Helgihald á hvítasunnu í Árborgarprestakalli

Selfosskirkja
Hátíðarmessa á hvítasunnudag kl. 11:00.  Kirkjukórinn syngur, organisti Edit A. Molnár, einsöng syngur Gunnlaugur Bjarnason, prestur Gunnar Jóhannesson.  

Sunnudagaskóli á sama tíma kl. 11:00, umsjón Sjöfn, Dóra og Katrín.

Hraungerðiskirkja
Fermingarmessa á hvítasunnudag kl. 13:30.  Kirkjukórinn syngur, organisti Guðmundur Eiríksson, prestur Gunnar Jóhannesson.

Gaulverjabæjarkirkja
Hátíðarmessa á hvítasunnudag kl. 14:00.  Kirkjukórinn syngur, organisti Haukur Arnarr Gíslason, prestur Ása Björk Ólafsdóttir

Villingaholtskirkja
Fermingarmessa á annan hvítasunnudag kl. 13:30.  Kirkjukórinn syngur, organisti Guðmundur Eiríksson, prestur Guðbjörg Arnardóttir.

Kvöldmessa í Selfosskirkju sunnudaginn 12. maí kl. 20:00

Sunnudaginn 12. maí verður sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 11:00.

Fermingarmessa verður í Eyrarbakkakirkju kl. 11:00.

Kvöldmessa verður svo í Selfosskirkju kl. 20:00. Unglingakórinn syngur og Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng. Organisti Edit A. Molnár. Helga Aðalheiður Jónsdóttir spilar á blokkflautu. Harpa Rós Björgvinsdóttir djáknanemi flytur hugleiðingu. Falleg stund á mæðradegi.

Messa á Uppstigningardegi kl 11:00

Eins og hefð er á Uppstigningardegi er messa dagsins helguð eldri borgurum. Messan verður í samstarfi við Bessastaðasókn og koma þau til okkar í þetta sinn ásamt kórnum Garðálfarnir og presti sínum sr Hansi Guðbergi Alfreðssyni. Einnig verður Hörpukórinn með okkur og það mun klárlega verða mikið um söng og gaman! Séra Ása Björk Ólafsdóttir þjónar fyrir altari en hún og Hans Guðberg munu prédika saman. Djákni Bessastaðasóknar og djáknanemi okkar munu taka þátt í messunni. Súpa verður í boði Héraðssjóðs að henni lokinni. Öll eru innilega velkomin!

Raddir æskunnar

Á sunnudaginn sl. var frumsýnd á RUV heimildarmynd frá 2021. Heimildarmyndin er eftir Önnu Edit Dalmay og fjallar um hvernig söngur í kór getur haft langvarandi jákvæð áhrif á börn og unglinga. Rætt er við núverandi og fyrrverandi félaga í barna- og unglingakórum Selfosskirkju um hvernig kórsöngurinn hefur mótað þau. Við í Selfosskirkju erum sannarlega stolt af kórastarfinu okkar og því mikilvæga uppeldishlutverki sem það gegnir. Við erum þakklát fyrir þau sem koma að starfinu og gaman að sjá afrakstur þess í myndinni. Myndin verður endursýnd á uppstigninardag en að sjálfsögðu hægt að nálgast hana á efnisveitu RUV og hvetjum við sem flesti til þess að horfa á myndina og njóta hennar.