahagsreikningur | Fastafjármunir | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 606.191.660 | 57.352.449 | 663.544.109 | |
| Kirkjugarður Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 15.797.718 | 14.306.065 | 1.491.653 | |
| Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 14.874.569 | 17.014.944 | 17.014.944 | |
| Hjálparsjóður Selfosskirkju | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 100.479 | 500.000 | (399.521) | |
| Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 3.604.018 | 3.604.018 | 3.604.018 |
Ekkert
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
Gjaldkeri Guðmundur Búason fór yfir áætlanir fyrir bæði kirkjuna og kirkjugarðinn
Enginn gerði athugasemd og voru þeir samþykktir samhljóða.
Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll Ingimarsson og Guðrún Guðbjartsdóttir áttu að ganga úr stjórn, þau gáfu öll kost á sér til endurkjörs. Fleiri framboð bárust ekki og voru þau endurkjörin með lófaklappi.
Úr varastjórn áttu að ganga Eyjólfur Sturlaugsson, Ragna Gunnarsdóttir, Sigurður Jónsson, Margrét Óskarsdóttir og Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir. Eyjólfur, Ragna og Sigurður gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í varastjórn. Auk þeirra gáfu kost á sér til varastjórnar: Arnar Guðmundsson og Ólafur Backmann. Fleiri framboð bárust ekki til setu í varastjórn og voru þau kosin með lófaklappi.
Skoðunarmenn voru kosin þau Kristín Pétursdóttir og Guðmundur Theodórsson og til vara Leifur Guðmundsson og Sigríður Erlingsdóttir.
Engar kosningar
Björn Ingi minnti á að innan 3 ára verður kirkjan 70 ára og kirkjukórinn 80 ára
Hann sagði frá mögnuðum tónleikum sem haldnir voru hér í Selfosskirkju laugardaginn 8.apríl
Einnig sagði hann frá óvæntum fundi af upptöku vígslu kirkjunnar sem voru á leiðinni á haugana
Frá fyrri fundi var bókað eftirtalið:
Sigurbjörn Kjartansson spurði hvernig staðan væri með nýjan kirkjugarð.
Hann sagði líka frá starfi vinir í bata.
Björn Ingi upplýsti að ekki er ennþá vitað hvar nýr kirkjugarður verður.
Björn Ingi upplýsti einnig að ekki væri búið að ráða einhvern til að sjá um umhirðuna í kringum kirkjuna og kirkjugarðinn
22. apríl verður hreinsunardagur kringum kirkjuna og í kirkjugarðinum
Fundi slitið kl. 17:35.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
1. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 25. apríl. 2023. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Eyjólfur Sturlaugsson, Örn Grétarsson, Vilhjálmur E. Eggertsson fulltrúi í Hjálparstarfi kirkjunnar og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Lagt var til óbreytt verkaskipting:
Formaður Björn Ingi Gíslason
Gjaldkeri Guðmundur Búason
Ritari Guðrún Tryggvadóttir
Guðrún Guðbjartsdóttir
Jóhann S. Bjarnason
Páll B. Ingimarsson
Guðmundur B. Gylfason
Varmenn:
Eyjólfur Sturlaugsson
Örn Grétarsson
Elínborg Gunnarsdóttir
Arnar Guðmundsson
Ólafur Bachmann
Ragna Gunnarsdóttir
Sigurður Jónsson
Petra Sigurðardóttir
Sigurbjörn Kjartansson
Innsetning sr. Ástu Bjarkar sem prests verður sunnudaginn 30. apríl kl. 11:00, boðið verður upp á kaffi og veitingar.
Garðsláttur og lóð, Guðmundur Búason fær umboð til að semja við verktaka sem hann hefur verið í sambandi við um slátt og umhirðu við kirkjuna og kirkjugarðinn.
Vilhjálmur E. Eggertsson sem er fulltrúi Selfosskirkju í Hjálpastarfi kirkjunnar sagði frá þeim verkefnum sem hjálparstarfið styður innanlands og erlendis.
Gjöf sem gefur er aðalfjáröflun þessa starfs.
Anna Jakobína Hilmarsdóttir aðstoðarkirkjuvörður hefur sagt starfi sínu lausu.
Auglýsa þarf eftir aðstoðarkirkjuverði.
Kirkjugarðsþing verður haldið á Akureyri 6. maí.
Sóknarnefnd þakkar öllum þeim sem hjálpuðu til við kaffið á páskadagsmorgun og einnig þeim sem tóku þátti hreinsunardeginum laugardaginn 22. apríl
Rætt var hvort og þá hvernig ætti að skrifa sögu kirkjunnar og sögu kirkjukórsins, öll samála um að það væri nauðsynlegt.
Fundi slitið kl. 18:40.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
2. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 23. maí. 2023. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Örn Grétarsson, sr. Gunnar Jóhannesson, Guðný Sigurðardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Tvær umsóknir hafa þegar borist í starf aðstoðarkirkjuvarðar en umsóknarfestur er til 25.maí.
Búið er að semja við Garðlist um slátt á kirkjugarðinum og svæðið í kringum kirkjuna.
Ennþá vantar einhverja til að sjáum að hreinsa beðin. Þórður hefur tekið að sér nokkur beð.
Árvirkinn ætlar að yfirfara ljós og rafmagn allt í kringum kirkjuna og í kirkjugarðinu.
Selfossveitur klára hitalagnir sem byrjað var á í vetur.
Þórður ætlar að skipta um nokkrar rúður.
Græja þarf ný ruslaskýli leita á tilboða.
Bera þarf á útihurðir og ætlar Guðný að sjá um það.
Stefnt er á að stækka bílastæðin.
Endurgera þarf kynningarbækling um Selfosskirkju sem gefinn var út á nokkrum tungumálum. Guðný ætlar að leita tilboða.
Kjósa þarf vígslubiskup í sumar 6 til 12 júní.
Hugmynd að hafa tónleika með öllum kórum á Selfossi í október
Kjarasamningur organista var sendur til sóknarnefndar og við staðfestum samninginn.
Ritari sendi fundargerð á alla sem eru í sóknarnefnd og varamenn líka
Fundi slitið kl. 18:20.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
3. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 26. sept. 2023. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Guðmundur B. Gylfason, Arnar Guðmundsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir, Guðný Sigurðardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Fundartími verður áfram 4. þriðjudagur í mánuði kl. 17:00
Sóknarprestur, æskulýðsfulltrúi, organisti, kirkjuvörður.
Guðný kirkjuvörður fór yfir það sem búið er að gera í sumar. Óánægja er með sláttinn á kirkjugarðinum í sumar.
Sr. Guðbjörg sagði að kirkjustarfið væri allt farið á fullt aftur.
Íris Mjöll Valdimarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarkirkjuvörður.
Sjöfn Þórarinsdóttir æskulýðsfulltrúi upplýsti okkur um barnastarfið sem er komið á fullt, breyting hefur verið á skipulagi t.d. krakkar í kirkjukrakkastarfinu fara beint af fundi á kóræfingu barnakórsins. Ýmislegt spennandi er framundan t.d. útifata skiptifatamarkaður
Edit organisti fræddi okkur um hvað væri framundan, kirkjukórinn hefur vaxið, þá hefur líka fjölgað í ungingakórnum. Kolbrún Hulda mun aðstoða hana amk. fram að jólum.
Björn Ingi er búin að fara í heimsókn til Þóru Valdísar núverandi ábúanda á Selfossi 2 til að fá samþykki hennar um að gera bílastæðið sem Sigurgeir gaf kirkjunni. Hún ætlar að vera búin að svara fyrir næsta fund sem haldinn verður 24. okt.
Sóknarnefnd hefur borist bréf frá afkomendum Bjarna Pálssonar sem teiknaði kikjun þar sem þau hafa áhyggur hvað það eru margir litir á þökunum. Björn ætlar að svara bréfinu.
Valdimar Bragason er að vinna í nýjum upplýsingabæklingi um kirkjuna.
Sóknarnefnd mun styrkja þau sem fara á landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar sem haldið verður á Egilsstöðum.
Fundi slitið kl. 18:20.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
4. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 24. okt. 2023 kl. 17.00
Mætt voru: Þórður G. Árnason, Guðmundur Búason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll B. Ingimarson, Örn Grétarsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Þórður G. Árnason setti fundinn í forföllum Björns Inga.
Ekkert hefur gerst frá síðasta fundi, Þóra Valdís hefur ekkert svarað.
Óánægja var með umhirðuna sl sumar.
Eftir að búið var að ganga frá samningum við Garðlist sl. vor höfðu tvö önnur fyrirtæki samband við Guðmund gjaldkera og voru með áhuga á að slá garðinn.
Hvernig við leysum þetta næsta sumar þarf að ræða.
Huga þarf að því að mála þök og veggi að utan, setja okkur markmið að klára fyrir afmæli kirkjunnar 2026. Breyta þarf klósettunum sem eru í anddyri safnaðarheimilisins og nútímavæða þau. Þórður, Guðmundur Búa og Björn munu setja saman verkefnalista fyrir næsta fund.
Sóknarnefndin þarf að velja auka fulltrúa fyrir biskupskjör, sr Guðbjörg ætlar að kanna málð.
Umræða var um leigu á kirkjunni og var vitnað í samþykktir og nýverandi leigusamninga.
Fundi slitið kl. 18:15.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
5. fundur sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. nóvember kl. 17:00.
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll B. Ingimarsson, Guðmundur Björgvin, Jóhann Snorri Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Örn Grétarsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir
Dagskrá
Fundur settur
Framkvæmda- og viðhaldsáætlun kirkjunnar til ársins 2026
Búið er að undirrita samning um fjölgun 16 bílastæða við kirkjuna. Farið verður í að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir bílastæðin.
Áhersla verður lögð á að lagfæra útlit kirkjunnar.
Guðmundur hafði fyrir fund samband við verkfræðiskrifstofu um mögulegan kostnað vegna málningu á þaki kirkjunnar.
Nauðsynlegt er samhliða málun að meta ástand á þakinu.
Meta þarf ástand á útveggjum kirkjunnar.
Undirbúningsvinna við breytingu á salernisaðtöðu í anddyri safnaðarheimilis er hafin. Þórður hefur fengið tilboð frá tveimur aðilum vegna skilrúma. Stefnt er hefja vinnuna í janúar.
Fyrirhugað er að massa og lakka gólfið í safnaðarheimilinu í janúar.
Búið er að fá tilboð í upplýsingabæklinga um Selfosskirkju, ákveðið að láta prenta bæklinga á íslensku og ensku.
Ákveðið að Björn, Guðmundur og Þórður skipi nefnd til gera kostnaðaráætlun og hafa yfirumsjón með stærstu framkvæmdunum. Til vara verður Jóhann.
Vinnu við að skipta um gler kirkjunnar er að mestu lokið.
Önnur mál
Björn og Guðmundur fóru á fund Sjafnar Þórarinsdóttur æskulýðsfulltrúa til að ræða hennar starfskjör. Samþykkt að auka starfshlutfall æskulýðsfulltrúa í 80%.
Samþykkt að hafa óbreytt gjald vegna leiðislýsinga í kirkjugarði 5.500.-
Velja þarf kjörmann úr Selfosssókn vegna kjörs til biskups, ákveðið að velja Sjöfn Þórarinsdóttur.
Selfosskirkja mun fagna 70 ára afmæli 2026, hugmyndir ræddar hvernig halda mætti upp á afmæli kirkjunnar og verður umræðunni framhaldið á nýju ári.
Samþykkt að Hjálparsjóður Selfosskirkju styrki heimasíðugerð fyrir Sjóðinn góða.
Fundargerð upplesin og samþykkt
Fundi slitið
Fundargerð ritaði Guðbjörg Arnardóttir
1. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. mars. 2022 kl. 17:30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Eyjólfur Sturlaugsson, Örn Grétarsson, Petra Sigurðardóttir, Elínborg Gunnarsdóttir, sr. Arnaldur Bárðarson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Fundur settur. Björn Ingi setti fundinn.
Björn Ingi Gíslason formaður, Guðmundur Búason gjaldkeri, Guðrún Tryggvadóttir ritari, Þórður G. Árnason 1. varaformaður, Fjóla Kristinsdóttir 2. varaformaður. Meðstjórnendur: Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann S. Bjarnason, Páll B. Ingimarsson og Guðmundur Björgvin Gylfason.
Varastjórn: Eyjólfur Sturlaugsson 3.varaformaður, Örn Grétarsson, Petra Siguðardóttir, Sigurður Jónsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Kjartansson, Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir, Margrét Óskarsdóttir.
Þórður G. Árnason verður áfram safnaðarfulltrúi.
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju ætlar að koma í heimsókn 8. maí, eftir hádegi, tekið verður vel á móti þeim.
Páskamessa verður haldin í ár 17. apríl kl 8:00 eins og var fyrir Covid. Boðið verður upp á morgunkaffi að messu lokinni.
Sóknarmörk Selfosskirkju þarf að skoða en nýjasta byggðin á Selfossi er ekki öll undir Selfosssókn. Ákveððið var að Björn, Guðmundur og Guðrún myndu vera fulltrúar sóknarnefndar að ræða þetta við viðkomandi sókn.
Hreinsunardagur Selfosskirkju verður laugardaginn 23. apríl mæting verður kl 10:00, boðið verður upp á veitingar .
Aðeins var farið yfir viðhaldsverkefni sem framundan eru.
Danskur kór hefur óskað eftir því að fá að halda tónleika í kirkjunni 1. júlí nk.
Fundi slitið kl 18:55
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 2022
fyrir starfsárið 2021
Haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju þriðjudaginn 15. mars 2022 kl. 17.30
14 voru mættir á fundinn.
Björn Ingi setti fundinn
Formaður lagði til að Fjóla Kristinsdóttir yrði fundarstjóri og ritari Guðrún Tryggvadóttir og var það samþykkt.
Gjaldkeri óskai eftir því að dagskrá yrði breytt að fyrst yrðu teknir fyrir dagskrárliðir sem hann hefði framsögu um og var það samþykkt samhljóða.
Guðmundur Búason gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum Selfosskirkju, Hjálparsjóðs Selfosskirkju og Kirkjugarðs Selfoss. Allir reikningar voru samþykktir samhljóða.
| Selfosskirkja Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 73.421.217 | 66.369.932 | 7.051.285 | |
| Efnahagsreikningur | Fastafjármunir | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 519.767.660 | 40.585.332 | 560.352.992 | |
| Kirkjugarður Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 15.473.254 | 11.409.607 | 4.063.647 | |
| Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 13.382.916 | 15.062.655 | 15.061.655 | |
| Hjálparsjóður Selfosskirkju | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 68.182 | 0 | 77.123 | |
| Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 3.604.018 | 3.604.018 | 3.604.018 |
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2022.
Guðmundur kynnti rekstraráæltun fyrir 2022. Hún var samþykkt.
Formaður, prestar, æskulýðsfulltrúi, kórstjórar.
Björn Ingi formaður las skýrslu sóknarnefndar
Sr. Guðbjörg las skýslu sóknarprests
Skýrsla æskulýðsfulltrúa lá frammi
Edit A. Molnar kórstjóra fór yfir starf kóranna.
Allir fundarmenn fengu prentaðar skýslur
Sr. Guðbjörg sagði frá fundunum
Engin kosning fór fram, kosið er annaðhvert ár.
Skoðunarmenn voru kosin þau Kristín Pétursdóttir og Guðmundur Theodórsson og til vara Leifur Guðmundsson og Sigríður Erlingsdóttir.
Engin kosning í ár.
Engin umræða var
Formaður sleit fundi kl. 18:35
2. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 26. apríl 2022 kl. 17.30.
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Fjóla Kristinsdóttir, Páll Björgvinsson, Guðmundur Björgvin Gylfsson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn kl. 17:50.
Björn Ingi upplýsti fundinn hvaða leiðir sé hægt sé að fara, umræðan heldur áfram í haust.
Sóknarnefnd og starfsfólk Keflavíkurkírkja er væntanleg í heimsókn 8. maí. Sóknarnefnd mun sýna þeim kirkjuna og kirkjugarðinn. Einnig munum við bjóða þeim upp á kaffi. Að lokum mun Valdimar Bragason fara með hópinn í leiðsögn um nýja miðbæjinn.
Aðalfundur KGSÍ verður 14. maí á hótel Natura kl. 9:00 allir velkomnir á fundinn, Guðný kirkjuvörður ætlar að fara.
Viðhaldsverkefnin fyrir sumarið voru rædd.
Hreinsunardagurinn 23. apríl gekk vel og öllum sem unnu við verkið eru færðar þakkir fyrir daginn.
Stefnt er á fund í maí.
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl. 18:30.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
3. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 23. ágúst 2022. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll Björgvinsson, Guðmundur Björgvin Gylfsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir, sr Arnaldur Bárðarson, sr. Gunnar Jóhanesson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Fjölskyldumessa verður haldin næts sunnudag 28. ágúst og þar verður starf vetrarins kynnt. Búin verður til auglýsing sem kynnir allt starf kirkjunnar í vetur sem sett verður í Dagskrána.
Ýmsar hugmyndir voru ræddar hvernig efla á starfið í vetur.
Fundi slitið kl. 18:55
Fundaritari Guðrún Tryggva
4. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 27. sept. 2022 kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll Björgvinsson, Guðmundur Björgvin Gylfason, Elínborg Gunnarsdóttir, Örn Grétarsson, sr Arnaldur Bárðarson, sr. Gunnar Jóhannesson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn. Sr. Guðbjörg er komin í 2. mánaða veikindaleyfi, sr Axel Njarðvík kemur inn. Óskum henni góðs bata.
Sunnudaginn 16. okt kemur biskup í Selfosskirkju kl. 9:30 byrjað verður á samtali við sóknarnefnd, messa verður kl. 11:00 og að henni lokinni verður öllum kirkjugestum boðið upp á súpu.
Núna í haust verður gefin út ný sálmabók og af því tilefni verður Rúv með beina útsendingu um Hvítasunnuhelgina næsta vor frá fjórum stöðum á landinu. Kirkjunni verða gefnar100 stk. en við þurfum að kaupa ca 200 stk.
Stórtónleikar verða hér í kirkjunni 10. des með Sinfóníusveit Suðurlands ásamt einsöngvurum og öllum kórum kirkjunnar.
Ýmislegt spennandi er á döfinni hjá kórunum sem auglýst verður mjög vel þegar nær dregur.
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl 19:25
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
5. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 25. okt. 2022. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Páll Björgvin Ingimarsson, Guðmundur Björgvin Gylfsson, Eyjólfur Sturlaugsson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Björn Ingi leitaði eftir hugmyndum þar sem sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar kæmi saman eina kvöldstund ásamt mökum. Tekin var ákvöðun að borga ekki fyrir maka.
Guðmundur Björgvin, Guðrún, Guðrún og Guðný sett í nefnd.
Guðný kikrkjuvörður upplýsti okkur um nokkra hluti sem hún vill að verði farið í að laga. Þórður og Guðný ætla að skoða málið.
Jóhann Snorri er að skoða kaup á söngpöllum.
Skoða á hvort byrja ætti aftur að bjóða upp á súpu eftir messu á sunnudögum eins og gert var fyrir Covid.
Finna þarf einhvern til að ráðleggja um nýjar plöntur í staðinn fyrir þær sem fjarlægðar voru í sumar.
Sóknarnefnd skrifaði undir Samkomulag um nú sóknarmörk milli Selfoss- og Laugardælasókna. Samkomulagið verður sent til biskupsstofu sem sér um að tilkynna það til Þjóðskrár.
Ákveðið var að hækka úr 5.000 í 5.500 gjaldið fyrir ljósakrossa í kirkjugarðinum fyrir jólin.
Ákveðið að færa fundartímann fram til kl. 17:00
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl. 19:00.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
6. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 22. nóv. 2022. kl. 17.00
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Fjóla Kristinsdóttir, Páll Björgvinsson, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Arnaldur Bárðarson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn á nýjum fundartíma kl 17:00
Selfosskirkja og kirkjukórinn eiga stórafmæli eftir fjögur ár. Sigurjón Erlingsson er byrjaður að skrá fundargerðir kirkjunnar. Rætt var hvort gefa ætti út bók á þessum tímamótum. Björn, Guðmundur og Jóhann fengnir til að kanna málið betur
Engar líkur er á að stækkun kirkjugarðsins verði við núverandi garð. Senda þarf bæjarstjórn Árborgar formlega beiðni um nýja staðsetningu kirkjugarðs.
Veikindaleyfi sr. Guðbjargar hefur verið framlengt til 13. Janúar, mun séra Gunnar gegna starfi sóknarprests á meðan
Næsti aðalfundur Kirkjugarðasambands Íslands verður á Akureyri 6.maí 2023
Ríkisendurskoðandi óskaði eftir staðfestingu á hverjir væru prókúrhafar kirkjugarðs Selfoss og Selfosskirkju.
Guðmundur ætlar að ræða við Hjördís Traustadóttur um að bjóða upp á súpu eftir messu á sunnudögum kl. 11.
Ákveðið að fresta jólahlaðboðinu vegna lítillar þátttöku.
15 kössum af gömlum sálmabókum þarf að farga.
Þórður er að vinna í að skipta um nokkra glugga og einnig er hann að vinna í bæta brunavarnir kirkjunnar. Hann taldi upp nokkra hluti sem setja ætti á fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl. 18:35.
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
6. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 25. jan. 2022. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll Björgvin Ingimarsson, Fjóla Kristinsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn og óskaði öllum gleðilegs árs.
Guðmundur fór yfir óskir kirkjuvarðar bæði fyrir kirkju og kirkjugarð. Þórður fór yfir það sem hann telur þörf á að gera.
Allar óksir kirkjuvarðar er varða kirkjugarðinn teljum við hægt að gera.
Guðmundur fór yfir Ársreikninga fyrir árið 2021 sem líta vel út. Staðan er góð til framkvæmda á árinu 2022. Guðmundur fær leyfi til að láta endurskoða reikningana. Fyrir næsta fund verður búið að fá verðhugmyndir í ýmsa hluti. Einnig þarf að huga að kynningarstrarfi þegar að Covid lýkur til að auka og efla starfið aftur.
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl 19:35
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
7. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 22. feb. 2022 kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Páll Björgvin Ingimarsson, Þórður Grétar Árnason, Fjóla Kristinsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Biskup íslands mun vísitera Árborgar prestakall 12 -13 mars.
Messa verður á hefðbundnum tíma sunnudaginn 13. mars kl. 11:00 í Selfosskirkju þar sem biskup og prestar þjóna fyrir altari.
Aðalfundur Selfosssóknar verður haldinn þriðjudaginn 15.mars kl. 17:00.
Hreinsunardagur kirkjunnar verður haldinn 23. apríl kl 10.00
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju hefur óskað eftir því að koma í heimsókn til okkar í maí, bjóðum við þau velkomin.
Ákveðið var að athuga kostnað við viðgerð á turni kirkjunnar áður en ákveðið verður endanlega hvað verður framkvæmt á árinu.
Björn Ingi hefur sent bréf á Bæjarstjórn Árborgar til að andmæla tillögu þeirra á staðsetningu á nýjum kirkjugarði.
Huga þarf að kynningu á starfi kirkjunnar í sumar og haust eftir þessar löngu Covid hömlur.
Sóknarnefnd ætlar að styrkja unglingakórinn sem er að fara erlendis í maí.
Rætt var um sóknarmörk innan Árborgar prestakalls, sr Guðbjörg ætlar að athuga málið.
4. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl 18:40
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
5. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 23. nóv. 2021. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll Björgvin Ingimarsson, Fjóla Kristinsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason, Eyjólfur Sturlaugsson, Örn Grétarsson sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Þórður fór yfir athugasemdir sínar um áður afgreidd mál sem varðar viðhald kirkjunnar og ætlar hann að senda öllum í sóknarnefnd spurningar sem hann vill fá svar við á næsta fundi. Sóknarnefndarfólk sagði sínar skoðanir á málunum.
Fjóla hefur fengið frá JÁ verk hver heildarkostnaður við endurnýjuna á þakinu er og er upphæðin kr. 13.588.270 í samræmi við tilboð. Verkinu er lokið og lýsti sóknarnefnd ánægju með verkið. Gamla járnið hafði verið sett á 18.mars 1982.
Á næsta ári þarf að skoða járnið á turninum.
Nýja staðsetning kirkjugarðsins við Árbæjarveg var rædd og eru allir sammála um að mótmæla þessari staðsetningu.
Gjald fyrir hvern ljósakross í kirkjugarðinum á aðventunni var hækkað upp í kr. 5.000.
Semja á við nýjan einstakling um slátt og umhirðu á kirkjugarðinum og svæðið í kringum kirkjuna fyrir sumarið 2022.
Guðbjörg sagði okkur stöðuna hjá kirkjunni vegna samkomutakamarkana.
Fundi slitið kl 19:05
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
4. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 9. nóv. 2021. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Páll Björgvin Ingimarsson, Þórður Grétar Árnason, Fjóla Kristinsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason, sr. Arnaldur Bárðarson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn sem ekki er á hefðbundnum fundartíma.
Bárður verkefnastjóri hjá sveitarfélaginu Árborg mætti á fundinn til að kynna fyrir okkur staðsetningu á nýjum kirkjugarði samkvæmt nýju aðalskipulagi sem auglýst verður síðar á árinu. Gert er ráð fyrir að nýr kirkjugarður verði vestan við SS, keyrt inn af Árbæjarvegi. Ekki er ánægja með þessa ákvörðun hjá sóknarnefnd.
Björn hefur rætt við Ólaf Sigurðsson sem umsjón hefur með biblíusafni foreldra sinna. Við viljum finna lausn hvernig við tökum við gjöfinni og sýnum henni tilhlýðilegan sóma.
Björn upplýsti okkur hvernig staðan er á skiptingu á járninu á þaki safnaðarheimilisins. Enginn fúi var í timbri. Verkið er á lokastigi. Laga þarf niðurföll sem eru á nýbyggingingunni fyrr en seinna.
Björn Ingi, sr. Arnaldur og sr. Guðbjörg fóru á héraðsfund 2. okt í Skálholti.
Óvissa er vegna Covid um starfið framundan í kirkjunni.
6. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl 19:00
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
3. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. sept 2021 kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Páll Björgvin Ingimarsson, Fjóla Kristinsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Guðmundur Björgvin Gylfason, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Fundur settur. Björn setti fundinn.
Guðný kirkjuvörður sagði frá stöðunni, járnið á safnaðarheimilið er komið á staðinn, JÁ verk er með verkið.
Óánægja var með sláttinn á kirkjugarðinum í sumar. Búið er að yfirfara öryggiskerfið.
Hækka þarf rafmagnsgjaldið fyrir ljósakrossa.
Sjöfn æskulýðsfulltrúi sagði okkur frá leikjanámskeiði sem hún hélt í ágúst, aðsókn var mjög góð og mörg börnin sem sóttu námskeiðið hafa skilað sér í vetrastarfið. Barnastarf TTT 6-9 10-12 ára og sunnudagsskólnn fer hægt af stað en er alltf að aukast, ýmislegt er gert til að kynna starfið td í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Dagskrána.
Edit kórstjóri sagði að núna væru 33 börn í barnakórnum. Í byrjun september var tekin upp útvarpsmessa með barnakórnum, unglingakór og kirkjukór tókst það mjög vel. Byrja á aftur að syngja á Fossheimum og Ljósheimum í vetur. 17 krakkar eru í Unglingakórnum og stefna þau á að fara erlendis í vor. Búið er að bjóða kórnum að taka þátt í Jasshátið Reykjavíkur haustið 2022. Núna eru rúmlega þrjátíu í kikjukórnum sem hefur verið að stækka. Þetta haust eru söngraddir 85-90 við kirkjuna.
Sr. Guðbjörg sagði allt hefðbundið starf vera byrjað. Fermingarbörn eru um 100 sem hafa skráð sig sem er svipað og undanfarin ár, ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort fara á í Vatnaskóg. Bænastundirnar verða þrjá morgna í viku og byrjað hefur verið aftur að hafa kyrðarstund á miðvikudögum og miklar líkur á að 12 sporin byrji aftur. Messusókn er að aukast aftur.
Samningaviðræður eru langt komnar við einstakling sem mun hafa umsjón með eldhúsinu og sölunum.
Fundarmenn voru upplýstir um undirbúningsvinnu Björns, Fjólu og Jóhanns sem á fundi í maí voru fengin í að ræða við JÁ verk um að skipta um þak á safnaðarheimilinu.
Björn útskýrði fyrir okkur hvernig JÁ verk ætlar að vinna verkið á skiptingu á járninu á Safnaðarheimilinu og fór yfir tilboð og kostnaðaráætun sem var samþykkt. Aluzink verður sett á.
Guðmundur Búason fór á aðalfund KGSÍ sem haldin var á Laugarbökkum í Miðfirði, ýmsar hugmyndir voru ræddar þarna sem gæti komið sér vel td fyrir okkur.
6. Fundargerð upplesin.
2. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 27. apríl. 2021. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll Björgvin Ingimarsson, Fjóla Kristinsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Örn Grétarsson, Guðmundur Björgvin Gylfason, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn setti fundinn og bauð Guðmund Björgvin Gylfason velkominn.
Öllum þakkað fyrir þátttöku á hreinsunardaginn sl. laugardag 24. apríl.
Björn fór yfir starf sóknarnefndar.
3. Umræða um viðhaldsframkvæmd.
Guðmundur gjaldkeri upplýsti fundinn um við hverja hefur verið rætt.
Kristbjörn hjá Eflu útbjó verklýsingu fyrir verktaka sem send hefur verið á 4 fyrritæki hér á Selfossi, bara tveir eru búnir að svara. Þórður hefur einnig talað við verktaka.
Ákveðið var að fara betur yfir málin. Vinnufundur um þakið verður haldinn mánudaginn 10. maí kl. 17:30
Björn og Guðný hafa sent bréf til bæjarins um ósk um samstarf vegna umhirðu á svæðinu í kringum kirkjuna og kirkjugarðinn.
Nú má messa aftur, heimilt er að 100 mæti. Barna og unglingastarf verður aðeins lengur í ár vegna allra lokana sem verið hafa í vetur.
5. Önnur mál.
Í haust þarf að finna einhvern sem til að hafa umsjón með eldhúsinu og salnum.
6. Fundargerð upplesin.
Fundi slitið kl 18:55
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
1. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 23. mars. 2021 kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll Björgvin Ingimarsson, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Örn Grétarsson , sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn.
Dagskrá.
Björn Ingi setti fundinn.
Björn Ingi Gíslason formaður, Guðmundur Búason gjaldkeri, Guðrún Tryggvadóttir ritari, Þórður G. Árnason 1. varaformaður, Fjóla Kristinsdóttir 2. varaformaður. Meðstjórnendur: Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann S. Bjarnason, Páll B. Ingimarsson og Guðmundur Björgvin Gylfason.
Sr.Guðbjörg dró varamenn.
Varastjórn: Eyjólfur Sturlaugsson 3.varaformaður, Örn Grétarsson, Petra Siguðardóttir, Sigurður Jónsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Kjartansson, Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir, Margrét Óskarsdóttir.
Þórður G. Árnason verður áfram safnaðarfulltrúi.
Hugrún umsjónamaður safnaðarheimilis er flutt frá Selfossi, því þarf að finna annan einstakling í það starf.
Fundartími verður óbreyttur, 4. þriðjudag í mánuði kl. 17:30.
Aðeins einn aðili sýndi áhuga á að taka verkið að sér að skipta um þak á safnaðarheimilinu. Guðmundur og Jóhann ætla fyrir hönd sóknarnefndar að ganga frá samningum við viðkomandi.
Ekki verður boðið upp á kaffi eftir messu á páskadagsmorgun vegna Covid annað árið í röð.
Messuhald og athafnir í kirkjunni eru erfiðar vegna Covid.
Með vorinu þarf að halda fund með öllum sóknarnefndum í nýju sameinuðu prestakalli.
Númera þarf hvern bekk ef fleiri en 50 eru mættir í athöfn.
Tiltektardagur verður 24. apríl kl. 10 til 14 með vonandi hópi af fólki, veitingar verða í hádeginu og athuga þarf með gám til að setja í garðafganga.
Fundi slitið kl 18:55
Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 2021
fyrir starfsárið 2020
Haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju miðvikudaginn 10. mars kl. 17.30
18 voru mættir á fundinn.
Björn Ingi setti fundinn
Formaður lagði til að Fjóla Kristinsdóttir yrði fundarstjóri og ritari Guðrún Tryggvadóttir og var það samþykkt.
Formaður, prestar, æskulýðsfulltrúi, kórstjóri og formaður kirkjukórs fóru yfir starf síðasta árs.
Björn Ingi formaður las skýslu sóknarnefndar:
Síðasta talning …… var að 76% íbúar Selfoss eru í Þjóðkirkjunni
Sr. Guðbjörg las skýslu sóknarprests
Sr. Guðbjörg flutti einnig ör-starfsskýslu yfir æskulýðs-og fræðslumál
Skýsla Editar A Molnar kórstjóra lá fyrir prentuð.
Unglingakór Selfosskirkju
Stjórnandi: Edit A. Molnár
Barnakór Selfosskirkju
Stjórnendur: Edit A. Molnár og Kolbrún Berglind Grétarsdóttir
Starfið í Selfosskirkju hefur verið óvenjulegt frá því í mars 2020. Eftir nauðsynlegt hlé var haldin Krossamessa í maí þar sem við kvöddum kórfélaganna í 10. bekk í Unglingakórnum.
Við hófum svo starfið á kórnámskeiði með Kolbrúnu Berglindi Grétarsdóttur, tónlistarkennara, eftir sumarleyfi . 54 krakkar tóku þátt.
Barna- og Unglingakórarnir hófu æfingar í haust, en neyddust svo til að fresta hefðbundnum verkefnum þar til í desember. Kórarnir tóku þátt í bænastundum um aðventuna í gegnum streymi, og svo var jólamessan tekin upp. Í febrúar var haldinu æfingahelgi í Selfosskirkju.
Barnakórinn söng á fjölskylduguðþjónustu 7. mars.
Kórarnir tveir halda tónleika með Eyjólfi Eyjólfsyni í Selfosskirkju 14. mars. Meginstef tónleikanna er íslensk þjóðlagatónlist. Eyjólfur Eyjólfsson, söngvari, hefur sinnt Unglingakórnum frá því í janúar, og kennt krökkunum reglulega að spila á langspil. Tónleikarnir eru styrktir af SASS (Samtök sunnlennska svetarfélaga)
Okkur tókst að halda uppi skemmtilegu starfi á erfiðum tímum. Við æfðum þegar það var heimilt, buðum upp á skemmtilega viðburði og sungum á messum þegar það var hægt.
Síðustu mánuði hefur staðið yfir upptaka á heimildarmynd á kóræfingum. Fyrir heimildarmyndinni stendur Anna Dalmay sem hefur nýlega lokið námi í heimildarmyndargerð í Prag. Í heimildarmyndinni er sjónum einkum beint að áhrifum tónlistar og kórasöngs.
Skýsla Jóhanns Snorra Bjarnasonar formanns kirkjukórsins lá fyrir prentuð.
Líkt og hjá öðrum hópum, var starf Kirkjukórs Selfosskirkju árið 2020 óhefðbundið og mjög frábrugðið öðrum starfsárum kórsins. Skömmu eftir síðasta aðalsafnaðarfund komu til framkvæmda þær hömlur og lokanir vegna Covid 19 sem þjóðin öll þekkir. Frá mars til september var nær engin starfsemi hjá kirkjunni og ekki hjá kórnum heldur. Messur féllu alveg niður og fermingarmessum sem vera áttu á vormánuðum var öllum frestað. Útfarir urðu einnig með öðru sniði í kjölfar fjöldatakmarkana og sjaldan rými fyrir kór við þær athafnir.
Í lok sumars voru samkomureglur rýmri og gátu kóræfingar hafist. Æfingarnar voru haldnar í kirkjunni til að geta setið dreift og passað var upp á fjarlægðir milli kórfélaga. Í lok september voru takmarkanir aftur hertar og lögðust þessar þá æfingar af og hafa enn ekki verið teknar upp aftur. Aðventustund og hefðbundnar jólamessur féllu líka niður í vetur. Selfosskirkja ásamt kirkjunum í kring, Hveragerðis- og Þorlákskirkju, tóku sig saman og tóku upp messur fyrir jólin. Í hlut Selfosskirkju kom messan á Jóladag og kom þá hluti kórfélaga saman og söng við þá upptöku. Athöfnunum var svo streymt á facebook-síðum kirknanna um jólin.
Þar sem slakað hefur verið nokkuð á sóttvarnaraðgerðum undanfarið, standa vonir til þess að kóræfingar geti hafist á næstunni og að kórstarfið verði komið í eðlilegt horf næsta sumar. Framundan eru fermingar og páskamessur sem vonandi tekst að halda á tilsettum tíma í vor þær verði eflaust með öðrum og látlausari hætti en vant er.
Mætingar hjá kirkjukórnum frá aðalsafnaðarfundi 2020:
Messur 18
Útfarir 11
Æfingar 8
Guðmundur Búason gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum Selfosskirkju, Hjálparsjóðs Selfosskirkju og Kirkjugarðs Selfoss. Allir reikningar voru samþykktir samhljóða
| Selfosskirkja Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 61.100.558 | 51.057.919 | 10.042.639 | |
| Efnahagsreikningur | Fastafjármunir | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 478.891.660 | 32.576.100 | 511.467.760 | |
| Kirkjugarður Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 12.460.936 | 11.058.876 | 1.402.060 | |
| Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 9.279.973 | 11.086.008 | 11.086.008 | |
| Hjálparsjóður Selfosskirkju | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
| 0 | 564.531 | -564.531 | |
| Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
| 3.526.895 | 3.526.895 | 3.526.895 |
Vegna Covid -19 var ekki haldinn fundur sem vera átti í Skálholti. Stefnt er að fundi 2. okt nk.
Guðmundur Búason gjaldkeri fór yfir rekstraráætlun Selfosskirkju, Hjálparsjóðs Selfosskirkju og Kirkjugarðs Selfoss. Allar fjárhagsáætlanir voru samþykktar
Bera þarf undir aðalsafnaðarfund ef veruleg útgjöld þarf að fara í. Núna er komið að því að skipta þarf um járn á safnaðarheimilinu. Guðmundur Búason lagði fram tillögu fyrir hönd sóknarnefndar um að ráðast í að endurnýja járn á safnaðarheimili sem var samþykkt.
Fjögur voru að klára sín sitt fjögurra ára kjörtímabil, þrjú gáfu kost á sér til endurkjörs þau Fjóla Kristinsdóttir, Jóhann Bjarnason og Guðrún Tryggvadóttir. Petra Sigurðardóttir gaf ekki kost á að vera áfram aðalmaður en er til í að vera varamaður. Í hennar stað gaf Guðmundur Björgvin Gylfason kost á sér og voru þau fjögur kosin aðalmenn til fjögurra ára. Eyjólfur Sturlaugsson og Örn Grétarsson gáfu kost á sér áfram sem varamenn en Hjörtur Þórarinsson og Sigurður Sigurjónsson vildu ekki vera áfram og var þeim þakkað fyrir þeirra störf. Petra Sigurðardóttir og Elínborg Gunnarsdóttir gáfu kost á sér sem varamenn. Eyjólfur, Örn, Petra og Elínborg voru öll eru kosin varamenn til fjögurra ára. Á fundinum tilkynnti Erla Guðrún Kristjánsdóttir sem verið hefur varamaður sl. 2 ár að hún vildi hætta, inn sem varamaður til tveggja ára í hennar stað var kosinn Sigurbjörn Kjartansson.
Skoðunarmenn voru kosin þau Kristín Pétursdóttir og Guðmundur Theodórsson og til vara Leifur Guðmundsson og Sigríður Erlingsdóttir.
Engin kosning, Kjörnefnd er sú sama og verið hefur.
Sigurbjörn Kjartansson spurði hvernig staðan væri á nýja kirkjugarðinum. Björn svaraði að endurskoðun stendur yfir á aðalskipulagi Árborgar og þar er til skoðunar hvar kirkjugarðurinn á að vera
Hann spurði í hverju kostnaðurinn á leiðalýsingu lægi og Guðmundur svaraði að verulegur beinn kostnaður væri af lýsingunni, gróði er ekki af þessu.
Einnig spurði hann um sláttinn á kirkjugarðinum. Björn sagði að endurskoðun sé alltaf á hverju ári með að lækka kostnað við sláttinn. Guðmundur sagði að nauðsynlegt sé að endurskoða þennan kostnað
Þá spurði hann um hvort aldrei hafi komið upp sú hugmynd að setja upp barnhelda girðingu við ána. Björn sagði frá umræðu sem var fyrir 40 árum þar sem ákvörðun að tekin að foreldrar ættu að brýna fyrir börnum að áin sé hættuleg. Gott að fá ábendingar.
Björn þakkaði þeim einstaklingum sem gáfu ekki kost á sér áfram fyrir þeirra störf í þágu Selfosskirkju.
Björn sleit fundi kl 19:00
Guðrún Tryggvadóttir, fundarritari.
6. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 23. feb. 2021. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll B. Ingimarsson , Jóhann Snorri Bjarnason, Petra Sigurðardóttir, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn
Dagskrá.
1. Fundur settur. Björn setti fundinn.
2. Aðalsafnaðarfundur 10. mars. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 10. mars kl. 17:30. Boðið verður upp á kaffi og konfekt á fundinum. Reikningar hafa verið samþykktir. Guðmundur og Þórður ætla að fara í að fá tilboð í framkvæmdir við skiptingu á járni á þaki safnaðarheimilisins.
3. Stjórnarkjör 4 + 4.
Þrír af fjórum sem hafa verið í aðalstjórn ætla að gefa kost á sér aftur í fjögur ár. Einn varamaður hefur gefið kost á sér áfram, eftir er að heyra í hinum þremur.
4. Starfið framundan.
Sóknarnefndarfundur verður haldin 23. mars með nýrri sóknarnefnd.
Fermingarmessur verða eins og þær voru fyrir Covid.
Stefnt er á tónleika hjá unglingakórnum 14. mars
5. Önnur mál.
25.mars eru 65 ár síðan kirkjan var vígð, rætt var hvort koma ætti upp söguskilti við kirkjuna, eins og eru víða á Selfossi.
Kirkjuráð sendi bréf til presta og sóknarnefndar um úttektir á aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðara að kirkjum og safnaðarheimilum. Sóknarnefnd telur að Selfosskirkja uppfylli allar þær kröfur sem þarf.
Fundi slitið kl 18:50
Fundaritari Guðrún Tryggvadótt
5. Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 26. jan. 2021. kl. 17.30
Mætt voru: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann Snorri Bjarnason, Petra Sigurðardóttir, sr. Guðbjörg Arnardóttir, sr. Gunnar Jóhannesson og Guðrún Tryggvadóttir sem ritaði fundinn .
Dagskrá.
1. Fundur settur. Björn Ingi setti fundinn
2. Ráðning æskulýðsfulltrúa staðfest.
Tveir einstaklingar sóttu um starfið, bæði voru tekin í viðtal. Sjöfn Þórarinsdóttir var ráðin og hefur hún hafið störf.
3. Ákvörðun um Aðalsafnaðarfund.
Stefnum á að hafa aðalsafnaðarfund 3. mars ef samkomutakmarkanir leyfa.
4. Tiltektardagur í vor, tillaga.
24. apríl ætlum við að endurtaka tiltektardag sóknarnefndar. Klippa á alla runna, hreinsa beð og bjóða upp á veitingar.
5. Önnur mál.
Guðmundur kynnti fyrir okkur drög að ársreikningum 2020 fyrir kirkjuna, hjálparsjóð Selfosskirkju og kirkjugarðinn.
Þórður hefur skoðað kostnað við að skipta um járn á þak á safnaðarheimilinu og einnig á turninum. Þórður og Guðmundur ætla að fara í að ræða við verktaka um að gera þetta á þessu ári.
6. Fundargerð lesin. Fundi slitið kl 19:10. Fundaritari Guðrún Tryggvadóttir
3 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 28. apríl 2026. kl. 17.00
Mættir: Björm Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll Ingimarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Jóhann Snorrason, Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Dagskrá.
Ráða á ungmenni til starfa við kirkjuna í sumar.
Teikning af nýjum kirkjugarði var kynnt en bíða þarf eftir samþykki Áborgar og Flóahrepps.
Auglýst hefur verðið eftir nýjum presti við Árborgarprestakall.
Slegið ehf. mun sjá um sláttinn á kirkjugarðinum og við kirkjuna í sumar.
Erindi frá Katrínu Birnu var tekið fyrir og samþykkt.
Fundurinn samþykkti að leyfa flutning á duftkeri úr öðrum kirkjugarði í Selfosskirkjugarð.
Kveðjuhóf fyrir Ínu Stefánsdóttur sem sá um þrífa kirkjuna í 50 ár.
Kjósa þarf til kirkjuþings núna 7. til 12. maí.
Sóknarnefnd þakkar öllum þeim sem gáfu sér tíma til að taka þátt í hreinsunardegi kirkjunnar sl. laugardag.
Búið er að skrifa undir makaskiptasamning og afsal á landspildu við Þóru Valdísi Valgeirsdóttur Selfossi II og Selfosskirkju vegna landspildu fyrir bílastæði og skjalið er komið í þinglýsingu.
Teikning af nýrri tengibyggingu við kirkjuna var kynnt og samþykkt að halda áfram með undirbúningsvinnu.
Búið er að panta lok og hurðir fyrir ruslaskýlin sem BM Vallá gaf okkur.
Ekki er búið að klára skrifin um kirkjuna og kórinn.
Fundi slitið kl. 18:35. Fundarritari Guðrún Tryggva.
Aukafundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 14. apríl 2026. kl. 17.00.
Mættir: Björn Ingi Gíslason, Elínborg Gunnarsdóttir, Þórður G. Árnason, Hafdís Kristjánsdóttir, Páll B. Ingimarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Guðrún Guðbjartsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
3.
Eftirtalin voru samhljóða valin í valnefnd:
Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Guðrún Tryggvadóttir, Þórður G. Árnason, Páll Ingimarsson, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir.
Varamenn:
Eyjólfur Sturlaugsson, Jóhann Bjarnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Örn Grétarsson, Ragna Gunnarsdóttir, Petra Sigurðardóttir, Arnar Guðmundsson.
4.Fundargerð upplesin. Fundi slitið kl. 17:50
Fundarritari Guðrún Tryggva
2 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 24. mars 2026. kl. 17.00
Mættir: Björn Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Elínborg Gunnarsdóttir, Hafdís Kristjánsdóttir, Páll B. Ingimarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Sjöfn æskulýðsfulltrúi kynnti fyrir okkur hugmynd sína að eflingu leiðtoga í starfi kirkjunnar. Sjöfn og Guðmundur Búason ætla að fara yfir málið.
Hreinsunardagurinn verður 25. apríl kl. 10 til 14. Dagurinn verður kynntur eins og hægt er.
Páskamessa verður kl. 8.00 og strax að lokinni messu verður boðið upp á morgunkaffi.
Kominn er út bæklingur um Selfosskirkju sem mun liggja frammi í anddyri kirkjunnar.
Kirkjukórnum var gefinn platti í tilefni 80 ára afmælisins.
Undirbúningur fyrir 70 ára afmæli kirkjunnar sunnudaginn 29. mars er klár.
Fundi slitið kl. 18:10. Fundarritari Guðrún Tryggva.
1 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn
þriðjudaginn 24. feb. 2026. kl. 17.00
Mættir: Björm Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Guðrún Guðbjartsdóttir, Elínborg Gunnarsdóttir, Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Björn Ingi setti fundinn
Dagskrá afmælismánaðarinns er endanlega klár
Farið var yfir þær gjafir sem þarf að útvega fyrir ýmsar athafnir og hverjum skal senda boðsbréf.
Kaffiveitingar verða eftir hátíðarmessu 29. mars.
Próförk af bæklingi um Selfosskirkju sem hefur verið í vinnslu í nokkurn tíma var kynntur, ákveðið að prenta 300 eintök.
Búið er að endurskoða ráðningasamning kirkjuvarðar.
Sóknarnefnd skrifaði undir makaskipti og afsal vegna nýs bílastæðis sem stendur til að gera. Þá styttist í framkvæmdaleyfi.
Geta má þess að hljóðvistin hefur lagast eftir að nýju gardínurnar voru settar upp í safnaðarheimilinu.
Fundi slitið kl. 18:40
Fundarritari Guðrún Tryggva.
Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 2026 – Fyrir starfsárið 2025
Haldinn miðvikudaginn 18. febrúar 2026 kl 17:00 í safnaðarheimili Selfosskirkju.
17 mættu á fundinn.
Fundarstjóri Páll B. Ingimarsson og fundarritari Guðrún Tryggvadóttir.
Björn formaður fór yfir skýslu formanns.
Sr. Guðbjörg Arnardóttir stiklaði á stóru úr skýrslu prestanna.
Sjöfn Þórarinsdóttir æskulýðsfulltrúi fór yfir sína skýslu.
Edit var lasin, Sr. Guðbjörg sagði af skýslu kórstjóra.
Guðmundur Búason gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum
Reikningar samþykktir samhljóða.
Selfosskirkja Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
91.117.256 | 94.706.640 | 212.179 | |
Efnahagsreikningur | Fastafjármunir | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
692.161.660 | 73.884.459 | 766.046.119 | |
Kirkjugarður Rekstrarreikningur | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
18.855.755 | 15.933.976 | 4.008.743 | |
Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
23.648.304 | 25.413.651 | 25.413.651 | |
Hjálparsjóður Selfosskirkju | Tekjur | Gjöld | Tekjuafgangur |
240.620 | 167.526 | 73.094 | |
Efnahagsreikningur | Eigið fé | Veltufjármunir | Skuldir og eigið fé |
3.587.814 | 3.753.070 | 3.753.070 |
Sr.Guðbjörg sagði frá, hefðbundinn fundur, starfsmenn kirkjunnar duglegir að sækja í sjóði héraðsnefndar. Héraðsfundur varður haldinn í Selfosskirkju 18. apríl.
Björn sagði frá því sem búið er að gera fyrir safnaðarheimilið, borð, stólar og gardínur.
Björn lagði fram eftirfarandi tillögu og hún var hún samþykkt:
„Aðalsafnaðarfundur samþykkir að veita safnaðarstjórn heimild til áframhaldandi hugmyndavinnu að stækkun Selfosskirkju. Markmiðið er að greina og áætla þörf til næstu framtíðar og koma með tillöu þar um þegar þar að kemur.“
Guðmundur gjaldkeri fór yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 engin athugasemd var gerð og var hún samþykkt.
Skoðunarmenn voru kosin þau Kristín Pétursdóttir og Sigríður Erlingsdóttir og til vara Krístín Traustadóttir og Guðbjörg Guðjónsdóttir.
Björn sagði frá afmælismánuði Selfosskirkju og kirkjukórs.
Selfosskirkja verður 70 ára og Kirkjukórinn 80 ára í mars næstkomandi.
Kjartan Björnsson tók til máls sagðist vera stoltur af Selfosskirkju starfið vaxi og dafni framtíðin sé björt.
Björn þakkaði fyrir samveruna í dag, að mörgu að hyggja, gaman að starfa fyrir kirkjuna og með öllum sem vinna við kirkjuna
Fundi slitið kl. 18:35
Skýrslur af fundi:
Barnakór Selfosskirkju
Starf Barnakórs Selfosskirkju hefur gengið vel og verið viðburðaríkt þetta árið. Nú eru í kring um 30 börn í kórnum á aldrinum 7-10 ára sem hafa í ár lært fjölda laga, texta og leikja.
Síðasta ár hafa þau hafa sungið í þónokkrum fjölskyldumessum eða öðrum helgistundum í kirkjunni og komu fram bæði á Ljósheimum og Móbergi.
Barnakórinn tók þátt í tónleikum með öllum kórum kirkjunnar og Kristjönu Stefánsdóttir sem haldnir voru í Selfosskirkju 23.mars á síðasta ári.
12. október á þessu ári var svo haldin vel heppnuð söngstund í Selfosskirkju þar sem barnakórinn sá um allt prógrammið.
Fyrir jólin komu krakkarnir fram á Aðventukvöldi kirkjunnar auk þess að syngja jólalög í Húsasmiðjunni og í miðbæ Selfoss þegar kveikt var á jólaljósum bæjarins.
Stærsti viðburður ársins var þó þegar barnakórinn ásamt unglingakór Selfosskirkju söng á glæsilegum jólatónleikum með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands fyrir troðfullri kirkju.
Til skemmtunar hefur barnakórinn einnig tekið þátt í jólaskemmtun, vorhátíð, og skemmtikvöldum auk þess sem farið var í vorferð þar sem þau sungu í Hveragerðiskirkju, fóru í sund og fengu pizzu.
Framundan hjá barnakórnum er að syngja í messu 15.mars sem verður hluti af dagskrá í afmælismánuði Selfosskirkju.
Stefnt er á að taka þátt í Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju sumardaginn fyrsta og halda vorsöng með Stjörnukórnum (kórskólanum) í apríl.
Tónlistarlíf í Selfosskirkju – Kirkjukór Selfosskirkju – Unglingakór Selfosskirkju – Barnakór Selfosskirkju
Stjörnukór
Stjórnendur: Edit A. Molnár og Bergþóra Kristínardóttir
Organisti: Edit A. Molnár
Rúmlega 75 söngvarar starfa í Selfosskirkju.
Margir viðburðir áttu sér stað, fjölbreytt dagskrá, ný tækifæri til viðbótar við hið gamla starf og margir þátttakendur, á öllum aldri.
Meginverkefni kóranna í Selfosskirkju er að annast tónlistina á guðþjónustum kirkjunnar, þ.e. á messum, fjölskylduguðþjónustum, fermingum og kvöldmessum. Auk þess felst í starfsemi þeirra að halda tónleika, kóramót og fara í ýmis ferðalög. Kórarnir syngja reglulega fyrir eldriborgara í Grænu mörk, í Móberg og á Ljósheimum. Þá taka nemendur frá Tónlistarskóla Árnesinga reglulega þátt í messunum.
Nokkrir áhugaverðir atburðir frá liðnu ári:
Við höldum “Opin söngstund” reglulega með þátttöku kóra kirkjunnar. Þátttakan hefur verið mjög góð.
„Kórskóli – Stjörnukór“ í aðdraganda jóla þar sem krakkarnir sungu á jólaballi í Selfosskirkju. Með þessum námskeiðum reynum við að tryggja frekari aðsókn í barnakórinn til framtíðar. Námskeiðið verður næst haldið í apríl.
Framundan eru:
Messur, tónleikar og fleiri uppákomur í mars í tilefni 70 ára afmæli Selfosskirkju og 80 ára afmæli Kirkjukórsins.
Afmælistónleikar Björgvins Þ. Valdimarsson laugardaginn 9. maí
Kirkjukór Selfosskirkju – starfsárið 2025
Kirkjukór Selfosskirkju æfir einu sinni í viku á fimmtudagskvöldum auk raddæfinga þegar mikið liggur við. Sömuleiðis kemur fyrir að boðað er til aukaæfinga fyrir útfarir en reynt er að hafa það í lágmarki. Kórinn syngur við messur allt árið en frá hvítasunnudegi og fram í miðjan í ágúst er kórinn þrískiptur. Það er gert til að gefa kórfélögum aðeins lengra frí á
milli, jarðarfarir eru þó alltaf vel mannaðar sé beðið um kórinn þar. Kórinn söng við 43 messur á árinu 2025 og við 28 útfarir. Starfsárinu 2024/2025 lauk með messu í Hellisskógi um hvítasunnu, það blés vel þar. Við hófum hins vegar starfsárið 2025/2026 með útimessu í miðbænum í ágúst, mjög vel heppnað og veðrið lék við okkur.
Þá hefur kórinn heimsótt hjúkrunarheimilin hér á Selfossi að vori og í desember. Þar syngur kórinn þekkt lög sem hentar hvorri árstíð fyrir sig og hvetjum við heimilsfólk til að taka undir eða raula með. Mjög skemmtileg stund. Einnig tók kórinn þátt í tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands 1. maí sl. og einnig sungum við með Kristjönu
Stefánsdóttur og fleira. Það er því nóg að gera hjá kórnum allt árið um kring. Þessa dagana erum við að æfa fyrir afmælismessu kórsin, hátíðarmessu í tilefni afmælis kirkjunnar og lög Björgvins Þ. Valdimarssonar sem verða flutt á afmælistónleikum hans
þann 9. maí nk. En við eigum okkur líka smá félagslíf. Við förum í leikhús, höldum árshátíð og fögnum vori svo eitthvað sé nefnt.
Skýrsla æskulýðsfulltrúa
Í Selfosskirkju fer fram fjölbreytt og öflugt barna- og æskulýðsstarf fyrir börn á öllum aldri, allt frá ungabörnum til unglingsára. Í hverri viku er boðið upp á fjölmargar samverustundir sem höfða til ólíkra aldurshópa. Starfið byggir á samvinnu margra einstaklinga sem leggja kirkjunni lið með tíma sínum, áhuga og hæfileikum. Þökk sé þeim getum við státað af barnastarfi sem er bæði blómlegt og til fyrirmyndar.
Starfsveturinn 2025–2026 einkennist af ungu og áhugasömu leiðtogaefnum sem koma með ferskan byr inn í starfið, sem er nauðsynlegt í starfi sem þessu.
Krílasálmar
Krílasálmar eru notaleg og nærandi stund fyrir ung börn og foreldra þeirra. Áhersla er lögð á tónlistararf kirkjunnar og upplifun barna í gegnum hreyfingu, söng og fjölbreytt skynáreiti. Krílasálmar eru í stöðugri þróun til að mæta þroska og getu barnanna.
Foreldrar geta jafnframt tekið þátt í foreldramorgnum sem fylgja í kjölfarið. Starfið hefur farið hægt af stað en er nú að lifna yfir.
Sunnudagaskólinn
Sunnudagaskólinn er hornsteinn barnastarfsins og ætlaður börnum frá um það bil eins árs aldri
upp í átta ára. Söngur, tónlist og skemmtun eru í forgrunni, en sögur og leikrit sem tengja boðskap Biblíunnar við daglegt líf barna, ásamt bænastund í lokin, mynda kjarnann. Traustur kjarni barna sækir sunnudagaskólann reglulega.
Eldri krakkar úr TTT-starfinu og Æskulýðsfélagi kirkjunnar leggja hönd á plóg í sunnudagaskólanum. Krakkarnir fá ábyrgðarhlutverk sem er dýrmætt fyrir kirkjuna og þroskandi fyrir þau sjálf.
Kirkjukrakkar (1.–4. bekkur)
Kirkjukrakkar er líflegt, fjölbreytt og fjölsótt starf þar sem sungið er mikið, farið í leiki, föndrað og unnin skapandi verkefni.
Í vetur er unnið með eigið efni þar sem Faðir vorið er krufið og sett í búning sem hjálpar börnunum að öðlast dýpri skilning á því og tengja það við daglegt líf.
Flestir þátttakendur nýta frístundaakstur Árborgar sem stoppar við kirkjuna. Fundartíminn gerir börnum kleift að fara beint í barnakóræfingu á eftir og hefur það hlotið góðan hljómgrunn.
Þrír ungleiðtogar hafa hjálpað til í kirkjukrakkastarfinu og fá tækifæri til að hafa áhrif á starfið og eflast í leiðtogahlutverkinu.
TTT (5.–7. bekkur)
TTT-starfið er ætlað tíu til tólf ára krökkum og sækir það fastur og traustur hópur sem hefur verið virkur í barnastarfi kirkjunnar um árabil.
Á fundum er farið í leiki, unnið með uppbyggjandi verkefni og hver fundur endar á rólegri og innihaldsríkri bænastund.
Nýverið var farið á mót í Vatnaskógi sem vakti mikla lukku. Tveir ungleiðtogar koma að starfinu og styrkja það til muna.
Æskulýðsfélag kirkjunnar – Æskó (8.–10. bekkur)
Æskó er fjölsótt og líflegt starf þar sem gleði, vinátta og samvera eru í öndvegi. Á fundum er unnið með fjölbreytt verkefni, farið í leiki og haldin bænastund þar sem boðskapur Biblíunnar er tengdur daglegu lífi unglinganna.
Ferðir eru stór hluti af starfinu og mikilvægur hvati fyrir hópinn. Fyrir áramót var farið í Vatnaskóg og fram undan eru Landsmót Æskulýðsfélaga í apríl og vorferð til Vestmannaeyja.
Sérstaklega ánægjulegt er að sjá unglinga sem hafa verið í barnastarfi kirkjunnar frá unga aldri halda áfram í Æskó – sum þeirra eru nú í 10. bekk og farin að máta sig við leiðtogahlutverkið. Ef Guð lofar munu þau finna sig í leiðtogahlutverkinu og halda áfram að leggja kirkjunni lið.
Leiðtogar
Kirkjan er rík af áhugasömum, ábyrgum og metnaðarfullum leiðtogum sem leggja starfinu lið af einlægni og eldmóði.
Fimm efnilegir ungleiðtogar eru að stíga sín fyrstu skref í leiðtogahlutverkinu – fjögur þeirra eru í leiðtogaskólanum og þeim hefur gengið mjög vel þar. Þau taka virkan þátt í starfinu og efla það til muna.
Selfosskirkja á eitt sæti í ungmennaráði Árborgar og situr María Friðmey Jónsdóttir þar sem fulltrúi kirkjunnar. Jafnframt fór hún á kirkjuþing unga fólksins.
Tveir leiðtogar frá Selfosskirkju eru einnig í ráðgjafahóp biskups varðandi æskulýðsmál kirkjunnar, þær Klaudia Anna Jablonska og María Friðmey.
Við megum vera stolt af leiðtogunum og leiðtogaefnunum okkar. Enn fremur er mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi, því öflugt leiðtogastarf er ekki sjálfgefið.
Jól í skókassa
Selfosskirkja hefur tekið virkan þátt í verkefninu Jól í skókassa í samstarfi við KFUM og KFUK. Kirkjan tekur á móti kössum og sér um að koma þeim áfram til barna í Úkraínu. Börnin í barnastarfinu tóku sjálf þátt í verkefninu og sýndu mikinn áhuga. Óvenju fáir kassar bárust þetta árið – aðeins 37 kassar fóru frá Selfosskirkju.
Framtíðin
Ef barnastarfið heldur áfram á sömu braut má búast við áframhaldandi vexti og þróun. Innan kirkjunnar eru frábærir krakkar og kraftmiklir leiðtogar sem skapa bjarta framtíð.
Við megum vera stolt af starfinu – fáar kirkjur á landinu bjóða upp á jafn fjölbreytt og blómlegt barna- og æskulýðsstarf og Selfosskirkja.
8 . Fundur Sóknarnefndar Selfosskirkju haldinn þriðjudaginn 27. jan. 2026. kl. 17.00
Mættir: Björm Ingi Gíslason, Guðmundur Búason, Þórður G. Árnason, Páll B. Ingimarsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Hafdís Kristjánsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Örn Grétarsson, Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Guðrún Tryggvadóttir sem ritar fundinn.
Fundargerð
Björn Ingi setti fundinn.
Guðmundur Búason lagði fram ársreikning og áætlun Selfosssóknar og Kirkjugarðs Selfoss 2025, ánægja með reikningana, engin athugasemd gerð.
Fundi slitið kl. 19:05
Fundarritari Guðrún Tryggva