Greinasafn fyrir flokkinn: Eitt og annað
Kirkjubrall í Selfosskirkju
Sumardaginn fyrsta kl. 11:00 – 12:00
Kirkjubrall er skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. Föndrum og bröllum ýmislegt í kringum bilblíusöguna um Daníel í ljónagryfjunni í lok stundarinnar fá allir pylsur og djús.
Um stundina sjá sr. Ninna Sif Svavarsdóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir æskulýðsfulltrúi, Sigurður Einar Guðjónsson og leiðtogar og sjálfboðaliðar úr kirkjustarfinu.
Gengið inn um safnaðarheimili.
Hlökkum til að eiga góða stund með ykkur,
Sjáumst í kirkjunni!
Kórnámskeið
Tónleikar hjá Barnakór Selfosskirkju í dag kl. 18:00 og föstuhádegi á morgun kl. 12:00
Í dag kl. 18:00 verða tónleikar hjá Barnakór Selfosskirkju, stjórnandi þeirra er Edit A. Molár. Þetta eru flottir krakkar og efnisskráin fjölbreytt. Verið hjartanlega velkomin!
Á föstudaginn 7. apríl verður föstuhádegi í kirkjunni. Byrjað er með helgistund í kirkjunni þar sem hluti af Kirkjukórnum syngur. Á eftir verður búið að matreiða saltfisrétt sem hægt verður að kaupa á 1000 krónur.
Messa og kvöldmessa á sunnudaginn
Messa verður sunnudaginn 2. apríl kl. 11:00. Organisti Glúmur Gylfason, Kirkjukórinn syngur. Prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Sunnudagaskólinn á sama tíma, umsjón Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir ásamt leiðtogum.
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Kvölmessa kl. 20:00. Um tónlistina sér Jóhann Guðrún Jónsdóttir söngkona og fyrrum Eurovisionfari.
Boðunardagur Maríu
Nk. sunnudag 26.mars verður messa í Selfosskirkju þar sem boðunardags Maríu verður minnst. Líklega er ekkert myndefni í sögunni algengara eða vinsælla en María og litli drengurinn hennar, og um Maríu hafa líka verið samin mörg falleg tónverk. María var sterk kona sem falið var afar sérstakt hlutverk. Af henni getum við öll lært.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 11 í umsjón Jóhönnu Ýrar og æskulýðsleiðtoga.
Súpa og brauð gegn vægu gjaldi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Verum öll velkomin – sjáumst í kirkjunni!
Helgihald í Selfosskirkju 19. mars
Sunnudagsmessa og sunnudagaskóli
Sunnudaginn 19. mars verður messu í Selfosskirkju kl. 11:00. Messan verður að hluta til með Taize formi þar sem kyrrðin, söngurinn og bænin eru í aðalhlutverki. Organisti Edit A. Molnár, Kirkjukórinn syngur, prestur Guðbjörg Arnardóttir.
Sunnudagaskóli verður á sama á sama tíma í umsjón æskulýðsfulltrúa Selfosskirkju.
Súpa og brauð gegn vægu gjaldi að lokinni messu.
Helgistund á Ljósheimum
Sama dag kl. 13:30 verður helgistund á Ljósheimum og fáum við góða gesti til að syngja og leiða söng við helgistundina.
Batamessa verður kl. 17:00
Vinir í bata á Selfossi bjóða til Batamessu í Selfosskirkju næstkomandi sunnudag, þann 19. mars kl.17:00.
Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving munu leiða söng, Guðbjörg Arnardóttir þjónar. Við fáum að heyra vitnisburð og kirkjugestum boðið að taka þátt í trúariðkun. Boðið verður upp á veitingar og kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu, þar gefst tækifæri á að spjalla og eiga samfélag. Hér á Selfossi er stór hópur fólks búinn að fara í gegnum 12 sporin andlegt ferðalag, það er alltaf gaman að hittast og deila því sem á dagana hefur drifið og rifja upp gömul og góð kynni.
Allir velkomnir.
Sunnudagur 5. mars í Selfossprestakalli
Á sunnudaginn er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og verður því æskulýðsguðsþjónusta í Selfosskirku kl. 11:00. Félagar úr Æskulýðsfélagi Selfosskirkju hafa ásamt leiðtoga sínum, Jóhönnu Ýr Jóhannsdóttur, undirbúið stundina. Þau sjá um lestra, tónlist og bænir en einnig leiða félagar úr Unglingakór Selfosskirkju okkur í léttum æskulýðssöngvum. Stundin hentar allri fjölskyldunni þó unglingar séu þar í aðalhlutverki. Prestur Guðbjörg Arnardóttir og organisti Edit A. Molnár.
Súpa og brauð verður í safnaðarheimilinu á eftir og um 12:30 hefst aðalsafnaðar Selfossóknar og eru öll þau sem áhugasöm eru um starfið í Selfosskirkju hvött til að koma
Um kvöldið verður svo kvöldguðsþjónusta á föstu í Hraungerðiskirkju. Þar syngur Kirkjukór Hraungerðis- og Villingaholtssókna og er kórstjóri þeirra og organisti Ingi Heiðmar Jónsson.
Blaðað í Biblíunni 2017
Fjóra þriðjudaga í marsmánuði 2017 verður blaðað í Biblíunni í Selfosskirkju.
Axel Á Njarðvík héraðsprestur leiðir samtal um Fake News og Good News (sem svo oft ber á góma), eða skröksögur og sannar sögur, fjórum lykilspurninginum svarað af Lúkasi guðspjallamanni.
Farið verður í afar ráhugaverða þætti Biblíunnar, um eðli textans, sögu hans og notkun. Í fjögur skipti koma þátttakendur sama að textum Biblíunnar til að lesa hann og hugleiða og fara síðan ríkari heim. Það hefst kl. 18:00 þriðjudaginn 7. mars og stendur yfir góða klukkustund. Vinsamlega skráið ykkkur með því að hringja skráningu í Axel síma 856 1574. Þátttaka er ókeypis og verið velkomin.
Útför Hafþórs Snorrasonar frestað vegna slæmrar veðurspár
Vegna slæmrar veðurspár hefur útför Hafþórs Snorrasonar sem vera átti í dag kl. 15 verið frestað fram til mánudags 27.febrúar kl. 15.