Vegna ferminga 2021

Hefðin hefur verið sú að bjóða foreldrum á upplýsinga- og kynningarfund í kirkjunni en vegna aðstæðna í samfélaginu er það ekki mögulegt eins og stendur.  Þess í stað bendum við þeim sem áhuga hafa á að kynna sér fermingarfræðsluna í Selfossprestakalli að fara inn á heimasíðu Selfossprestakalls (selfosskirkja.is) þar sem finna má allar upplýsingar undir liðnum fermingarstörfin.

Þar munu einnig væntanlegir fermingardagar vorsins 2021 verða settir og hlekkur á slóð þar sem hægt er að skrá barn í fræðsluna og velja fermingardag. Einnig verða þar upplýsingar um hvenær opnað verður fyrir skráninguna.  Í framhaldinu mun verða hægt að miðla upplýsingum í gegnum þau netföng sem þar verða skráð.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *