Vegna hertra samkomutakmarkana fellur allt safnaðarstarf niður næstu þrjár vikurnar eða frá og með nýrri reglugerð.
Laugardaginn 27. mars og sunnudaginn 28. mars, á skírdag og 11. apríl verða þau börn sem þess óska fermd og eru athafnirnar ekki opnar öðrum.
Helgihald í dymbilviku fellur niður og hátíðarguðsþjónustur í Laugardælakirkju, Villingaholtskirkju, Hraungerðiskirkju og Gaulverjabæjarkirkju falla niður. Í skoðun er hvort boðið verður upp á lágstemmt helgihald í Selfosskirkju, Eyrarbakkakirkju og Stokkseyrarkirkju á páskadag og verður það auglýst á Facebook síðum kirkjanna.
Greinasafn eftir: Guðbjörg Arnardóttir
Viðbrögð við áföllum
Í Árnessýslu er starfandi samráðshópur um viðbrögð við áföllum. Í honum eru fulltrúar frá félagsþjónustu sveitarfélaganna, lögreglunni, heilsugæslunni, kirkjunni og Rauða krossinum. Hópurinn heldur reglulega samráðsfundi til að miðla upplýsinum og meta hvaða aðgerða gæti þurft að grípa til vegna aðstæðna eða stórra áfalla í samfélaginu. Eitt af hlutverkum hópsins í Covid hefur m.a. verið að koma á framfæri hvar og hvernig fólk getur leitað eftir aðstoð hjá þeim stofnunum sem eiga fulltrúa í hópnum.
Nú í kjölfar þeirra jarðhræringa sem eiga sé stað á Reykjanesinu þykir okkur rétt að vekja athygli á eftirfarandi:
Þegar náttúruhamfarir eiga sér stað eða þegar fjallað er um mögulegar náttúruhamfarir í fjölmiðlum er líklegt að það geti kallað fram minningar eða endurupplifun fólks af fyrri náttúruhamförum sem það hefur sjálft upplifað eða lent í. Þetta getur eðlilega kallað fram kvíða og ótta hjá þeim sem upplifað hafa slík áföll. Mikilvægt er að vera vakandi fyrir þeim tilfinnum sem upp kunna að koma við umfjöllunina eða við það að finna jarðskjálfta. Það getur komið á óvart að þessar tilfinningar vakni þó jafnvel séu liðin ár eða áratugir frá fyrri reynslu. Slíkt er mjög eðlilegt og þegar fólk upplifir þetta eða finnur fyrir tilfinningum sem vekja ótta eða kvíða við þessar aðstæður er gott að hafa eftirfarandi í huga:
Ræða við aðra sem hafa sömu reynslu. Það hjálpar við áföll sem verða við náttúruhamfarir að upplifunin er sameiginleg fleirum og fleiri geta sameinast í reynslu sinni og deilt henni. Það er léttir að tala um það við aðra hvað viðkomandi er að upplifa og finna samhljóm og stuðning í reynslu annarra.
Láta nánustu fjölskyldu vita af þeim kvíða og ótta sem gerir vart við sig. Oft léttir það strax á kvíða að láta vita af honum, fá sína nærfjölskyldu og vini til að hafa oftar samband þó ekki sé nema með stuttu innliti eða símtali.
Hafa samband við fagaðila. Hjá stofnunum þeim sem eiga fulltrúa í þeim samráðshóp sem þetta ritar eru fagaðilar sem getur verið gott að panta tíma hjá eða ná símtali við til að létta á og ræða þann kvíða eða ótta sem vaknað hefur.
Hlúa vel að okkur. Ef tilfinningar ótta og kvíða vera fyrirferðameiri en áður í þessum aðstæðum þarf janvel að hugsa enn betur um það að ná að sofa, fara út og hreyfa sig ef hægt er og forðast mat og drykki sem hafa örvandi áhrif eins og áfengi.
Eiga samtal við börnin. Það er misjafnt hversu mikið börn upplifa ótta við þessar aðstæður, það er jafn eðlilegt fyrir þau að hugsa ekkert um þetta, verða spennt fyrir þessu eða finna mikinn ótta eða kvíða. Þessi ótti eða kvíði getur helst komið upp ef einhverjir nákomnir eru að fara eitthvað í burtu eða eru ekki á staðnum eða þegar þau eru að fara að sofa. Þá er mikilvægt að ræða þessar tilfinngar við þau, segja að þær séu eðlilegar. Tryggja það svo að þau finna öryggi og láta vita að það sé ekkert að óttast og þau þurfi ekki að vera hrædd. Sömuleiðis þarf að tryggja það að þau hafi réttar upplýsingar um það sem er að gerast. Þau geta verið að fá rangar upplýsingar í gegnum samfélagsmiðla eða annars staðar.
Hér eru símanúmer hjá þeim stofnunum sem eiga fulltrúa í hópnum:
Fjölskyldusvið Árborgar: Þjónustuborð tekur við beiðni um samtal við ráðgjafa í síma 480 1900
Velferðarþjónusta Árnesþings: Tekið er við óskum um samtal við ráðgjafa í eftirfarandi númerum:
Hveragerði: 483 4000
Uppsveitir og Flói: 480 1180
Ölfus: 480 3800
Heilsugæslan: 432 2000
Kirkjan: samtal við presta sem sinna sálgæslu
Guðbjörg Arnardóttir 865 4444, Gunnar Jóhannesson 892 9115, Arnaldur Bárðarson 766 8344 í Árborgarprestakalli, Axel Árnason Njarðvík hérðasprestur 898 2935, Ninna Sif Svavarsdóttir Hveragerðisprestakall 849 1321, Sigríður Munda Jónsdóttir Þorlákshafnarprestakall 894 1507
Óskar H. Óskarsson Hrunaprestakall 856 1572, Egill Hallgrímsson Skálholtsprestakall 894 6009.
Rauði krossinn: 1717 (opið allan sólarhringinn)
Upplýsingar um þjónustu Rauða krossins í Árnessýslu: 892 1743
Heimsóknavinur, símavinur eða gönguvinur Rauða krossins: https://www.raudikrossinn.is/hvad-gerum-vid/adstod-i-bodi/heimsoknarvinur/
Lögreglan: 112
Tilkynningar til barnaverndar: 112
Fjölskyldumessa sunnudaginn 7. mars kl. 11:00
Á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar verður fjölskyldumessa í Selfosskirkju kl. 11:00.
Barnkórinn okkar leikur stórt hlutverk í messunni og syngur.
Við heyrum líka Biblíusögu, syngjum sjálf og biðjum saman
Helgihald hefst á ný
Nú er okkur heimilt að hefja á ný helgihald í kirkjunni og verður guðsþjónusta í Selfosskirkju nk. sunnudag kl. 11:00. Guðsþjónustan er öllum opin og munu væntanleg fermingarbörn setja svip sinn á mætinguna en þau hafa verið sérstaklega boðuð enda ekki komist í neina messu síðan í október á síðasta ári. Edit A. Molnar organisti mun spila og raddir úr Kirkjukór Selfosskirkju leiða sönginn. Það verður sannarlega gott að hittast aftur og eiga samfélag í kirkjunni.
Að sjálfsögðu verður allra sóttvarna gætt, spritt er aðgengilegt, 2m metra fjarlægð tryggð og grímuskylda.
Það er okkur líka mikið gleðiefni að getað byrjað aftur með sunnudagaskólann sem verður ekki nk. sunnudag heldur sunnudaginn 21. febrúar.
Morgunbænirnar byrja sömuleiðis aftur nk. þriðjudag 16. febrúar kl. 9:15. Þetta er stuttar stundir byggðar upp með bæn, kyrrð og góðu samfélagi. Morgunbænir eru þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 9:15
Gleðilegt ár
Við í Selfosskirkju óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum samfylgd og samveru á liðnu ári.
Enn eru fjöldatakmarkanir og sóttvarnir með þeim hætti að ekki er unnt að bjóða upp á opið helgihald en á Facbook og Instagram síðum Selfosskirkju eru settar inn myndir, myndbönd og hugleiðingar.
Barna- og Unglinakórinn byrjuðu í vikunni að æfa á nýju ári.
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir lét af störfum við áramót og þökkum við henni innilega fyrir störf sín hjá Selfosskirkju sl. ár.
Sjöfn Þórarinsdóttir var ráðinn til starfa sem nýr æskulýðsfulltrúi, við bjóðum hana hjartanlega velkomna til okkar.
Mun það barna- og unglingastarf sem heimilt er að halda úti hefjast undir hennar stjórn frá og með 18. janúar.
Meg Guðs blessun fylgja okkur inn í nýtt ár 2021.
Hátíðarguðsþjónusta frá Selfosskirkju á jóladag
Helgihald um jól og áramót
Helgihald um jól og áramót verður allt með öðrum brag í kirkjum landsins en tíðkast hefur.
Árborgarprestakall, Hveragerðisprestakall og Þorláksprestakall hafa tekið sig saman um að taka upp einfalt helgihald jóla og áramóta sem streymt verður á heimasíðum og facebook síðum prestakallanna.
Aftansöng aðfangadags verður streymt úr Hveragerðiskirkju kl. 18 á aðfangadag.
Helgihald jóladagsins kemur úr Selfosskirkju og verður sent út kl. 14:00 Aftansöngur gamlársdags verður úr Þorlákskirkju og honum er streymt kl. 17 á gamlársdag.
Einnig kemur myndræn jólakveðja frá öllum öðrum kirkjum prestakallsins
Helgistund í Selfosskirkju á 1. sunnudegi í aðventu
Upptaka af helgistund í Selfosskirkju á 1. sunnudegi í aðventu. Raddir úr Unglingakór Selfosskirkju sungu, stjórnandi og undirleikar Edit . Molnár, prestur Guðbjörg Arnardóttir
Auslýst eftir Ækulýðsfulltrúa
Æskulýðsfulltrúi Selfosskirkju
Sóknarnefnd Selfosskirkju auglýsir eftir æskulýðsfulltrúa í 60% starf frá 1. janúar 2021, eða síðar í janúar eftir nánara samkomulagi. Hlutverk æskulýðsfulltrúa er að hafa umsjón með æskulýðs- og fræðslumálum kirkjunnar. Helstu verkefni eru umsjón með sunnudagaskóla og fjölskyldumessum, TTT, 6-9 ára, æskulýðsfundum og leiðtogaþjálfun. Menntun og reynsla sem nýtist í starfi nauðsynleg. Nánari upplýsingar um starfið og starfskjör veita Séra Guðbjörg Arnardóttir sóknarprestur sími:865-4444 og Guðmundur Búason gjaldkeri Sóknarnefndar sími:899-9613.
Umsækjendur geri skriflega grein fyrir menntun sinni og reynslu í æskulýðsstarfi. Umsóknir sendist í netpósti á selfosskirkja@selfosskirkja.is eða í bréfapósti á Sóknarnefnd Selfosskirkju b.t. Björns Inga Gíslasonar formanns, Kirkjuvegi, 800 Selfoss. Umsóknarfrestur er til 15. des. Umsækjandi þarf að veita samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá á eftirfarandi eyðublaði: https://kirkjan.is/library/Images/Frettamyndir/Skjol-vegna-fretta/samthykki-fyrir-oflun-upplysinga-ur-sakaskra.pdf
Sóknarnefnd Selfosskirkju
Nýtt sameinað prestakall
Nýtt prestakall í SuðurprófastsdæmiNú í október varð sú breyting á skipulagi kirkjunnar í Suðurprófastsdæmi að Selfossprestakall og Eyrabakkaprestakall voru sameinuð í nýtt prestakall. Var sú sameining ein af nokkrum sameiningum sem ákveðnar voru á nýafstöðnu kirkjuþingi. Með þessari breytingu eru áðurnefnd tvö prestaköll lögð niður og samanstendur hið nýja prestakall af sóknum þeirra – Hraungerðissókn, Laugardælasókn, Selfosssókn, Villingaholtssókn, Eyrarbakkasókn, Stokkseyrarsókn og Gaulverjabæjarsókn. Prestar hins nýja prestakalls verða áfram þeir sömu og þjónuðu áður Selfossprestakalli og Eyrabakkaprestakalli: Guðbjörg Arnardóttir, sem er sóknarprestur hins nýja prestakalls, Gunnar Jóhannesson prestur, og Arnaldur Bárðarson prestur.Þótt það hljómi eins og hér sé um afdrifaríka breytingu að ræða er það í raun ekki svo. Prestakallaskipan Þjóðkirkjunnar hefur tekið breytingum í gegnum tíðina og verið nú til skoðunar undanfarin ár í þeim tilgangi að einfalda hana og gera hana skilvirkari þar sem aðstæður leyfa. Og markmiðið er fyrst og fremst að efla og auðga þjónustu kirkjunnar á hverjum stað og greiða fyrir samstarfi og samvinnu prestanna. Prestakall er kannski ekki orð sem okkur er tamt að nota eða hugsa um. Prestakall er í eðli sínu lítið annað en starfseining og skipulagsheild (sem samanstendur af einni eða fleiri landafræðilegum einingum, sóknum) sem afmarkar það svæði sem þjónusta og starfsskyldur presta ná til. Með sameiningunni nú er því fyrst og fremst um að ræða skipulagsbreytingu sem snýr að starfi prestanna. Sameiningin snertir því ekki sóknirnar sem slíkar að neinu leyti og hefur engin áhrif á eðli þeirra eða störf sóknarnefnda hverrar sóknar.Með tilkomu hins nýja prestakalls fáum við prestarnir nú tækifæri til að starfa nánar saman og skipuleggja starf okkar og þjónustu á breiðari grunni. Það teljum við afar jákvætt og hlökkum við mikið til að vinna saman að því, ásamt öðru samstarfsfólki okkar innan kirkjunnar, að efla þjónustu kirkjunnar okkar og auka breidd hennar og fjölbreytni. Að því sögðu vonum við eins og aðrir að aðstæður í samfélaginu komist í eðlilegt horf fyrr en síðar svo við getum opnað dyr kirknanna aftur upp á gátt og boðið uppá fjölbreytt helgihald og safnaðarstarf. Við bendum á heimasíður og facebook-síður sóknanna og minnum á að það er alltaf hægt að leita til okkar:Með kærum kveðjum og blessunaróskum.Guðbjörg, Gunnar og Arnaldur.