Sunnudaginn 4. nóvember, á Allra heilagra messu, verður guðsþjónusta í Selfosskirkju kl. 11. Við komum saman til að minnast og til að þakka og tendrum ljós í minningu látinna ástvina. Kór kirkjunnar syngur, prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Á sama tíma er sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu í umsjón Jóhönnu Ýrar og leiðtoga í æskulýðsstarfinu. Að messu lokinni er borin fram súpa og brauð gegn vægu gjaldi.