Biblíudagurinn er haldinn hátíðlegur í kirkjum landsins sunnudaginn 8. febrúar. Þá verður minnst 200 ára afmælis hins íslenska Biblíufélags, elsta starfandi félags á Íslandi. Messa er í Selfosskirkju kl. 11. Prestur sr. Þorvaldur Karl og organisti Edit Molnar. Kirkjukór Selfoss syngur. Umsjón með barnastarfi hefur Hugrún Kristín Helgadóttir. Kaffi og súpa í hádeginu. Sjá nánar um Biblíudaginn hér . Allir velkomnir.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: febrúar 2015
Innritun lokið
Innritun í barna og unglingakór fyrir vormisseri er nú lokið. 23 börn og 28 unglingar telja nú barna- og unglingakór Selfosskirkju.