Hvers vegna var það fiskur sem var veiddur þarna strax eftir upprisuna? Hvers vegna er fiskurinn svona merkilegur í sögunni? Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 28. apríl 2019 kl. 11 – sem er fyrsti sunnudagur eftir páska. Prestur er Axel Á Njarðvík, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Kirkjukórinn leiðir söng. Verið öll velkomin.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: apríl 2019
Helgihald í dymbilviku og um páska í Selfossprestakalli
Helgihald í dymbilviku og um páska í Selfossprestakalli
Skírdagur 18. apríl
Fermingarmessa í Selfosskirkju kl. 11:00
Fermingarmessa í Laugardælakirkju kl. 13:30
Föstudagurinn langi
Pílagrímaganga á föstudaginn langa – Golgataganga. Gangan hefst með stuttri helgistund í Selfosskirkju kl. 9:45. Gengið verður til Laugardælakirkju og þar hefst helgistund kl. 11.45. Göngustjórar eru sr. Axel Árnason Njarðvík og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Allir eru velkomnir að slást í hópinn og svo er líka hægt að sækja helgistundir á báðum stöðum þótt fólk taki ekki þátt í göngunni. Göngufólk er beðið að koma vel skóað, klætt eftir veðri og með nesti.
Páskadagur
Hátíðarmessa í Selfosskirkju kl. 08:00. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, prestur Guðbjörg Arnardóttir. Morgunverður í boði og umsjón sóknarnefndar Selfosskirkju í Safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Hátíðarmessa í Villingaholtskirkju kl. 11:00. Söngkór Hraungerðis- og Villingaholtssókna syngur undir stjórn Inga Heiðmars Jónssonar. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Annar páskadagur
Hátíðarmessa í Hraungerðiskirkju kl. 11:00. Söngkór Hraungerðis- og Villingaholtssókna syngur undir stjórn Inga Heiðmars Jónassonar. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Pílagrímaganga á föstudaginn langa – Golgataganga.
Föstudaginn langa, föstudaginn 19.apríl, verður gengin pílagrímaganga frá Selfosskirkju í Laugardælakirkju.
Gangan hefst með stuttri helgistund í Selfosskirkju kl. 9:45. Gengið verður til Laugardælakirkju og þar hefst helgistund kl. 11.45. Göngustjórar eru sr. Axel Árnason Njarðvík og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Allir eru velkomnir að slást í hópinn og svo er líka hægt að sækja helgistundir á báðum stöðum þótt fólk taki ekki þátt í göngunni. Göngufólk er beðið að koma vel skóað, klætt eftir veðri og með nesti.
Pálmasunnudagur í Selfosskirkju
Sunnudaginn 14.apríl, pálmasunnudag, er fermingarmessa í Selfosskirkju kl. 11. Prestar eru þær sr. Guðbjörg Arnardóttir og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Kór kirkjunnar syngur, organisti Ester Ólafsdóttir.
Á sama tíma er sunnudagaskóli á baðstofuloftinu í umsjón Jóhönnu Ýrar og leiðtoganna. Allir hjartanlega velkomnir!