Næstkomandi sunnudagskvöld 21.maí verður hressandi og skemmtileg kvöldstund í Selfosskirkju. Kvöldmessa hefst kl. 20 þar sem Sóli Hólm mun fara með gamanmál og e.t.v. taka nokkur lög eins og honum einum er lagið. Messan er haldin í samstarfi við Bifreiðaklúbb Suðurlands sem mun eftir messu bjóða messugestum að skoða bíla sína á bílastæðinu við kirkjuna og boðið verður upp á kaffisopa í safnaðarheimilinu. Prestur er sr. Ninna Sif Svavarsdóttir.