Sunnudaginn 20. september er messa og sunnudagaskóli kl. 11. Í messunni þjónar sr. Ninna Sif Svavarsdóttir, kirkjukórinn syngur og organisti er Jörg Sondermann. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir æskulýðsfulltrúi sér um sunnudagaskólann ásamt leiðtogum. Að lokinni messu og sunnudagaskóla verður boðið upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu. Góð og nærandi morgunstund í kirkjunni á sunnudag, verum öll velkomin. Sjáumst í kirkjunni!