Greinasafn fyrir flokkinn: Eitt og annað
Kórar Selfosskirkju syngja við útvarpsmessu.
Messa á þrenningarhátíð 22.maí
Sunnudaginn 22. maí er messa í Selfosskirkju kl. 11. Sr. Ninna Sif þjónar, Edit Molnár spilar á orgelið og kirkjukórinn syngur. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Gott samfélag, söngur, Guðs orð og gleðiboðskapur beint í æð – sjáumst í kirkjunni!
Messa á hvítasunnudag
Í Selfosskirkju verður að vanda messa kl. 11 á hvítasunnudag, 15.maí. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Edit Molnár organista. Létt máltíð í safnaðarheimilinu að messu lokinni í umsjón kvenfélags kirkjunnar. Allir velkomnir – sjáumst í kirkjunni!
Fermingarmessur 7. og 8. maí
Fermingarmessur verða í Selfosskirkju um helgina. Presar Ninna Sif Svavarsdóttir og Guðbjörg Arnardóttir. Organisti Edit A. Molnár, Kirkjukórinn syngur, einnig raddir úr Unglingakórnum.
Fermd verða:
7. maí kl. 11:00
Eydís Erna Guðmundsdóttir, Erlurima 6, 800 Selfoss
Eydís Lilja Guðlaugsdóttir, Folaldahólum 15, 800 Selfoss
Gunnar Gauti Valgeirsson, Nauthólum 26, 800 Selfoss
Helena Ágústsdóttir, Miðengi 22, 800 Selfoss
Katrín Ósk Kristjánsdóttir, Tunguvegi 3, 800 Selfoss
Lilja Sól Vigfúsdóttir, Grafhólum 1, 800 Selfoss
Lovísa Þórey Björgvinsdóttir, Lyngheiði 17, 800 Selfoss
Matthildur Vigfúsdóttir, Hjarðarholti 5, 800 Selfoss
Máni Sverrisson, Birkigrund 25, 800 Selfoss
Pétur Sigurdór Pálsson, Fossvegi 8, 800 Selfoss
Sara Lind A van Kasteren, Birkigrund 26, 800 Selfoss
Teitur Jóhannsson, Grænuvöllum 5, 800 Selfo
8. maí kl. 11:00
Anna Margrét Guðmundsdóttir, Þrastarima 25, 800 Selfoss
Ágústa Sigurðardóttir, Úthaga 9, 800 Selfoss
Ásdís Bára Steinarsdóttir, Birkigrund 12, 800 Selfoss
Bjarki Birgisson, Sílatjörn 11, 800 Selfoss
Daníel Sindri Sverrisson, Grashaga 1a, 800 Selfoss
Eydís Birta Smáradóttir, Móhellu 16, 800 Selfoss
Hákon Birkir Grétarsson, Birkigrund 9, 800 Selfoss
Ingibjörg Gísladóttir, Hellubakka 10, 800 Selfoss
Íris Ragnarsdóttir, Stekkholti 9
Katrín Ásta Arnarsdóttir, Lækjartúni, 816 Ölfus
Sigrún Stefánsdóttir, Laufhaga 17, 800 Selfoss
Tryggvi Sigurberg Traustason, Kálfhólum 1, 800 Selfoss
Unnur María Ingvarsdóttir, Ástúni, 801 Selfoss
Þorsteinn Már Guðmundsson
Krossamessa og tónlistarveisla!
Sunnudaginn 1.maí er krossamessa í Selfosskirkju. Barna – og unglingakórar kirkjunnar syngja við guðsþjónustuna undir stjórn Edit Molnár. Elstu nemendur kórsins verða kvaddir með krossi. Einnig leikur strengjasveit með flinkum spilurum á aldrinum 10-15 ára frá Gdansk í Póllandi, stjórnandi þeirra er Anna Podhajska. Prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Sjáumst öll í kirkjunni!
Kl. 15 á sunnudag er svo uppskeruhátíð kóra kirkjunnar þar sem allir kórarnir koma fram og syngja íslensk þjóðlög í ýmsum útsetningum, erlendar perlur og einsöngslög. Miðaverð er 1500 kr. og innifalið eru kaffiveitingar sem bornar verða fram í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum.
Fjölskyldusamvera – uppskeruhátíð barnastarfs í Selfosskirkju
Fjölskyldusamvera verður í Selfosskirkju sumardaginn fyrsta kl. 11:00. Uppskeruhátíð barnastarfsins.
Messy Church – messu-stöðva-stuð eða kirkjubrall. Föndrað, leikið, málað út frá sköpunarsögunni á mörgum stöðum í kirkjunni.
Ekki koma í sparifötunum 🙂
Síðan verður boðið upp á pylsur á eftir.
Fyrir samveruna fæst vegabréfsstimpill á Vor í Árborg.
Samtal um sorg
Messa sunnudaginn 10.apríl kl. 11
Nk. sunnudag 10.apríl verður að vanda messa og sunnudagaskóli kl. 11. Guðspjall sunnudagsins er úr Jóh. 10 þar sem Jesús segir: “Ég er góði hirðirinn”. Prestur er sr. Ninna Sif Svavarsdóttir, organisti Edit Molnár og kór kirkjunnar syngur. Sunnudagaskólanum stýrir Jóhanna Ýr af sinni alkunnu snilld. Að messu lokinni reiðir kvenfélag kirkjunnar fram súpu í safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi. Sjáumst í kirkjunni!
Batamessa í Selfosskirkju
Nk. sunnudag 10.apríl kl. 17 bjóða Vinir í bata til batamessu. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina. Batamessa eru ólík hefðbundinni sunnudagsmessu að mörgu leyti en. Hún er sniðin að þeim sem farið hafa í gegnum 12 sporin en allir eru hjartanlega velkomnir. Mikill fjöldi hefur farið í gegnum sporin 12 hér í Selfosskirkju og væri gaman að sjá einhverja þeirra við messuna. Kaffi og veitingar í safnaðarheimilinu að messu lokinni.