Messa verður í Selfosskirkju sunnudaginn 26. júlí kl. 11:00.
Kirkjukórinn syngur og stjórnandi er Ester Ólafsdóttir.
Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Greinasafn eftir: Guðbjörg Arnardóttir
Guðsþjónusta í Selfosskirkju 21. júní kl. 11:00
Velkomin til guðsþjónustu í Selfosskirkju sunnudaginn 21. júní kl. 11:00.
Kirkjukórinn syngur fallega sumarsálma og við tökum undir. Organisti Ester Ólafsdóttir. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Messa í Hellisskógi
Á hvítasunnudag 31. maí verður messa í Hellisskógi kl. 11:00 og verður messan við hellinn.
Kirkjukórinn syngur fallega sálma og lög sem tengjast sumrinum og náttúrunni undir stjórn Edit A. Molnár.
Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Skógar-messukaffi eftir stundina.
Frískandi getur verið fyrir þau sem hafa tök á að koma gangandi eða hjólandi
Kirkjukórinn hittist aftur eftir hlé
Kirkjukórinn kom saman síðastliðinn fimmtudag eftir langt hlé. Ekki var um hefðbundna æfingu að ræða heldur létu kórfélaga hendur standa fram úr ermum og snyrtu beð og stíga í kirkjugarðinum og umhverfis kirkjuna. Allir með gott bil sín á milli. Rúmlega tuttugu manns mættu og fylltu 32 ruslapoka á tveim klukkustundum. Eftir vinnuna var boðið upp á pizzur og að sjálfsögðu sungin nokkur lög.
Líkt og hjá öðrum hópum lagðist nær allt starf kórsins niður við samkomubannið. Æfingar og messur lögðust af og vegna fjöldatakmarkana söng kórinn heldur ekki við útfarir.
Vortónleikum kórsins var aflýst og söngferð til Ítalíu frestað um eitt ár. Það hefur verið rólegt yfir kórstarfinu. Það var því kórfélögum kærkomið að hittast aftur og reka endahnút á óvenjulegt vetrarstarf og láta líka gott af sér leiða.
Sjá má fleiri myndir á Facebook síðu kirkjunnar
Krossamessa sunnudaginn 17. maí kl. 11:00
Sunnudaginn 17. maí verður hin árlega krossamessa kl. 11:00.
Þar fá þau sem útskrifast úr Unglingakórnum afhenda krossana sína að gjöf frá kirkjunni og mun Unglingakórinn syngja í messunni.
Ekki verður heimilit að fleiri en 50 komi inn í kirkjunu og og halda verður tveimur metrum á milli einstaklinga sem ekki eru í sömu fjölskyldu.
Verði fjöldi kirkjugesta umfram það sem leyfilegt er mun fólk getið fylgst með á skjá í safnaðarheimili kirkjunnar.
Tilkynning vegna breytinga á samkomubanni
Þann 4. maí taka í gildi breytingar á samkomubanni og verður kirkjum samkvæmt tilmælum biskups heimilt að hefja opið helgihald á ný sunnudaginn 17. maí. Helgihaldið er eðlilega bundið fyrirmælum yfirvalda um sóttvarnir. Ekki verður fleirum en 50 heimilt að koma saman og halda verður tveimur metrum á milli einstaklinga. Ekki verður altarisganga enn um sinn og prestur mun ekki heilsa folki með handabandi. Verði fjöldi kirkjugesta umfram það sem leyfilegt er mun fólk getið fylgst með á skjá í safnaðarheimili kirkjunnar. Sunnudaginn 17. maí verður hin árlega krossamessa kl. 11:00. Þar fá þau sem útskrifast úr Unglingakórnum afhenda krossana sína að gjöf frá kirkjunni og mun Unglingakórinn syngja í messunni. Sunnudaginn 24. maí verður hefðbundin guðsþjónusta kl. 11 og á hvítasunnudag verður útimessa í Hellisskógi kl. 11:00.
Þegar aðrar breytingar verða gerðar á samkomubanni verður þeim fylgt. Morgunbænastundir kl. 9:15 hefjast á ný þriðjudaginn 19. maí og verða eins og áður þrjá daga vikunnar, þriðju-, miðviku- og fimmtudag.
Við prestarnir minnum á að við erum eins og fyrr reiðubúin til viðtals og sálgæslu hvort sem er á skrifstofu okkar í kirkjunni eða í gegnum síma. Við vonum að sumarið verði öllum gott og gleðilegt.
Guðbjörg Arnardóttir gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is eða 8654444 Gunnar Jóhannesson gunnar.johannesson@kirkjan.is eða 8929115
Axel Árnason Njarðvík axel.arnason@kirkjan.is eða 8982935.
Vegna ferminga 2021
Hefðin
hefur verið sú að bjóða foreldrum á upplýsinga- og kynningarfund í kirkjunni en
vegna aðstæðna í samfélaginu er það ekki mögulegt eins og stendur. Þess í
stað bendum við þeim sem áhuga hafa á að kynna sér fermingarfræðsluna í
Selfossprestakalli að fara inn á heimasíðu Selfossprestakalls
(selfosskirkja.is) þar sem finna má allar upplýsingar undir liðnum
fermingarstörfin.
Þar munu einnig væntanlegir fermingardagar vorsins 2021 verða settir og hlekkur
á slóð þar sem hægt er að skrá barn í fræðsluna og velja fermingardag. Einnig
verða þar upplýsingar um hvenær opnað verður fyrir skráninguna. Í
framhaldinu mun verða hægt að miðla upplýsingum í gegnum þau netföng sem þar
verða skráð.
Tilkynning um helgihald og safnaðarstaf í Selfossprestakalli vegna samkomubanns
Starf í Selfossprestkalli á meðan samkomubann er í gildi
Ljóst er að mikil röskun verður á helgihaldi og safnaðarstarfi í Selfossprestakalli á meðan á samkomubanni stendur.
Allt helgihald í prestakallinu fellur niður fram yfir páska, allar messur, bæna- og kyrrðarstundir falla niður.
Allt formlegt starf fellur niður, allar kóræfingar, Kirkjuskóli, sunnudagaskóli, TTT, æskulýðsfundir, foreldrasamverur. Fyrirhuguðum fyrirlestrum og samverum í tengslum við makamissi frestum við þar aðstæður verða orðnar öruggar.
Selfosskirkja verður áfram opin á hefðbundum skrifstofutíma. Við minnum á viðtalstíma presta frá 9-12 eða eftir samkomulagi. Hægt er að hafa samband við presta kirkjunnar í síma eða með tölvupósti. Guðbjörg Arnardóttir s. 865 4444 gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is Gunnar Jóhannesson s. 8929115 gunnar.joh@kirkjan.is Axel Árnason Njarðvík s. 898 2935 axel.arnason@kirkjan.is
Við bendum ykkur á að finna Selfosskirkju á Facebook og Instragram þar sem við miðlum uppörvandi og huggunarríkum orðum, bænum og öðru helgihaldi. Á öðrum síðum eins og sunnudagskóla Facebook síðunni verður eitthvað af efni sem hægt er að nýta sér til uppbygginar og dægrastyttingar.
Aðstæður getur áfram breyst hratt og uppfærum við aðgerðir okkar varðandi helgihald og safnaðarstarf í samræmi við það.
Bænir okkar eru hjá hverjum og einum og íslensku samfélagi í heild. Það er gott að leggja allt sem framundan er, hverja stund og sérhvern dag, allar hugsanir, tilfinningar, áhyggjur og kvíða, í Guðs góðu hendur í þeirri trú og vissu að hann er engum nær en þeim sem til hans leitar og að ekkert geti gert okkur viðskila við kærleika hans.
Prestar og starfsfólk Selfossprestakalls.
Nýr prestur í Selfossprestakalli
Sr. Gunnar Jóhannesson hefur verið kjörinn prestur í Selfossprestakalli.
Við bjóðum hann velkomin til starfa til okkar og hlökkum til samstarfsins.
Gunnar hefur síðan 1. desember sinnt afleysingum í prestakallinu og kemur því strax til starfa við prestakallið.
Nánari upplýsingar má finna á heimsíðunni kirkjan.is
https://kirkjan.is/frettir/frett/2020/03/13/Nyr-prestur-a-Selfoss/
Tilkynning
Okkur er öllum kunnugt um það ástand sem uppi er í dag vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar og að nú hefur verið lýst yfir neyðarástandi hér á landi.
Á meðan ekki er lýst yfir samkomubanni verður messað í öllum kirkjum Selfossprestakalls í samræmi við það sem búið var að áætla. Hins vegar hafa þau tilmæli borist frá biskupi að altarisgöngur verði ekki viðhafðar að svo stöddu og verður orðið við því. Kirkjugestir verða ekki heldur kvaddir með handabandi eftir athöfn eins og venjan er. Er þau sem koma til kirkjunnar hvött til að nýta sér handspritt og viðhafa annað hreinlæti sem mælt er með samkvæmt tillögum landlæknis og almannavarna.
Annað safnaðarstarf, s.s. fræðslusamkomur og barna- og æskulýsstarf, verður líka eins og auglýst hefur verið uns annað verður ákveðið.
Hvað fermingarnar, sem eru framundan, varðar þá á það sama við um þær, helgihald og annað starf kirkjunnar. Eins og fram hefur einnig komið á fundi með foreldrum fermingarbarna þá á meðan ekki er samkomubann munu þær fara fram eins og áætlað er, en án handabands og altarisgöngu. Komi upp samkomubann munum við gera aðrar ráðstafanir og verða foreldrar og fermingarbörn um leið upplýst um hvaða leiðir verða þá farnar.
Við förum að fyrirmælum sóttvarnarlæknis og annarra sem leggja okkur línurnar í þessum efnum. Við biðjum jafnframt fyrir þeim öllum sem búa við mikið álag við að fyrirbyggja vá og vakta stöðuna almenningi til heilla.
Við minnum á að í samfélagi okkar eru aldraðir ástvinir og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Nú er það okkar allra að vernda þessa samferðamenn okkar sem eru í sérstökum áhættuhópi með því að sýna ábyrgð.
„Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ (Matt 25.40)
Kær kveðja,
Prestar og starfsfólk Selfossprestakalls.