Verið velkomin til kirkjunnar.
Greinasafn fyrir flokkinn: Eitt og annað
Appelsínugulur fáni við kirkjuna
Sumir hafa velt vöngum yfir appelsínugula fánanum sem blaktir við hún á fánastöng kirkjunnar.
Soroptimistasamband Evrópu hefur síðan 2009 hvatt borgir til að lýsa upp aðalbyggingar sínar með appelsínugulum, roðagylltum lit. Með því móti er vakin athygli á ofbeldi gegn konum.
– 35 prósent allra kvenna í heiminum munu upplifa ofbeldi. Á sumum svæðum allt að 7 af hverjum 10 konum.
– Meira en 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki bannað.
– Allt að 50 prósent alls kynferðisofbeldis á sér stað gagnvart stúlkum undir 16 ára aldri.
– 250 milljónir kvenna í dag voru giftar áður en þær urðu 15 ára.
– 200 milljónir kvenna í dag hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi.
Ofbeldi gegn konum er aldrei einkamál heldur samfélagslegt vandamál sem
hefur áhrif á milljónir kvenna og enn fleiri milljónir barna.
Selfosskirkja tekur þátt í átakinu með því að flagga appelsínugulum fána
frá 25. nóvember til 10. desembers 2022.
Söngur og gleði í Selfosskirkju
Örnámskeið í söng og tónlist fyrir börn fædd 2017.
Námskeiðið er aðeins þrjú skipti og er börnunum að kostnaðarlausu.
Þið getið skráð börnin eða fengið frekari upplýsingar hjá Edit organistanum okkar, í gegnum netfangið edit@simnet.is
Aðventan gengur í garð
Að ganga á fund áfalla, sorgar og missis
Mynd
Fyrirhugaðar eru fjórar samverur á næstunni í Selfosskirkju fyrir þau sem glíma við áföll, sorg og missi. Fyrsta skiptið verður mánudaginn 28. nóvmber kl. 17:30 og svo næstu þrjá mánudaga á sama tíma. Hvert skipti varir í tæpan klukkutíma. Stutt innlegg verður í upphafi hvers sinn og síðan gefst tækifæri til að eiga þar rými til að viðra reynslu sína og tilfinningar, eiga samtal og gagnkvæman stuðning. Umsjón er í höndum héraðsprestsins sr. Axels Njarðvík og djáknans Guðmundar Brynjólfssonar. Allir eru velkomnir og ekkert þátttökugjald. Fólk er hins vegar beðið á skrá sig annað hvort hjá sr. Axel í síma 856 1574 eða axel.arnason@kirkjan.is eða Guðmundi djákna í síma 899 6568 eða gummimux@simnet.is.
Guðmundur djákni- nýr liðsmaður
Nú leysir af í hálfu starfi við Árborgarprestakall vegna veikinda í starfsliði kirkjunnar, Guðmundur Brynjólfsson, en hann tók vígslu sem djákni 2012 til Guðríðarkirkju í Reykjavík. Guðmundur er búsettur í Þorlákshöfn og var djákni þar frá 2015 til 2020. Undanfarin ár hefur hann fengist við skáldsagnagerð, leikritun, fræðimennsku og háskólakennslu fyrir utan djáknastörfin. Djákninn er með doktorspróf í almennri bókmenntafræði og meistarapróf í leiklistarfræðum. Áætlað er að Guðmundur verði hér við störf þar til 13. janúar 2023. Starfssvið Guðmundar djákna verður á sviðið fræðlsu- og líknarmál. Enn fremur mun hann leiða helgihald safnaðanna og sinna sálgæslu sem kallað er eftir. Sími Guðmundar er s. 899 6568 og netfang: gummimux@simnet.is.
Söngstund í Selfosskirkju
Síðast mættu yfir 100 manns sem fylltu kirkjuna af söng. Í þetta skiptið efna söngvarar úr barna-, unglinga-, og kirkjukór kirkjunnar til opinnar söngstundar 13. nóvember næstkomandi.
Hlökkum til að sjá þig
Útför Ingunnar Hofdísar Bjarnadóttur
Hér er tengill á útsendingu.
Erindi um sorg og sorgarviðbrögð í Hveragerðiskirkju
Við vekjum athygli á erindi um sorg og sorgarviðbrögð í Hveragerðiskirkju 3. nóvember kl. 20 og sorgarsamtölum í kjölfarið á miðvikudögum. Verið velkomin.
Helgihald á Allra heilagra messu, 6. nóvember
Verið velkomin til helgihalds í Árborgarprestakalli á Allraheilagramessu, sunnudaginn 6. nóvember.
Stokkseyrarkirkja kl. 11. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari. Organisti Haukur Gíslason.
Villingaholtskirkja kl. 13:30 – Þjóðbúningamessa og messukaffi í Þjórsárveri. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari. Organisti Guðmundur Eiríksson.
Kvöldmessa í Selfosskirkju kl. 20. Fiðlunemendur Maríu Weiss frá TÁ koma fram og spila í messunni. Gunnar Jóhannesson þjónar fyrir altari. Organisti Edit Molnár. Kirkjukór Selfoss syngur.