Fjölskylduguðsþjónusta verður í Selfosskirkju sunnudaginn 1. október kl. 11:00. Dúkku- og bangsablessun, krakkar hvött til að koma með dúkkuna sína eða bangsann. Barna- og Unglingakórinn syngur og leiðir söng. Hefðbundinn sunnudagaskóli fellur niður.
Eftir athöfnina verður boðið upp á hressingu og útifata-skiptimarkaður verður í Safnaðarheimilinu milli kl. 12-14.
Messa með altarisgöngu þar sem sköpunarþemað verður gegnumgangandi, klukkan 11.
Ester organisti og kór kirkjunnar leiða okkur í söngnum, en Guðmundur meðhjálpari og séra Ása Björk leiða messuna. Íris kirkjuvörður verður á staðnum og býður uppá kaffisopa eftir messuna. Fermingarbörn og fjölskyldur sérstaklega hvött til að ganga til altaris. Öll eru hjartanlega velkomin!
Á morgun fimmtudag kl. 20:00 er annar kynningarfundur á 12 spora starfinu sem boðið verður upp á í Selfosskirkju í vetur. Fundurinn er á safnaðarloftinu þar sem safnaðarheimilið er upptekið vegna kóræfingar.Endilega kynnið ykkur gefandi og nærandi starf 12 sporanna.
Eftir messu sunnudaginn 1. október verður útifata-skiptimarkaður í safnaðarheimili kirkjunnar. Markaðurinn er ætlaður útifötum í barnastærðum. Hver sem er getur komið með útiföt sem ekki nýtast á heimilinu og tekið með sér eitthvað nytsamlegt.
Messa verður í Selfosskirkju sunnudaginn 10. september kl. 11:00.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Edit A. Molnár, prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Sunnudagaskóli á sama tíma kl. 11:00, umsjón Sjöfn Þórarinsdóttir ásamt leiðtogum.
Gulur september er samvinnverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Þjóðkirkjan er hluti af verkefninu og er það von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.
Verður í messunni vakin athygli á verkefninu og Gulum september ;
Sömuleiðis er gaman að geta þess að starfsfólk Selfosskirkju mun nk. þriðjudag 12. september klæðast einhverju gulu.
Morgunbænir eru í Selfosskirkju alla þriðju-, miðviku- og fimmtudaga kl. 9:15. Bænastundin fer fram í kirkjunni og eftir stundina er boðið upp á kaffi og notalegt spjall í safnaðarheimilinu.
Æskulýðsguðsþjónusta í Selfosskirkju klukkan 11 sunnudaginn 3. september. Guðsþjónustan markar upphaf hauststarfsins og öll sem vilja taka þátt í æskulýðs- og söngstarfi komið og skráið ykkur! Söfnuður og fermingarbörnin syngja saman undir stjórn Editar, Sjöfn og séra Ása Björk leiða stundina. Sálmar sérvaldir til að öll syngi með og gleðjist á þessum tímamótum þegar umræðuefni prédikunarinnar er kærleikur og virðing. Bænahópar og fleira hefst þessa vikuna, vinsamlegast sjáið allar upplýsingar á síðunni okkar.