Aðalfundur 2. mars 2020

Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar 2020
Haldinn í safnaðarheimili Selfosskirkju 2.mars kl.20:00
Fundur settur af formanni. Björn Ingi Gíslason setti fundinn.
Starfsmenn fundarins skipaðir.
Jóhann Snorri Bjarnason skipaður fundarstjóri og Guðrún Tryggvadóttir ritari.
Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sl. ár.

a) Skýrsla formanns
Björn Gíslason formaður, flutti skýrsluna en prentuð ársskýrsla lá fyrir fundinum og var dreift til fundarmanna.
Stjórn og verkaskipting: Björn Ingi Gíslason formaður, Guðmundur Búason gjaldkeri, Guðrún Tryggvadóttir ritari, Þórður G. Árnason 1.varaformaður, Fjóla Kristinsdóttir 2.varaformaður, Meðstjórnendur: Guðrún Guðbjartsdóttir, Jóhann S. Bjarnason, Páll B. Ingimarsson og Petra Sigurðardóttir.
Varastjórn: Ragna Gunnarsdóttir 3.varaformaður, Sigurður Sigurjónsson, Eyjólfur Sturlaugsson, Örn Grétarsson, Sigurður Jónsson, Erla Rún Kristjánsdóttir, Margrét Óskarsdóttir, Hjörtur Þórarinsson, Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir.
Prestar: sr .Guðbjörg Arnardóttir sóknarprestur, sr. Ninna Sif Svavarsdóttir prestur og sr. Axel Árnason Njarðvík héraðsprestur.

Starfsfólk: Guðný Sigurðardóttir kirkjuvörður, Anna Jakobína Hilmarsdóttir aðstoðarkirkjuvörður, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir æskulýðsfulltrúi, Ester Ólafsdóttir stjórnandi kirkjukórs, Eyrún Jónasdóttir stjórnandi barna- og unglingakórs, Vilhjálmur Eggertsson, Ágústa Rúnarsdóttir og Rebekka Kristinsdóttir meðhjálparar, Ína Stefánsdóttir ræstitæknir. Umsjón með safnaðarheimili Hugrún Kistín Helgadóttir.
Safnaðarfulltrúi: Þórður G. Árnason.
Fundir:  Sóknarnefnd fundaði reglulega fjórða þriðjudag í mánuði samtals 8 stjórnarfundi ásamt nokkrum aukafundum.
Edit komin úr leyfi: Edit Anna Molnár stjórnandi kirkjukórs, barna- og unglingakórs er komin til starfa að loknu ársleyfi, en þær Ester Ólafsdóttir og Eyrún Jónasdóttir hafa látið af störfum.
Starfsmannaviðtöl:  Haldið var áfram að taka starfsmannaviðtöl.
Samstöðufundur: Sóknarnefnd aðal-og varamenn og allt starfsfólk kirkjunnar komu saman 10.sept.sl. og fræddust um siðareglur þjóðkirkjunnar og vinnureglur Selfosskirkju vegna kynferðisbrota.
Umhirða lóðar: Fyrirtækið Snælandsgarðar hafa séð um umhirðu og frágang lóðar og kirkjugarðs sl. tvö ár.
Kirkjufréttir: Kom út aðeins einu sinni á árinu í breyttu útliti.
Páskakaffi:  Sóknarnefnd bauð kirkjugestum í morgunverð á páskadagsmorgun eins og undanfarin ár, um 100 manns mættu.
Héraðsnefndarfundur í Suðurprófastsdæmi var haldinn í Vík í Mýrdal 23. mars sl. fulltrúi Selfosssóknar var Björn Ingi Gíslason.
Umsókn í jöfnunarsjóð: Tekin var ákvörðun um að sækja um framlag úr jöfnunarsjóð  Þjóðkirkjunnar vegna kostnaðar við neyðar- og leiðarlýsingu.
Sameining prestakalla: Á fundi sóknarnefndar var samþykkt tillaga frá biskupafundi um sameiningu Selfossprestakalls og Eyrabakkaprestakalls.
Sóknasamband stofnað: Selfosskirkja átti tvo fulltrúa (Þórð og Pál) á undirbúningsfundi 26.okt. að stofnun Sóknasambands Þjóðkirkjunnar.
Ársfundur kirkjugarða: Guðný kirkjuvörður mætti fyrir okkar hönd á ársfund kirkjugarðasambandsins sem haldinn var á Egilstaðum 8. júní sl.
Heimsókn til Keflavíkur: Sóknarnefnd, prestar og allt starfsfólk Selfosskirkju fóru í heimsókn 28. maí til sóknarnefndar Keflavíkurkirkju. Von er á sóknarnefnd Keflavíkurkirkju til okkar í maí nk.
Sr. Ninna Sif hættir: Þann 1.des. sl. var sr. Ninna Sif Svavarsdóttir ráðin sóknarprestur til Hveragerðisprestakalls. Kveðjumessa fór fram 8. des. þar sem sóknarnefnd færði henni gjöf og bauð kirkjugestum til kaffisamsætis af því tilefni.
Afleysingaprestur: Þann 1. des. var sr. Gunnar Jóhannesson settur prestur í Selfossprestakalli þar til prestur verður ráðinn.
Viðgerðir og viðhald: Lýsing í safnaðarheimili bætt, lokið við neyðar- og leiðarlýsingu, brunavarnir að verða fullkomnar. Gert var við kirkjuorgelið þegar belgurinn sprakk í sumar.
Kirkjugarðurinn: Kirkjuvörður heldur garðinum snyrtilegum, Valdimar Friðriksson hefur sett upp merkingar í nýjasta hlutanum.
Mál sem voru rædd: Umsókn um djáknastarf, eflingu barna- og unglingastarfs með sérstakri kynningu, barna- og unglingakórastarfið, hugmynd til að endurvekja samstarf kóra vegna aðventutónleika, stofnun hollvinafélags, úrbætur vegna rakaskemmda, viðgerðir á rennum, lagfæra girðingu við göngustíg, skimun starfsfólks og sóknarnefndar, nýjan kirkjugarð, fund með þingmönnum Suðurlands og aðhaldsaðgerðir í rekstri kirkjunnar.
Að lokum þetta: Ég get með góðri samvisku sagt að allt samstarf innan sóknarnefndar, við presta og starfsfólk kirkjunnar sé með miklum ágætum. Ég tel að allir leggi sig fram um að gera sitt besta og að starfið sem fram fer í Selfosskirkju sé til fyrirmyndar. Það skiptir máli að hafa góða presta, gott starfsfólk, góðan kirkjukór, barna- og unglingakór og gott æskulýðsstarf, það gerir kirkjuna áhugaverða. Sóknarnefndin er þakklát  því fólki sem þessu skilar. Að lokum þakka ég samstarfsfólki mínu, þ.e. sóknarnefnd, prestum og öðrum gott samstarf. Höldum áfram farsælu starfi fyrir kirkjuna okkar.

b) Sr. Guðbjörg Arnardóttir flutti skýslu presta.
Safnaðarstarf hefur verið með hefðbundnum hætti eins og undanfarin ár.  Það er hið hefbundna helgihald og messan hvern sunnudag, einu sinni í mánuði yfir vetrartímann fjölskyldumessa með æskulýðsfulltrúa og iðulega barna- eða unglingakór.  Eftir áramót hafa ekki verið neinar kvöldmessur og má segja að það sé liður í sparnaði en eitthvað sem þarf að skoða og jafnvel hugsa upp á nýtt.  Helgihald í Selfosskirkju er vel mótað enda á það sér sína löngu sögu og hefð og sannarlega tilefni til að halda áfram hinni klassísku messu á lofti en um leið fullt tilefni til að opna á endurskoðun eða bæta við þeim messum þar sem við bregðum út af hefðinni með þemamessum eða öðru slíku eins og messan sem var hér sl. konudag og þótti afar vel heppnuð.  Súpan er á sínum stað yfir vetrartímann, Hugrún K. Helgadóttir sem einnig sér um útleigu á Safnaðarheimilinu hefur yfirumsjón með súpunni og er ákveðinn súpuhóur sem skiptir því á milli sín að sjá um súpuna.  Það er pláss fyrir fleiri áhugasama að slást í þann hóp.    
Fermingarstörfin eru mikilvæg nú sem áður.  Hlutfall þeirra barna sem velja að fermast í kirkjunni er hátt í Selfossprestakalli en við verðum vör við að það er ekki lengur eins sjálfgefið að fermast í kirkju eins og var og hlutfall borgaralegra ferminga fjölgar á hverju ári bæði hér og á höfuðborgarsvæðinu.  Það er er því fullt tilefni til þess að vera á tánum og vanda vel til fermingarfræðslunnar sem er ekki síður það sem kalla á skírnarfræðsla og því hluti af því barna- og æskulýðsstarfi sem standa þarf vörð um.  Við vorum með námskeið í ágúst í þrjá daga og við fórum einnig í Vatnaskóg.  Við þökkum sóknarnefnd fyrir þann styrk að greiða rútuna fyrir þau.  Ferðin er einnig styrkt af Héraðssjóði Suðurprófastdæmis.  Ferðin í Vatnaskóg var vel heppnað og góð upplifun fyrir fermingarbörnin oft er ferðin það sem stendur upp úr fræðslunni.
Prestar fara með reglubundnum hætti að lesa og ræða við heimilisfólk á Ljósheimum og Fossheimum.  Einnig er farið mánaðarlega í heimsókn í Vinaminni og Árblik sem er dagvistun aldaðra og koma þau fyrsta fimmtudag í mánuði í tíðasöng og kaffisopa á eftir.  Það er starfsfólk Selfosskirkju sem hefur veg og vanda af kaffinu ásamt því að njóta aðstoðar Eyglóar Jónu Gunnarsdóttur. 
Í haust breyttum við tímanum á morgunbænunum, þær eru nú kl. 9:15,  þrisvar sinnum í viku, þriðjudaga til fimmtudaga.  Er alltaf svipaður fjöldi sem mæta í þessar stundir en gaman væri að sjá þar stærri hóp.
Eins og heyra má af skýrslum starfsfólks fer mikið starf fram í kirkjunni og líklega meira en fólk almennt telur.  Það er jákvæður og góður andi í samstarfi og samvinnu allra sem koma hér að starfinu hvort sem það er launað starfsfólk eða sjálfboðið starf og skipta hér allir máli, sem mikilvægir hlekkir í þeirri keðju sem starfið er í heild sinni, allt unnið fyrir kirkjuna og í þjónustu við fólkið.  Í gildi er samstarfssamningur við Sveitarfélagið Árborg, sem greiðir árlega upphæð til kirkjunnar sem stuðning við barna- og æskulýðsstarf.
Í vetur urðu breytingar þegar Ninna Sif Svavarsdóttir hætti hér störum 1. desember.  Það er ekki spurning að það er söknuður að henni fyrir okkur öll en bæn okkar og vissa að henni farnist vel á nýjum stað.  Sú afleysing sem fyrir hana kom strax með Gunnar Jóhannessyni hefur gengið mjög vel og samstarfið gekk strax upp.  Axel höfum við einnig haft en starf hans hjá okkur er ekki fest nema eitt ár í senn. 
Ég vil þakka sóknarnefnd og öllu samstarfsfólki fyrir gott samstarfs og hlakka til komandi tíma í starfi sóknarinnar.  Það er góður og hlýr andi í þeim hópi sem hér starfar og gleði og er það þakkarvert. 
Tölulegar upplýsingar um helgihald og úr kirkjubókum.
Messur og fjölskylduguðsþjónustur í Selfosskirkju:
2019:  64                     2018:  66
Messugestir:
2019:  7627                 2018:  6937
Tíðasöngur 150 samverur og samtals mætt 1804
Sunnudagaskóli 23 samverur mætt 465
Altarisgestir 2154
Útfarir skráðar í prestsþjónustubók:  52
Skírnir skráðar í prestsþjónustubók:  78
Hjónavígslur skráðar í prestsþjónustubók:  19
Börn fermd:  115

c) Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir æskulýðsfulltrúi flutti sína skýrslu.

Aðalsafnaðarfundur Selfosskirkju 26. febrúar 2019

Það sem heyrir undir æskulýðsstarf í Selfosskirkju er sunnudagskóli, kirkjuskóli, TTT (10-12 ára starf), æskulýðsfélag, foreldramorgnar, fjölskyldumessur, umsjón með leiðtogum kirkjunnar, kirkjubrall og aðventuheimsóknir leik og grunnskóla.

Sunnudagaskólinn fór mjög vel af stað í haust og var fín mæting fyrir áramót. Mæting á það til að dala ögn þegar hann hefst aftur á nýju ári og er því nauðsynlegt að augýsa starfið vel til að minna á það sem í boði er. Auglýst hefur verið á Facebook sem og Instragram. Nú í febrúar og mars hefur verið gefin út sunnudagaskóla dagskrá mánaðarins og virðist það hafa góð áhrif á mætinguna sem og að vera með fjölbreyttar uppákomur í bland við fasta liði.
Kirkjuskóli er í báðum skólum sveitarfélagsins. Í Sunnulækjarskóla á þriðjudögum kl. 13:10 og á fimmtudögum kl. 13:00 í Vallaskóla.  Kirkjuskóli er fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára. Ný persónuverndarlög hafa þau áhrif að nú að netfangalisti fæst ekki lengur hjá skólunum og því var kirkjuskóli auglýstur á Facebook eins og annað starf kirkjunnar. Þeir foreldar sem skráðu börnin sín síðasta vetur fengu þó tölvupóst um fyrirhugaðan kirkjuskóla í haust þar sem þeirra netföng voru tiltæk. Í kirkjuskólann mæta um 30 -40 börn á viku í báðum skólum er það örlítil fækkun frá síðasta vetri. Anna Rut Hilmarsdóttir aðstoðar í kirkjuskóla í Sunnulækjarskóla eins og síðasta vetur.
10 – 12 ára starfið
Fór mjög vel af stað í haust eða um 40 – 50 börn þegar mest var. Ákveðið jafnvægi kemst á mætinguna þegar líður á haustið og mætir góður kjarni í starfið í dag eða um 15 börn.  Farið er í leiki, spuna, sungið og endað á bænastundum inni í kirkju og er þetta dýrmætur hluti af fundinum og góð stund með börnunum en þarna gefst oft tækifæri til að spjalla um líðandi stund. Framundan hjá TTT er flutiningur á frumsömdu leikriti í fjölskyldumessu 3. mars og TTT mót í Vatnaskógi 16. – 17. mars.
Æskulýðsfélagið Kærleiksbirnir hittist á þriðjudögum kl. 19:30. Að þessu sinni hófust fundir hjá æskulýðsfélaginu rétt eftir miðjan ágúst eða töluvert fyrr en síðustu ár. Mætingin hefur verið einstaklega góð og varð mikil endurnýjun í hópnum. Áttundi bekkur er þar í stærstum hluta. Æskulýðsfélagið fór á landsmót ÆSKÞ á Egilsstöðum í lok okóber, hópurinn fjáraflaði fyrir mótinu með Biblíumaraþoni sem er hefð er orðin fyrir. Hópurinn frá Selfossi var stærsti hópurinn á mótinu. Þema mótsins var „Leikandi landsmót“ en markmiðið var að rjúfa félagslega einangrun. Krakkarnir fengu fræðslu, lærðu nýja leiki í stöðvum vítt og breytt um Egilsstaði, tóku þátt í ratleik, hæfileikakeppni, sundlaugardiskói, helgistundum og balli. Æskulýðsfélagið er ný komið af febrúar móti í Vatnaskógi sem er mjög afslappað mót á vegum ÆSKR. Þar gefst krökkunum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá ásamt því að fá nægan frjálsan tíma tíma. Þar var hópurinn frá Selfossi einnig sá stærsti og með flestu drengina með í för. Það er gaman að segja frá því að á hverju ári er atriðakeppni í Vatnaskógi og var það Viktor Kári Garðarsson frá æskulýðsfélaginu Kærleiksbirnunum sem bar sigur úr bítum með því að syngja lagið Rósina!
Fastir liðir æskulýðsstarfsins eru vöfflukvöld, Biblíumaraþon, Jól í skókassa, Landsmót, febrúarmót í Vatnaskógi og ómissandi æskulýðsfundir þar sem farið er í leiki, borðaður matur, fíflast, hlegið og verið sem er nú það mikilvægasta. Að unglingar fái tækifæri til að mæta á öruggan stað og verið þau sjálf. Það er gott að hafa metnaðarfulla dagskrá á æskulýsfundum en það er jafnframt mikilvægt að geta bara komið og hangið. Til að hægt sé að hanga þá er einnig mikilvægt að geta boðið upp á góða aðstöðu til þess.
Foreldramorgnar hafa verið mjög vel sóttir þannan vetur. Á foreldramorgnum gefst foreldrum ungra barna gott tækifæri til þess að hittast.  Foreldramorgnar eru á miðvikudögum kl. 11 – 12:30. Fastir liðir eru fræðsluerindi frá hjúkrunarfræðingum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og eru þau erindi alltaf vel sótt. Í haust voru fyrirlestrar um “Tengslamyndun og tákn ungbarna”,  “Næringu ungbarna” og nú í janúar fræðsla um “Svefn og svefnvanda ungbarna”. Á haustönninni höfum við fengið fleiri góðar heimsóknir. Í september kom Gunna Stella heilsumarkþjálfi og fræddi hópinn um Frumnæringu, í október kom Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri og hélt fyrirlesturinn: “Að láta drauma sína og markmið rætast”. Í nóvember kom Svanhildur Inga Ólafsdóttir, fjölskyldufræðingur hjá Velferð og fræddi hópinn um Samskipti. Í desember fengum við heimsókn frá Bókasafninu á Selfossi þar sem kynntar voru nokkrar bækur úr jólabókaflóðinu ásamt kynningu á góðum og gagnlegum fræðlsubókum fyrir foreldra ungra barna. Síðasta miðvikudaginn í hverjum mánuði eru rúnstykki á boðstólum í boði Guðna bakara en það frábæra samstarf hefur verið í gangi síðastliðin þrjú ár. Framundan er áhugaverð dagskrá m.a heimsókn frá Yoga sálum, skyndihjálparnámskeið, fræðsla um líðan mæðra á meðgöngu og eftir barnsburð og erindi frá Ernu Kristínu um jákvæða líkamsímynd. Það má vekja athygli á að nánast öll þessi erindi eru unnin í sjálfboðavinnu þeirra sem flytja.
Fjölskyldumessur eru einu sinni í mánuði og eru þær skipulagðar í samstarfi við presta Selfosskirkju og organista. Þær eru uppbrot frá hefðbundinni messu, áhersla lögð á efni fyrir börnin og unglingana í kirkjunni. Brúðurnar úr sunnudagaskólanum koma fram og lesin eða leikin biblíusaga. Góð stund fyrir alla fjölskylduna og hafa þær verið vel sóttar í vetur.
Leiðtogar Selfosskirkju eru þær Katrín Ragna Jóhannsdóttir, Brynhildur Ágústsdóttir, Kolbrún Edda Jensen, Bjarki Birgisson og Díana Ösp Davíðsdóttir. Þær hafa allar farið í Farskóla leiðtogaefna en það er tveggja ára nám. Anna Rut Hilmarsdóttir aðstoðar í kirkjuskóla og Sigurður Einar Guðjónsson sér um undirspil í sunnudagaskóla. Nemendur í leiðtogaskólanum hafa einnig létt undir í æskulýðsstarfinu.
Farskóli leiðtogaefna
Farskólinn hófst í haust og kenndur á mánudögum. Kennari er Magnea Sverrisdóttir kennari og djákni Daníel Ágúst Gautason guðfræðinemi. Farskólinn var haldinn í Selfosskirkju 19. janúar en staðsetning hans ræðst af því hvaðan nemendurnir koma. Þær Elín María Eiríksdóttir, Sigurbjörg Steinarsdóttir, Aþena Sól og Sara Líf Ármannsdætur sóknarbörn Selfosskirkju eru nemendur farskólans. Hér er á ferðinni mikill mannauður sem Selfosskirkja er heppin að hafa í sínu starfi. Án þeirra væri ekkert æskulýðsstarf.
Aðventuheimsóknir skólanna. Aðventuheimsóknirnar voru einstaklega ánægjulegar og vel nýttar en 1. – 4. bekkingar í báðum skólum bæjarins nýttu þetta boð sem og allir leikskólarnir nema einn. Nokkrir eldri bekkir nýttu boðið einnig og voru það um 1000 nemendur sem heimsóttu kirkjuna þessa aðventuna. Eins og síðustu ár fengu krakkarnir að sjá frumsamið leikrit eftir sóknarprest Selfosskirkju. Ferðamaður kemur í heimsókn í kirkjuna og hefur hann ekki komið í kirkju áður. Starfsmaður kirkjunnar fræðir hann um helstu athafnir kirkjunnar og fær hjálp ferðamannsins til að segja krökkunum söguna af Jesúbarninu þar sem hann þekkti til sögunnar. Það var ánægulegt að fréttamaður Stöðvar 2 á suðurlandi sá ástæðu til þess að flytja frétt af þessum heimsóknum í Íslandi í dag. Facebook
Selfosskirkja er bæði með facebooksíðu og heimasíðu þar sem allt starfið er auglýst. Foreldramorgnar,æskulýðsfélagið og TTT eru með lokaða hópa þar sem starfið er kynnt hverju sinni. Sunnudagskólinn er með sér síðu fyrir tilkynningar. Ný persónuverndarlög hafa haft þó nokkur áhrif á hvernig starfið er auglýst og nú eru ekki birtar myndir af þátttakendum í æskulýðsstarfinu á samfélagsmiðlum þar sem trú flokkast undir mikilvægar persónuupplýsingar. Heimilt er að birta myndir á heimasíðu kirkjunnar.
Námskeið, ráðstefnur og fundir
Æskulýðsfulltrúi sækir ýmis námskeið svo sem haustnámskeið bisupsstofu en á námskeiðinu er námsefni sunnudagaskólans kynnt og stótti ráðstefnu á vegum áhugafélags um Guðfræðiráðstefnur. Æskulýðsfélag Selfosskirkju er félagi í ÆSKÞ og hefur atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins sem verður annað kvöld.
Að lokum vil ég þakka skólayfirvöldum á Selfossi fyrir afar gott samstarf og jákvætt viðmót í garð kirkjustarfsins.

d) Jóhann Snorri Bjarnason formaður kirkjukórs sagði frá starfi kórsins.
Starf Kirkjukórs Selfosskirkju árið 2019 var hefðbundið.  Meginhlutverk  kórsins er að syngja við athafnir og helgihald kirkjunnar.  Að auki stendur kórinn fyrir viðburðum, ýmist einn eða í samstarfi við aðra hópa.  Félagslíf er einnig öflugt og stendur kórinn fyrir ýmsum uppákomum og skemmtunum. Edit Molnár kom úr árs leyfi í sumarlok og tók við sínu starfi við kirkjuna sem organisti og söngstjóri allra kóra.
Tímatal kirkjukórsins miðast við kirkjuárið og er því frá 1. Í aðventu.
Athafnir og mætingar kórfélaga eru sem hér segir:
Messur            tæplega 50
Útfarir             um 35
Æfingar           um 40
Í hönd fer mikill anna- og skemmtitími hjá kórnum sem eru páskar og fermingar.
Fyrirhuguð er söngferð til norður Ítalíu í júní.  Sem stendur er nokkur óvissa með ferðalög á þetta svæði en vonandi verður allt um garð gengið í sumar byrjun.
Eins og sjá má er kórstarfið öflugt og þörfin fyrir þjónustu hans mikil.  Undanfarin ár hefur fjöldi jarðarfara  tvöfaldast þar sem þjónustu kórsins er óskað.
Endurnýjun söngfólks er stöðug og losar nú fjöldi kórfélaga fjórða tuginn.
e) Edit Anna Molnár kórstjóri fór yfir starf barna og unglingakórs
            Allar skýrslur voru samþykktar samhljóða.
Endurskoðaðir reikningar sóknar og kirkjugarðs.
Guðmundur Búason, gjaldkeri, greindi frá ársreikningum Selfosskirkju, Hjálparsjóðs Selfosskirkju og Kirkjugarði Selfoss. Niðurstöðutölur reikninga eru sem hér segir:

Selfosskirkja   Rekstrarreikningur Tekjur Gjöld Tekjuafgangur
62.586.526 59.662.984 2.923.542
Efnahagsreikningur   Fastafjármunir Veltufjármunir Skuldir og eigið fé
466.991.660 21.753.336 488.744.996
  Kirkjugarður   Rekstrarreikningur Tekjur Gjöld Tekjuafgangur
13.129.435 13.486.952 – 357.517
Efnahagsreikningur Eigið fé Veltufjármunir Skuldir og eigið fé
7.831.280 10.878.359 10.878.359
       
     

Reikningarnir voru bornir upp hver fyrir sig og voru allir samþykktir samhljóða.
Starfsemi héraðsnefndar og héraðsfunda
Björn fór á fundinn sem haldin var í Vík í Mýrdal 23. mars sl.og sagði frá. Vígslubiskup var með hvatningarræðu og hvatti fólk að koma í heimssókn í Skálholt.  Formaður sóknarnefndar Hruna vill opna umræðu um starf sóknarnefndar.  Umræða var um persónuverndarlögin sem eru mismunandi túlkuð og flókin að fylgja.
Ákvörðun um framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar,
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 var lögð fram.
Guðmundur fór yfir áætlun fyrir bæði kirkju og kirkjugarðinn.  Hjá Selfosskirkju eru tekjur áætlaðar 60,5 m.kr. en gjöld 58,3 m.kr. og tekjuafgangur 2,2 m.kr. Hjá Kirkjugarði Selfoss eru áætlaðar tekjur kr. 14,3 m.kr., gjöld 11,7 m.kr. og tekjuafgangur 2,6 m.kr.
Guðmundur nefndi að nú væri komin ný lagaheimild um að kirkjan megi sjálf reyna að afla sér tekna td. hvort ætti að senda út greiðsluseðla á bæjarbúa.
Björn sagðist ekki vera viss hvort þetta væri rétta.
Báðar áætlanirnar voru samþykktar samþykktar.
Kosningar sóknarnefndar- og varamenn til 4ára
Engin kosning í ár.
Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara
Kristín Péturdóttir og Guðmundur Theodórsson voru endurkosin sem skoðunarmenn. Varamenn voru einnig endurkjörnir, þeir Halldór Magnússon og Leifur Guðmundsson.
Kosningar í aðrar nefndir og ráð
Erla Guðrún Kristjánsdóttir óskar eftir að ganga úr kjörnefnd og inn í hennar stað var kosinn Guðmundur Björgvin Gylfason.
Önnur mál
Björn sagði frá bréfinu sem barst í dag frá Sr. Halldóru prófasti um fyrirhugaðar prestkostningar.
Fundi slitið kl. 22:00

Nýlegar færslur

Kvöldmessa og sunnudagaskóli í Selfosskirkju

Sunnudaginn 19. mars verður sunnudagaskóli á hefðbundnum tíma kl. 11:00. Þar verða Sjöfn, Katrín og Dóra á sínum stað og sunnudagskólinn fær góða gesti því Stjörnukórinn kemur í sunnudagaskólann og syngur, Stjórnukórnum stjórna Edit og Kolbrún Hulda.

Kvöldmessa verður kl. 20:00. Þar koma fram hjónin Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir. Kirkjukórinn og Unglingakórinn syngja einnig, stjórnandi er Edit A. Molnár. Prestur verður Guðbjörg Arnardóttir.

Í prestakallinu þennan sunnudag verða fleiri messur því messa verður í Eyrarbakkakirkju kl. 11:00, Kammerkór Eyrarbakkakirkju syngur og Gunnlaugur Bjarnason syngur einsöng. Organisti er Pétur Nói Stefánsson og prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Messa verður einnig í Hraungerðiskirkju kl. 14:00, Kirkjukórinn syngur, organisti er Guðmundur Eiríksson og prestur Guðbjörg Arnardóttir.

  1. Tónlistarmessa 10. mars Skildu eftir svar
  2. Sunnudagur í Selfosskirkju Skildu eftir svar
  3. Aðalsafnaðarfundur Selfosssóknar Skildu eftir svar
  4. Þriðjudagssamvera Skildu eftir svar
  5. Messa í Selfosskirkju Skildu eftir svar
  6. Kvöldguðsþjónusta 18. febrúar Skildu eftir svar
  7. Stjörnukór byrjar fljótlega Skildu eftir svar
  8. Messa í Selfosskirkju á Biblíudaginn Skildu eftir svar
  9. Kvöldguðsþjónusta 18. febrúar Skildu eftir svar