Næstkomandi sunnudagskvöld 22.október verður kvöldmessa í Selfosskirkju. Karitas Harpa Davíðsdóttir ætlar að syngja við undirleik Stefáns Þorleifssonar. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Kvöldmessur í Selfosskirkju eru notalegar og nærandi stundir þar sem hið hefðbundna messuform er brotið upp. Í aðalhlutverki er falleg tónlist og orð Guðs sem byggir upp og nærir. Það verður gott að koma – sjáumst í kirkjunni!