Sunnudaginn 7.október verður fjölskyldumessa í Selfosskirkju kl. 11. Unglingakórinn syngur undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttir. Umsjón með stundinni hafa Jóhanna Ýr og Ninna Sif.
Kl. 13.30 er guðsþjónusta í Hraungerðiskirkju. Söngkór Villingaholts – og Hraungerðissókna syngur og leiðir safnaðarsöng, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar.