Vortónleikar tveggja kirkjukóra

Vortónleikar Kirkjukórs Selfoss 2014

Kirkjukór Selfoss og Kór Þorlákskirkju héldu saman vortónleika 22. maí í Selfosskirkju.  Efnisskráin var fjölbreytt og sungu kórarnir saman og hvor í sínu lagi.  Kirkjukór Selfoss flutti m.a. efni sem sungið verður í Finnlandsferð kórsins sem framundan er í byrjun júní.  Þann 21. maí héldu kórarnir tónleika í Þorlákskirkju.  Stjórnandi beggja kóranna er Jörg Sondermann.

22. maí: Kirkjukórinn með vortónleika kl. 20

Kirkjukór Selfosskirkju heldur vortónleika fimmtudagskvöldið 22. maí nk. kl. 20.  Flutt verður efni sem kórinn mun flytja í tónleikaferð sinni til Finnlands í byrjun júní.  Kirkjukór Þorlákshafnarkirkju verður sérstakur gestakór á tónleikunum.  Allir velkomnir!

„West Side Story“ söngleikjatónleikar 15. mars nk.

Barna- og unglingakór Selfosskirkju mun halda tónleika laugardaginn 15. mars kl. 15:00 í Selfosskirkju ásamt Strengjasveit Tónlistarskóla Árnesinga.

Um er að ræða Söngleikjatónleika, vinsælustu  perlur úr söngleikum Mary Poppins, West Side Story, Fiðlarinn á þakinu og Sound of Music. Fallegar kórútsettningar,  einsöngvar og dúettar.

Eftir spennandi undirbúning, fjölda æfinga, samæfingar og æfingabúðir er bara eitt eftir, að flytja fyrir framan fullt hús.

Það er svakalega ánægjulegt fyrir okkur að stíga á svið ásamt strengjasveit sem er skipuð meðlimum á sama aldri og kórfélagar. Á sviðinu verða í kringum 90 ungir söngvarar og hljóðfæraleikarar.

 

Við píanóið verður Miklós Dalmay, stjórnendur eru Edit Molnár og Guðmundur Kristmundsson. Tónleikarnir hlutu styrk Menningarráðs Suðurlands.

Við lofum frábærri skemmtun!

söngleikur