Tilkynning vegna breytinga á samkomubanni

Þann 4. maí taka í gildi breytingar á samkomubanni og verður kirkjum samkvæmt tilmælum biskups heimilt að hefja opið helgihald á ný sunnudaginn 17. maí.  Helgihaldið er eðlilega bundið fyrirmælum yfirvalda um sóttvarnir.  Ekki verður fleirum en 50 heimilt að koma saman og halda verður tveimur metrum á milli einstaklinga.  Ekki verður altarisganga enn um sinn og prestur mun ekki heilsa folki með handabandi. Verði fjöldi kirkjugesta umfram það sem leyfilegt er mun fólk getið fylgst með á skjá í safnaðarheimili kirkjunnar.   Sunnudaginn 17. maí verður hin árlega krossamessa kl. 11:00. Þar fá þau sem útskrifast úr Unglingakórnum afhenda krossana sína að gjöf frá kirkjunni og mun Unglingakórinn syngja í messunni.  Sunnudaginn 24. maí verður hefðbundin guðsþjónusta kl. 11 og á hvítasunnudag verður útimessa í Hellisskógi kl. 11:00.  
Þegar aðrar breytingar verða gerðar á samkomubanni verður þeim fylgt. Morgunbænastundir kl. 9:15 hefjast á ný þriðjudaginn 19. maí og verða eins og áður þrjá daga vikunnar, þriðju-, miðviku- og fimmtudag.
Við prestarnir minnum á að við erum eins og fyrr reiðubúin til viðtals og sálgæslu hvort sem er á skrifstofu okkar í kirkjunni eða í gegnum síma. Við vonum að sumarið verði öllum gott og gleðilegt.

Guðbjörg Arnardóttir gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is eða 8654444 Gunnar Jóhannesson gunnar.johannesson@kirkjan.is eða 8929115
Axel Árnason Njarðvík axel.arnason@kirkjan.is eða 8982935.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *