Sunnudaginn 12. nóvember er Kristniboðsdagurinn og því sérlega viðeigandi að tvö börn verði borin til skírnar í guðsþjónustunni klukkan 11. Edit og kirkjukórinn leiða sönginn og séra Ása Björk þjónar söfnuðinum.
Sunnudagaskóli klukkan 11 í umsjá Sjafnar og leiðtoganna.
Öll eru innilega velkomin!