Utanbókarlærdómur

Ætlast er til að verðandi fermingarbörn þekki vel til eftirfarandi:

Trúarjátningin:
Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontiusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga, almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft lif. Amen.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum.  Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.  Gef oss í dag vort daglegt brauð.  Og fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.  Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.  Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu.  Amen.

Þetta þrennt eiga þau að þekkja en velja eitt til að læra og segja utabókar í viðtalinu:

Kærleiksboðorðið: Þú skalt elska Drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. (Mark 12.30-31)

Gullna reglan:  Allt það sem þér viljið, að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. (Matt. 7.12)

Litla Biblían: Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóh.3.16)