Framundan er spennandi og skemmtileg helgi í Selfosskirkju. Undanfarið hafa kvenraddirnar í Kirkjukór Selfosskirkju, Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandasókna og Unglingakórinn æft saman með Kristjönu Stefánsdóttur. Tónleikarnir verða á sunnudaginn kl. 17 og mun Kristjana syngja einsöng. Þar sem konurnar verða uppteknar við æfingar höfum við fengið til liðs við okkur góða gesti á sunnudaginn til að syngja í messu, það eru félagar úr Karlakór Hreppamanna en stjórnandinn þeirra er einmitt Edit A. Molnár organisti í Selfosskirkju. Þeir munu annast söng í konudagsguðsþjónustu í kirkjunni, einnig mun Viktor Kári Garðarsson félagi í Barnakór Selfosskirkju syngja einsöng með þeim. Þetta verður óhefðbundin guðsþjónusta enda fá karlaraddirnar gott tækifæri til að þenja raddböndin til heiðurs konunum og verður mikið sungið, inn á milli lestra og prédikunar. Það verður því sannkölluð tónlistarveisla í kirkjunni á konudaginn og verið öll velkomin!
Greinasafn fyrir flokkinn: Eitt og annað
Syngjandi konur í Selfosskirkju
4er6o34pt6
Helgihald í Selfossprestakalli sunnudaginn 12.febrúar
Nk. sunnudag 12.febrúar verða þrjár messur í prestakallinu. Kl. 11 verður fjölskyldumessa í Selfosskirkju þar sem barnakór kirkjunnar syngur. Þetta verður skemmtileg og gefandi stund fyrir alla fjölskylduna. Æskulýðsfélag Selfosskirkju verður með kökubasar að lokinni messu og súpa og brauð selt gegn vægu gjaldi í safnaðarheimilinu. Umsjón með stundinni hafa sr. Ninna Sif og Jóhanna Ýr og Edit Molnár er kórstjóri.
Kl.13.30 verður guðsþjónusta í Villingaholtskirkju þar sem söngkór Villingaholts – og Hraungerðissókna syngur undir stjórn Inga Heiðmars Jónssonar organista. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir.
Kl. 20 verður kvöldmessa í Selfosskirkju þar sem hljómsveitin Hrafnar sér um tónlistina. Þetta verður létt og skemmtileg kvöldstund. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir
Eitthvað fyrir alla – sjáumst í kirkjunni!
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 5. febrúar kl. 11:00
Foreldramorgnar í Selfosskirkju
Alla miðvikudagsmorgna er foreldrasamvera frá 10:30-12:00 á safnaðarloftinu í Selfosskirkju. Þarna koma sama foreldrar ungra barna, ræða málin eða einfaldlega bara að hittast. Oft eru fræðsluerindi og hafa þau verið nokkur það sem af er vetri. Einu sinni í mánuði gefur Guðnabakarí rúnnstykki með kaffinu. Á morgun verða einmitt í boði rúnnstykki, þökkum við fyrir það og bjóðum ykkur hjartanlega velkomin!
Messa sunnudaginn 22. janúar kl. 11:00
Messa í Selfosskirkju
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 8. janúar kl. 11:00.
Kirkjukórinn syngur, organisti Glúmur Gylfason. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Súpa og brauð í safnðarheimilinu á eftir.