Langar þig til þess að láta gott af þér leiða? Í nærumhverfi Selfosskirkju eru trjábeð sem þarfnast umhyggju, svo sem hreinsunar og að þeim sé hlúð. Þetta er frumraun, tilraun hjá okkur, en mikið væri það gaman ef einhver væri til í að hugsa um eitt beð eða svo, þannig að það sé ætíð fallegt á að líta. En beðin eru nokkur og því rúm fyrir nokkra einstaklinga eða fjölskyldur að taka beð í fóstur. Ef svo er endilega hafið samband við Guðnýju kirkjuvörð í síma 895 2175 eða selfosskirkja@selfosskirkja.is
Sunnudaginn 30. apríl var óvenjulega margþætt guðsþjónusta í Selfosskirkju. Ekki var þar bara lofaður Guð svo sem venja er með hefðbundnum hætti í gegnum orð og söng, heldur var séra Ása Björk Ólafsdóttir sett formlega í embætti í Árborgarprestakalli. Þar á ofan fór fram vorhátíð barnastarfs kirkjunnar, þar sem ríkti gleði og gaman, farið var í ýmsa leiki og „heitar étnar pylsurnar“ eins og segir í frægum söngtexta. Barnastarf kirkjunnar hefur verið verulega kröftugt í vetur og eflist stöðugt undir styrkri stjórn Sjafnar Þórarinsdóttur, en það allra nýjasta í barnastarfinu eru „Krílasálmarnir“ tónlistarnámskeið fyrir börn frá þriggja mánaða aldri. Það starf var bara að byrja núna og mun verða enn kraftmeira í haust og því gott að hafa augun opin fyrir auglýsingum þar um þegar líður á sumarið!
Og enn er ekki allt upp talið sem fram fór í þessari margslungnu messu á síðasta sunnudag. Því messan sú var einnig svokölluð „Krossamessa“. Kirkjan hefur á að skipa frábærum kórum, en ekki er þar bara um að ræða kirkjukórinn sem við erum svo sannarlega stolt af, heldur eru einnig tveir kórar skipaðir yngra fólki í kirkjunni okkar; barnakórinn (2. – 4. bekkur) blómstrandi fjölmennur kór kátra krakka, og svo eldri kórinn þar sem stúlkur (5.-10. bekkur) láta ljós sitt skína svo um munar. Þegar þátttöku líkur, aldurs vegna, í eldri kórnum er hefð fyrir því að heiðra stúlkurnar sem þá kveðja starfið, hafandi gefið af sér og auðgað lífið með list sinni. Þá fá stúlkurnar afhentan kross að gjöf frá Selfosskirkju, hálsmen sem er tákn um þakklæti en um leið má segja að það sé verið að heiðra stúlkurnar – allt að því aðla þær. Því krossinn sem þær fá er ekkert venjulegur og hann er ekki fáanlegur á almennum markaði – eina aðgengið að honum er að vaxa upp í gegnum kórastarf Selfosskirkju og „útskrifast“ þaðan að lokum með láði. Krossinn er sérsmíðaður og er eftirmynd altaristöflunnar í Selfosskirkju, glæsilegur skartgripur. Það var því ekki að undra að söngurinn hafi tekið sitt pláss í messunni, og hámarki náði sá þáttur þegar fjórar útskriftarstúlkur (ný aðlaðar) sungu saman lag selfyssingsins Kristjönu Stefánsdóttur „Sautjánþúsund sólargeislar“ úr Bláa hnettinum, við texta Bergs Þórs Ingólfssonar. En í laginu sungu stúlkurnar hver og ein sinn einsöngskafla með miklum glæsibrag – og var ekki annað en hægt að hrífast af þeim stöllum; Önnu Mariu Konieczna, Hjördísi Kötlu Jónasdóttur, Júlíu Kolku Martinsdóttur og Þórhildi Lilju Hafsteinsdóttur, en auk þeirra var Sóllilja Úlfsdóttir einnig heiðruð en hún er flutt af landi brott og var fjarstödd. Við óskum þeim til hamingju og megi góður Guð greiða götu þeirra í framtíðinni, hvort heldur er á vegum sönglistarinnar eða í daglegu lífi og starfi um alla framtíð.
Áratuga hefð er fyrir frábæru kórastarfi í kirkjunni sem er í senn faglegt og afar metnaðarfullt. Segja má að þátttaka í áðurnefndum ungmennakórum sé í raun sjálfstæður söngskóli, skóli þar sem börn og unglingar fá bestu söngþjálfun sem völ er á. Og ef marka má stúlkurnar sem nú voru að ljúka þátttöku í kórastarfinu hefur þáttaka þar ekki bara gert þær að betri söngkonum heldur einnig að betri manneskjum. Það eru ekki lítil meðmæli!
Kórarnir okkar leggja á sig mikla vinnu og hún verður aldrei fullþökkuð. Enda er aldrei hægt að þakka það nógsamlega sem auðgar andann og upplyftir sálinni – það allt gerir okkur að betra fólki. Þannig er kórastarfið ómetanlegt. Í vetur hafa þær Kolbrún Berglind Grétarsdóttir og Edit Molnár haldið utan um kórastarfið. En Edit Molnár er organisti og söngstjóri við kirkjuna og ber því hitann og þungan af þessu magnaða starfi frá degi til dags.
Rétt er að vekja athygli á því að í haust fer kórastarfið á fulla ferð að nýju – fylgist því vel með auglýsingum þegar sumri tekur að halla. Þetta magnaða starf er opið öllum áhugasömum börnum í prestakallinu, á ofangreindu aldursbili, og kostar nákvæmlega ekki neitt nema vilja og tíma – enga peninga! Söngstarfið í kirkjunni er nefnilega, líkt og barnastarfið, í boði án endurgjalds, það er frítt, það er ókeypis, það er án endurgjalds!!!