Þriðjudagssamverur

Þriðjudagssamverur í Selfosskirkju hafa fest sig í sessi og tilhlökkun að fara að hittast á ný.
Fyrsta samvera vetrarins verður þriðjudaginn 17. september og verður svo annan hvern þriðjudag út nóvember. Samveran er heimilisleg og afslöppuð, við byrjum kl. 14:00, fáum góðan gest í heimsókn sem segir okkur eitthvað fróðlegt og skemmtilegt. Það er heitt kaffi á könnunni, samveran og spjallið gott. Yfirlit yfir gesti vetrarins verður birt hér á næstu dögum.