Messa sunnudaginn 3. september kl. 11:00. Kirkjukórinn syngur, organisti Glúmur Gylfason. Prestur Guðbjörg Arnardóttir. Barn borið til skírnar.
Sunnudagaskólinn hefst aftur og er á sama tíma. Umsjón hefur Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir ásamt leiðtogum.
Sunnudaginn 27.ágúst er messa í Selfosskirkju kl. 11. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Edit Molnár. Sjáumst í kirkjunni!
Sunnudaginn 20.ágúst kl. 11 verður messa í Selfosskirkju. Þangað eru fermingarbörn vorsins 2018 boðin sérstaklega velkomin ásamt fjölskyldum sínum og messan er í beinu framhaldi af námskeiðinu sem hin væntanlegu fermingabörn hafa verið á í kirkjunni í vikunni. Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng, organisti og kórstjóri er Edit Molnár. Prestur er sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi, djús og ávexti í safnaðarheimilinu.
Sunnudaginn 13. ágúst verður hefðbundin messa í Selfosskirkju kl. 11:00. Barn verður borið til skírnar. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng, organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Síðar um daginn verður útimessa á Silfurbergi. Lagt verður af stað upp bergið Kl. 17:00 og á toppi Silfurbergsins verður samveru- og bænastund. Gott að ljúka góðri skemmtun Sumars á Selfossi með göngu og íhugun um lífið, trúna og tilveruna. Hlakka til að sjá sem flesta. Guðbjörg Arnardóttir
Fermingarnámskeið í Selfosskirkju
Fermingarfræðsla fyrir verðandi fermingarbörn Selfossprestakalls hefst 16. ágúst kl. 09:00 í Selfosskirkju. Fræðslan hefst með þriggja daga námskeiði sem verður í Selfosskirkju dagana 16.-18. ágúst frá 09:00 til 12:30. Þeir foreldrar sem skráð hafa börn sín í fermingarfræðslu fá tölvupóst með nánari upplýsingum en þeir foreldar sem ekki hafa skráð börn sín í fræðsluna eru beðnir að hafa samband við Guðbjörgu Arndóttur með því að senda póst á netfangið gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is eða í síma 865 4444. Allar nánari upplýsingar um fermingarfræðslu í Selfossprestakalli er að finna hér á heimasíðunni undir flipanum fermingarstörfin. Við hlökkum til að taka á móti nýjum hópi fermingarbarna og væntum uppbyggilegar, góðrar og skemmtilegar samveru með þeim.
Með kærum kveðjum
Guðbjörg og Ninna Sif