Það er gerir mörgum gott sem hafa gengið í gegnum sorg eða áföll að hitta aðra sem staðið hafa í sömu sporum og rætt í trúnaði og einlægni um líðan sína. Í apríl og maí verður boðið upp á samtal um sorg og áföll í Selfosskirkju. Byrjað verður á stuttu erindi um sorg og áföll, síðan er boðið upp á samtal. Samveran verður í Safnaðarheimili Selfosskirkju, hún hefst kl. 18:00 og stendur yfir í um klukkutíma Samveran verður miðvikudagana 13. og 20. apríl og 4. og 11. maí. Umsjón hefur Guðbjörg Arnardóttir, hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 865 4444 eða á netfanginu gudbjorg.arnardottir@kirkjan.is.
Nú getum við með mikilli gleði sagt að helgihald í dymbilviku og um páska verði með hefbundnum hætti og mikið verður gott að hittast þessa daga. Hér er yfirlit yfir það sem verður í Selfosskirkju og sömuleiðis öðrum kirkjum prestakallsins.
Selfosskirkja 10. apríl, pálmasunnudagur Fermingarmessur í Selfosskirkju kl. 11:00 og 13:00.
Athugið að engin sunnudagaskóli verður þennan sunnudag.
Selfosskirkja 14. apríl, skírdagur Fermingarmessur í Selfosskirkju kl. 11:00 og 13:00
17. apríl, páskadagur Hátíðarmessa kl. 08:00, kirkjukórinn syngur, organisti Edit A. Molnár, prestur Gunnar Jóhannesson. Sóknarnefnd Selfosskirkju býður í morgunkaffi að messu lokinni.
Laugardælakirkja: 14. apríl, skírdagur Messa í Laugardælakirkju kl. 14:30, almennur safnaðarsöngur, organisti Guðmundur Eiríksson, prestur Guðbjörg Arnardóttir
Pílagrímaganga í Árborgarprestakalli: 15. apríl, föstudagurinn langi Byrjað verður með helgistund í Eyrarbakkakirkju kl. 11:00 og gengið í Stokkseyrarkirkju þar sem endað verður með helgistund. Umsjón Guðbjörg Arnardóttir
Nú leggur Unglingakórinn lokahönd á fjáröflun fyrir kórferðina sína. Þriðjudaginn 5. apríl verður bingo í Safnaðarheimilinu kl. 17:00, athgið engin posi.
Messa verður sunnudaginn 3. apríl kl. 11:00. Kirkjukórinn syngur, organisti Edit A. Molnár og prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Eftir messuna ætlar Unglingakórinn okkar að bjóða upp á súpu og ágóðinn af sölunni rennur í ferðasjóðinn þeirra en kórinn er að fara í kórferð út fyrir landssteinana núna í vor.
Kvöldmessa verður í Selfosskirkju sunnudaginn 27. mars kl. 20:00. Unglingakórinn syngur og fær liðsstyrk frá fyrrum félögum Unglingakórsins sem dusta rykið af raddböndunum og koma aftur syngjandi í kirkjuna okkar. Þetta verður falleg og góð stund. Stjórnandi og undirleikari verður auðvitað Edit A. Molnár og prestur Gunnar Jóhannesson. Ætla má að fyrrum kórfélagar dragi fram krossinn sinn og beri um hálsinn.
Sunnudagaskóli verður sama sunnudaginn á sínum hefðbundna tíma kl. 11:00. Umsjón með stundinni hefur Sjöfn Þórarinsdóttir ásamt leiðtogum.
Bendum einnig á messu sem verður í Stokkseyrarkirkju sama sunnudag kl. 11:00.
Mikið sem var gaman að fá hann Magnús Hlyn fréttamann í heimsókn til okkar á kórnámskeið. Námskeiðið gekk heldur betur vel og gaman að sjá þessa flottu krakka prófa að vera í kór, þau eru sko efnileg. Þær eru líka frábærar í þessu Edit og Kolbrún Berglind og ætla þær að bjóða aftur upp á svona námskeið í maí í kirkjunni okkar.
Fyrirhugaðri vísitasíu biskups Íslands verður frestað vegna veikinda. Hins vegar verður messa í Selfosskirkju kl. 11:00 á sunnudaginn 13. mars kl. 11:00 og sunnudagaskóli á sama tíma.