Greinasafn fyrir flokkinn: Eitt og annað
Messa sunnudagin 4. september kl. 11:00
Fermingarnámskeið og messa á sunnudaginn
Verðandi fermingarbörn vorsins 2017 komu til okkar á námsekið á fimmtudag og föstudag. Virkilega gaman að kynnast þessum flottu krökkum sem koma aftur til okkar á mánudaginn eftir skólasetningu.
Á sunnudaginn 21. ágúst er messa í Selfosskirkju kl. 11:00 og voru fermingarbörnin boðin sérstaklega velkomin í hana en nú fara þau að hamast við að safna tíu stimplum en þau þurfa að mæta í tíu messu fyrir fermingardaginn sinn.
Meðfylgjandi myndir eru af hópnum með prestunum sínum og æskulýðsfulltrúa. Síðan er hin myndin frá leiklistartúlkun fermingarbarna á miskunnsama Samverjanum sem er einmitt guðspjall komandi sunnudags.
Sjáumst í kirkjunni!
Messa 7.ágúst
Sunnudaginn 7.ágúst verður að vanda messa í Selfosskirkju. Barn borið til skírnar, félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsöng. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Það verður gott að koma, andleg næring og gott samfélag. Sjáumst í kirkjunni!
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 17. júlí kl. 11:00
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 3. júlí kl. 11:00
Messa verður sunnudaginn 3. júlí kl. 11:00 í Selfosskirkju. Organisti Ingi Heiðmar Jónsson, félagar úr Kirkjukór Selfosskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Upplagt að koma til kirkjunnar, finna ró fyrir leikinn í bæn og söng og í lok messunnar verður Þjóðsöngurinn spilaður í tilefni dagsins.
Útvarpsmessa frá Selfosskirkju sunnudaginn 19. júní
Frá og með sunnudegi 19. júní verða útvarpsmessur á Rás 1 frá söfnuðum í Suðurprófastsdæmi.
Alls verður útvarpað 8 messum og fóru upptökur fram í Skálholtskirkju, helgina 16.-17. apríl sl. Prestar, organistar, kirkjukórar, meðhjálparar og safnaðarfólk kom víða að; allt frá Skálholtsprestakalli til Hafnar í Hornafirði.
Hringt var til tíða fjórum sinnum á dag þá helgi í Skálholtskirkju og að lokinni messu bauð Héraðssjóður Suðurprófastdæmis þátttakendum upp á hressingu í Skálholtsskóla.
Verkefnisstjóri var Margrét Bóasdóttir, verkefnisstjóri kirkjutónlistar (söngmálastjóri) og upptökumaður var Einar Sigurðsson hjá RÚV.
Fyrsta messan sem útvarpað verður er frá Selfossprestakalli næstkomandi sunnudag, 19. júní, kl. 11.00. Prestur er séra Guðbjörg Arnardóttir og organsti og kórstjóri Edit Molnár. Kirkjukór og Unglingakór Selfosskirkju syngja.
14. ágúst verður aftur Selfossprestakall með útvarpsmessu og þá með Kór Villingaholts- og Hraungerðiskirkju, organsti: Ingi Heiðmar Jónsson
Margrét Arnardóttir forseti kirkjuþings unga fólksins
Kirkjuþing unga fólksins kom saman á Biskupsstofu laugardaginn 30. apríl sl. Forseti þess var kjörin Margrét Arnardóttir æskulýðsleiðtogi úr Selfosskirkju sem sat þingið fyrir Suðurprófastdæmi. Jafnframt var Margrét valin til að vera áheyrnarfulltrúi á kirkjuþing sem fram fer og mun hún því sitja kirkjuþing 2016. Selfosssöfnuður má vera ánægður og stoltur yfir því að eiga svona frambærilegan leiðtoga sem kjörinn er til forystu í æskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar! Á meðfylgjandi myndum má sjá annars vegar hópinn sem sat kirkjuþing unga fólksins og hins vegar mynd af Margréti að störfum á þinginu.
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 12. júní kl. 11:00
Gæludýrablessun og útiguðsþjónusta 5.júní
Sunnudaginn 5.júní kl.11 verður útiguðsþjónustua við Selfosskirkju. Þar verður boðið upp á gæludýrablessun. Gæludýrin eru vinir okkar og hluti af fjölskyldum okkar og eiga sannarlega skilið að fá blessun líkt og mannfólkið. Kirkjukórinn syngur létta og sumarlega sálma undir stjórn Edit Molnár. Að messu lokinni ber kvenfélag kirkjunnar að vanda fram súpu í safnaðarheimilinu og málleysingjarnir fá eitthvað að bíta líka. Sjáumst í kirkjunni!