Kvenfélag Selfosskirkju hefur verið lagt niður og eru þeim þökkuð hin mörgu og trú störf í þágu Selfosskirkju. Var starf þeirra ómetanlegur stuðningur við kirkjuna. Hér má sjá ágrip af sögu félagsins.
Kvenfélag Selfosskirkju var stofnað 20. mars 1966 og er tilgangur félagsins tíundaður í annarri grein laga félagsins sem sjá má hér neðar á síðunni.
Félagið hefur í gegnum árin stutt dyggilega við uppbyggingu kirkjunnar og starfsemi hennar með fjárframlögum sem meðlimir hafa með ýmsu móti safnað saman í gegnum tíðina. Á árum áður fór fjársöfnun meira fram með því að meðlimir kæmu saman og föndruðu til að afla fjár til starfseminnar, en breyttir tímar hafa sett mark sitt á fjáröflunaraðferðirnar og er rekstur félagsheimilis kirkjunnar aðal tekjuöflunarleið félagsins nú síðari árin.
Um 30 félagar eru skráðir, en misjafnlega virkir í starfseminni. Formenn Kvenfélags Selfosskirkju hafa verið 8 frá upphafi.
| Formenn | Nöfn | Tímabil |
| 1. | Stefanía Gissurardóttir | 1966-1971 |
| 2. | Guðbjörg Ólafsdóttir | 1971-1975 |
| 3. | Sigríður Sveinsdóttir | 1975-1976 |
| 4. | Steinunn Úlfarsdóttir | 1976-1978 |
| 5. | Valgerður Guðmundsdóttir | 1978-1994 |
| 6. | Ingveldur Guðbjörnsdóttir | 1994-1998 |
| 7. | Ingibjörg Ingadóttir | 1998-2000 |
| 8. | Eygló Gunnarsdóttir | 2000- |
Endurskoðuð 2010
a. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu um störf félagsins næstliðið ár.
b. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fram til samþykktar.
c. Skrifleg kosning í stjórn til næsta árs samkvæmt ákvæðum 4. greinar.
d. Kosning tveggja endurskoðenda og varamann þeirra að reikningum félagsins.
e. Lagabreytingar.
f. Önnur mál, sem fyrir liggja eða fram kunna að vera borin.
Reynist fundurinn ekki lögmætur ræður afl atkvæða á næsta félagsfundi.