Hér er örlítil jólakveðja úr Selfosskirkju þar sem krakkar út barnastarfinu og kórnum skiptast á að lesa jólaguðspjallið ásamt nokkrum öðrum kunnuglegum andlitum úr kirkjunni.
Greinasafn eftir: Guðbjörg Arnardóttir
Breyting á helgihaldi vegna samkomutakmarkana
Breytingar á jólamessum vegna sóttvarnartakmarkanna.
Messað verður í Selfosskirkju á aðfangadegi kl. 18 og 23:30. Öðrum messum er aflýst.
Kæru sóknarbörn!
Með auknum smittölum og hertum sóttvarreglum næstu þrjár vikurnar er ljóst að svigrúm fyrir áður auglýstar hátíðarmessur í kirkjum Árborgarprestakalls er verulega skert þessi jólin.
Við höfðum lengi horft til jólanna með mikilli tilhlökkun yfir því að geta nú opnað dyrnar að kirkjunum okkar. Við teljum það hins vegar ábyrgt, eins og staðan er nú, að aflýsa öllum áformuðum messum öðrum en aftansöng kl. 18 í Selfosskirkju og miðnæturmessu kl. 23:30 í Selfosskirkju 24. desember. Verða stundirnar lágstemmdar með fallegum jólasálmum og almennum safnaðarsöng.
Í Selfosskirkju getum við boðið upp á tvö sóttvarnarhólf þar sem við höfum einnig rými til að halda tveggja metra fjarlægð á milli óskyldra aðila. Eru þau sem vilja og geta komið hjartanlega velkomin á meðan rými leyfir. Mega 50 vera saman í hvoru hólfi. Minnum við einnig á grímuskyldu.
Áfram verður hægt að hlýða á aftansöng á Rás 1 á aðfangadag sem og aðrar jólamessur í útvarpi og sjónvarpi yfir hátíðirnar.
Við óskum ykkur kæru sóknarbörn öllum friðar og helgi yfir jólahátíðina og vonum að þið eigið gefandi og góðar stundir með ykkar nánustu.
Það er ómögulegt að sjá hvað bíður á nýju ári, en við vonum að með hækkandi sól bíði okkar margar gleðilegar og gefandi stundir í kirkjum Árborgarprestakalls.
Með jóla- og nýársóskum,
Sr. Guðbjörg, sr. Gunnar, sr. Arnaldur.
Helgistund í Selfosskirkju sunnudaginn 19. desember kl. 11:00
Notaleg helgistund verður í Selfosskirkju sunnudaginn 19. desember kl. 11:00, Kirkjukórinn syngur fallega aðventusálma, organisti Edit A. Molnár og prestur Arnaldur Bárðarson.
Helgihald 12. desember
Við munum hefja helgihald á ný og vinna út frá gildandi takmörkunum og hólfaskiptingu.
Sunnudaginn 12. desember er jólaball sunnudagaskólans kl. 11:00. Byrjum á helgistund í kirkjunni og syngjum svo jólalögin við jólatréð í Safnaðheimilinu. Umsjón með stundinni hafa Sjöfn Þórarinsdóttir og Guðbjörg Arnardóttir.
Um kvöldið kl. 20:00 verður aðventukvöld, þar mun kirkjukórinn syngja og einsöng með þeim syngur Þóra Gylfadóttir, organisti Edir A. Molnár og prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Hleypt verður hámarksfjölda inn í kirkjunni og eftir það hámarksfjölda inn í Safnaðarheimilinu.
Aðventustund á öðrum sunnudegi í aðventu í Selfosskirkju
Í vikunni tókum við upp aðventustund í Selfosskirkju og nú er það Barnakór Selfosskirkju sem syngur fyrir okkur. Í haust byrjuðu mörg börn í kórnum og eru að stíga sín fyrstu skerf við kórsöng í kirkjunni. Það eru auðvitað vonbrigði að geta ekki fengið að njóta þess að sjá þau koma fram í kirkjunni en við treystum því að sá tími munu þó koma. Stjórnendur kórsins eru Edit A. Molnar og Kolbrún Berglind Grétarsdóttir. Gunnar Jóhannesson segir sögu og kveikir á öðru kertinu á aðventukransinum. Megið þið njóta stundarinnar.
Aðventustund – upptaka úr Selfosskirkju
Vegna hertra samkomutakmarkana
Í ljósi nýrrar reglugerðar um samkomutakmarkanir sem gilda til 8. desember munum við gera eftirfarandi ráðstafanir:
= Messur og aðventukvöld sem fyrirhuguð voru í öllum kirkjum Árborgarprestakalls á tímabilinu falla niður.
= Sunnudagaskóli í Selfosskirkju verður áfram á sunnudögum kl. 11:00 sömuleiðis aðrar fyrirhugaðar barnasamverur í Eyrarbakka- og Stokkseyrarkirkju.
= Morgunbænir í Selfosskirkju á þriðju-, miðviku- og fimmtudögum kl. 9:15 verða áfram.
= Kyrrðarstundir í Selfosskirkju á miðvikudögum kl. 17:00 verða áfram.
= Kórastarf í Selfosskirkju verður með hefðbundnum hætti.
= 6-9 ára starf í Selfosskirkju starf verður áfram.
= Auglýst verður síðar hvort TTT starf verður.
Tökum til okkar hvatningu Biskups Íslands í bréfi sem sent var út eftir að að tilkynnt var um nýja reglugerð:
,,Nú framundan er aðventa og jólahátíð. Það er von mín að með samhentu átaki þjóðarinnar verði hægt að kveða niður þessa bylgju og hægt verði að njóta hátíð ljóss og friðar með öllum þeim sem við elskum. Til þess þurfum við nú sem fyrr að sýna ábyrgð og varúð.“
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 14. nóvember kl. 11:00
Messa verður í Selfosskirkju sunnudaginn 14. nóvember kl. 11:00. Kirkjukórinn syngur, organisti Edit A. Molnár, prestur Gunnar Jóhannesson.
Sunnudagaskóli á sama tíma, umsjón Sjöfn Þórarinsdóttir ásamt leiðtogum.
Minnum einnig á kvöldmessu í Stokkseyrarkirkju sama dag kl. 20:00.
Messa í Selfosskirkju sunnudaginn 7. nóvember kl. 11:00
Messa verður í Selfosskirkju sunnudaginn 7. nóvember kl. 11:00. Kirkjukórinn syngur, organisti Edit A. Molnár, prestur Arnaldur Bárðarson.
Sunnudagaskóli á sama tíma, umsjón hefur Sjöfn Þórarinsdóttir ásamt leiðitogum.
Bendum einnig á messu í Villingaholtskirkju sama dag kl. 13:30.
Heimsókn Unglingakórsins á Ljós- og Fossheima
Unglingakórinn okkar komst loksins í langþráða heimsókn á Hjúkrunarheimilin Ljós- og Fossheima og er þessi mynd tekin tekin með kórnum ásamt heimilisfólki. Var kórnum tekið fagnanadi og vel og fannst þeim ekki síður gaman að fá loksins að koma aftur til syngja og gleðja fólkið.