Dagana 17.-21. ágúst verða verðandi femingarbörn vorsins 2016 á námskeiði í Selfosskirkju kl. 9-12:30. Þau fermingarbörn í Selfossprestakalli sem ekki hafa skráð sig eru velkomin en við biðjum foreldra þeirra að hafa samband við okkur prestana Ninnu Sif Svavarsdóttur ninnasif@gmail.com eða Guðbjörgu Arnardóttur gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is
Greinasafn eftir: Axel Njarðvík
Messa 12. júlí
Sumarmessa verður 12. júlí 2015 kl. 11 í Selfosskirkju. Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Organisti Jörg E Sondermann. Kór Selfosskirkju leiðir söng. Súpa og kaffi í hádegi gegn vægu gjaldi. En hvað er sumarmessa? Jú messa sem maður sækir á sumardegi á ferðalagi um Suðurland, nú eða þá bara messuferð á sumardegi.
Séra Þorvaldur Karl þjónar Selfossprestakalli frá 14. júlí til júlíloka
Biskup Íslands hefur verið ákveðið að séra Þorvaldur Karl Helgason þjóni Selfossprestakalli frá 14. júlí til júlíloka en þann 1. ágúst taka tveir prestar við störfum í Selfossprestakalli. Fyrir hefur legið að sr. Axel færi þann 14. júlí til annarra starfa. Síðasta messa sr. Axels að þessu sinni verður því sunnudaginn 12. júlí. Sr. Þorvaldur Karl messar 19. júlí og 26. júlí kl. 11 og sinnir öðrum þeim prestsverkum, prestsþjónustu og samtölum sem til falla þessar rúmar tvær vikur.
Messa kl. 11 – 5. júlí
Alla sunnudaga kl. 11 er messað í Selfosskirkju. Næsti sunnudagur er 5. júlí. Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Kirkjukór Selfoss syngur og organisti er Jörg E Sondermann. Kaffi og súpa í hádeginu í safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi. Verið velkomin. Guðspjallstextinn og hugleiðingarefni nýrrar vikur er úr 16. kafla Matteusarguðspjalls en þar spyr Jesús lærisveinanna: „En þið, hvern segið þið mig vera?“
Símon Pétur svararaði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“ Síðar í þessu texta mælti Jesús við lærisveina sína: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu mín vegna mun finna það. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og glata sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?
Messa kl. 11 28. júní
Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Kirkjukór Selfoss syngur og organisti er Jörg E Sondermann. Kaffi og súpa í hádeginu í safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi. Verið velkomin. Guðspjallstextinn og hugleiðingarefni nýrrar vikur er úr 8. kafla Jóhannesarguðspjalls en þar segir svo frá: Snemma morguns kom hann aftur í helgidóminn og allt fólkið kom til hans en hann settist og tók að kenna því. Farísear og fræðimenn koma með konu, staðna að hórdómi, létu hana standa mitt á meðal þeirra og sögðu við Jesú: „Meistari, kona þessi var staðin að verki þar sem hún var að drýgja hór. Móse bauð okkur í lögmálinu að grýta slíkar konur. Hvað segir þú nú?“ Þetta sögðu þeir til að reyna hann svo þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. En Jesús laut niður og skrifaði með fingrinum á jörðina.
Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann rétti hann sig upp og sagði við þá: „Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana.“ Og aftur laut hann niður og skrifaði á jörðina. Þegar þeir heyrðu þetta fóru þeir burt, einn af öðrum, öldungarnir fyrstir. Jesús var einn eftir og konan stóð í sömu sporum.
Hann rétti sig upp og sagði við hana: „Kona, hvað varð af þeim? Sakfelldi enginn þig?“
En hún sagði: „Enginn, Drottinn.“
Jesús mælti: „Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú. Syndga ekki framar.“
Hvað skrifaði Jesús í sandinn? Hvað lásu þeir úr sandinum sem hjá stóðu?
Hvað hét þessi kona? Hvað varð um hana?
Messa á sumarstólstöðum kl. 11
Sr. Guðbjörg og sr. Ninna Sif
Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa sr. Guðbjörgu Arnardóttur í embætti sóknarprests í Selfossprestakalli og sr. Ninnu Sif Svavarsdóttur í embætti prests í Selfossprestakalli frá 1. ágúst n.k. Þetta er ekki í fyrsta skiptið í kirkjusögu Íslands sem sóknarprestur og prestur prestakalls eru konur. Árin 1995 – 1997 gegndu tvær konur samtímis embættum sóknarprests og prests við Seltjarnarneskirkju, þær sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir og sr. Hildur Sigurðardóttir sem var ráðinn prestur við Seltjarnarneskirkju. Enn fremur í Egilsstaðaprestakalli voru þær sr. Jóhanna Sigmarsdóttir sóknarprestur og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prestur. Hjá íslenska söfnuðinum í Noregi eru líka tvær konur að starfi en það eru þær sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur og sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir.
Sjá á kirkjan.is
Kvöldstund í Laugardælakirkju kl. 20
Kvöldguðsþjónusta verður í Laugardælakirkju sunnudagskvöldið 14. júní 2015 kl. 20. Prestur sr. Axel Á Njarðvík og Ingi Heiðmar Jónsson er organsti. Tilvalið að koma til kirkjunnar. Verið velkomin
Skírnarinnar minnst – messa 14. júní Selfosskirkja
Sjómannadagur 7. júní
Messa kl. 11 á Sjómannadegi. Prestur sr. Axel Á Njarðvík, Kirkjukór Selfoss syngur. Organisti Glúmur Gylfason. Súpa og kaffi í hádeginu. Verið velkomin.